Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Qupperneq 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 11.–13. mars 2014
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4-
05
66
Kia Sorento EX Luxury
Árg. 2012, ekinn 47 þús. km,
dísil, 197 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,7 l/100.*
Verð: 6.290.000 kr.
Kia Sorento EX Classic
Árg. 2012, ekinn 44 þús. km,
dísil, 197 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,7 l/100.*
Verð: 5.590.000 kr.
Kia Carens EX 7 manna
Árgerð 2013, ekinn 26 þús. km,
dísil, 136 hö., beinskiptur,
eyðsla 5,1 l/100.*
Verð: 4.150.000 kr.
Kia cee‘d LX 1,6
Árg. 2012, ekinn 45 þús. km,
dísil, 116 hö., 6 gíra, beinskiptur,
eyðsla 4,4 l/100.* Grænn bíll.
Verð: 2.550.000 kr.
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
Veldu notaðan Kia
með lengri ábyrgð
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2013, ekinn 31 þús. km,
dísil, 136 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 6,9 l/100.*
Verð: 5.590.000 kr.
Greiðsla á mánuði
39.900 kr.
M.v. 58% innborgun og 84 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 11,92%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
Kia Picanto EX 1,2
Árg. 2013, ekinn 8 þús. km,
bensín, 84 hö., sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100.*
Verð: 2.390.000 kr.
Greiðsla á mánuði
19.900 kr.
M.v. 56% innborgun og 72 mán. óverðtryggt
lán á 9,7% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 12,97%.
6,5 ár
eftir af
ábyrgð
5,5 ár
eftir af
ábyrgð
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
7 manna
Bærinn færður úr stað
n Nyrsti bær Svíþjóðar verður færður n Framkvæmdalok eftir tuttugu ár
Á
vormánuðum mun vinna
hefjast við risavaxna fram
kvæmd í norðurhluta Sví
þjóðar. Bærinn Kiruna, þar
sem tæplega tuttugu þúsund
manns búa, verður færður úr stað
og allt sem honum fylgir. Ástæðan er
sú að bærinn stendur á gjöfulli járn
námu og er það talið þjóna hagsmun
um bæjarins betur að færa hann úr
stað frekar en að nýta ekki það magn
járngrýtis sem er að finna undir hon
um. Fjölmargir íbúar bæjarins starfa
við námuvinnsluna og á bærinn nán
ast allt sitt undir því að vinnslan gangi
vel.
Tuttugu ára verkefni
Vinna við framkvæmdirnar mun hefj
ast í vor og er áætlað að það muni taka
tuttugu ár að ljúka þeim. Íbúar bæjar
ins fá úthlutað nýju húsnæði í um það
bil þriggja kílómetra fjarlægð frá nú
verandi bæjarstæði og verður nýr mið
bæjarkjarni byggður. Þegar allt kemur
til alls verða þrjú þúsund íbúðir tæmd
ar, nokkur hótel, verslanir, skrifstofu
byggingar, skólar og heilsugæslustöð.
Þá verður kirkja bæjarins, sem valin
var sú fegursta í Svíþjóð árið 2001, tek
in niður og byggð aftur.
Ótrúlega umfangsmikið
Það er arkitektinn Mikael Stenqvist
sem hefur veg og vanda að skipulagn
ingu flutningsins. Hann segir að fram
kvæmdirnar séu ótrúlega umfangs
miklar og ekkert megi út af bregða.
„Ef þetta mistekst hjá okkur, af ein
hverjum ástæðum, þá er framtíð bæj
arins og allra íbúa hans í hættu. Það
veldur okkur áhyggjum – ólíkt öðrum
verkefnum sem við vinnum að,“ segir
Stenqvist við BBC. Hann segir að
markmið arkitektanna sem vinna við
nýja bæinn sé að hann muni líkjast
þeim gamla eins mikið og mögulegt
er.
Hvenær, ekki hvort
Allt saman hófst þetta árið 2004 þegar
námavinnslufyrirtækið Luossavaara
Kiirunavaara AB (LKAB), sem er í
ríkiseigu, sendi ábendingu til bæjar
stjórnar Kiruna þess efnis að fyrirtæk
ið þyrfti að grafa lengra inn í hlíð eina
sem er steinsnar frá bænum. Í bréfinu
var bent á það að þetta kynni að valda
vandræðum; hætta væri á að jarðveg
urinn undir þúsundum íbúða og skrif
stofubygginga í bænum gæti sigið eða
gefið sig. Í kjölfarið hóst undirbúning
ur við verkið. „Allir íbúar Kiruna vissu
að það kæmi að þessu, að bænum yrði
fundinn nýr staður, en spurningin var
alltaf hvenær,“ segir Viktoria Walldin,
félagsmannfræðingur sem komið
hefur að vinnunni. Hún segir að ólíkt
því sem einhverjir kynnu að halda sé
mörgum íbúum létt að komið sé að
verkinu. Óvissan um hvenær bærinn
yrði fluttur hafi valdið íbúum hugar
angri, margir hafi frestað því að festa
kaup á eignum í bænum eða hefja
fyrir tækjarekstur. Nú sé óvissunni
lokið.
Áætlanir gera ráð fyrir því að LKAB
kaupi allar eignir bæjarins á mark
aðsvirði plús 25 prósent. Íbúar munu
svo kaupa nýjar eignir af LKAB.
Aukinn ferðamannastraumur
Kiruna er nyrsti bær Svíþjóðar, en
hann stendur 145 kílómetra norðan
heimskautsbaugs. Forsvarsmenn
bæjarins vonast til þess að hið nýja
bæjarstæði muni lokka til sín ferða
menn, enda nánast einsdæmi að heill
bær sé færður úr stað. Sambærileg
verkefni – en þó minni í sniðum – hafa
átt sér stað í Þýskalandi og nokkrum
Afríkuríkjum,
Hið heimsfræga Íshótel stendur
skammt frá bænum, en hundrað
þúsund manns heimsækja hótelið á
hverju ári. Af þeim eru afar fáir sem
sjá, eða hafa séð, ástæðu til að heim
sækja Kiruna þó aðeins fimmtán mín
útna akstur sé til bæjarins. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Færð Kirkjan í Kiruna er ein fegursta kirkja Svíþjóðar. Hún var byggð árið 1912 en verður tekin
niður og færð úr stað.
Færður Bæjarstæðið
verður fært til austurs vegna
námuvinnslunnar. Almenn
sátt er sögð ríkja um þessa
ákvörðun. Mynd FrEdric AlM