Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 6
Vikublað 13.–15. maí 20146 Fréttir
Af með tjöruna -
á með
Aktu inn í
sumarið á
hreinum bíl!
Við erum á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
D
ótturfélag bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA, Creative
Associates, reyndi fyrr á ár-
inu að komast í samstarf við
íslenska aðila til að halda
námskeið hér á landi fyrir unga
fræði- og stjórnmálamenn frá Mið-
Austurlöndum. Þetta herma heim-
ildir DV.
DV greindi frá áhuga á Creative
Associates á starfsemi Íslandi fyrir
nokkrum vikum en blaðið var þá
ekki komið með nákvæmar upplýs-
ingar um hvers eðlis ætluð starfsemi
félagsins hér á landi átti að vera.
Þessar upplýsingar liggja hins vegar
fyrir núna.
Líkt og DV greindi frá í síðasta
mánuði þá er Creative Associates
fyrirtæki sem hefur margoft verið
bendlað við starfsemi bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, og sam-
starfsaðila hennar. Í erlendum miðl-
um hefur til dæmis komið fram að
Creative Associates hafi verið með
starfsemi í Afganistan og Pakistan
og hefur nafn þess verið tengt við
öryggisfyrirtækið Blackwater, fyrir-
tæki sem Dick Cheney, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, hefur
stýrt.
Vildi kynna sér vinnu gegn spillingu
Nú hefur DV heimildir fyrir því að
um hafi verið að ræða námsferð sem
Creative Associates ætlaði að skipu-
leggja til Íslands fyrir umrædda fræði-
og stjórnmálamenn. Fyrirtækið ætlaði
að halda fimm daga ráðstefnu hér á
landi fyrir umrædda aðila.
Tilgangurinn með ráðstefnunni
átti meðal annars að vera að kynna
fyrir gestunum frá Mið-Austurlönd-
um hvernig barist er gegn spillingu á
Íslandi. Helsti sérfræðingur Creative
Associates, Jeffrey Coonjohn, átti að
halda fyrirlestra hér á landi á ráð-
stefnunni. Allur kostnaður vegna
ráðstefnunnar átti að greiðast af
Creative Associates.
Meðal þess sem Creative
Associates reyndi að gera hér á
landi var að ráða íslenska aðila til
að vinna fyrir sig í tengslum við
umrædda ráðstefnu. Þessir aðilar
voru hins vegar ekki tilbúnir í slíkt
samstarf eftir að hafa kynnt sér
starfsemi fyrirtækisins.
Ekki í samstarfi við íslenska ríkið
DV hefur spurst fyrir um það hjá inn-
anríkisráðuneytinu hvort Creative
Associates hafi haft samband við ís-
lenska ríkið vegna mögulegrar starf-
semi hér á landi.
Engin svör hafa fengist frá ráðu-
neytinu um þetta atriði. Líklegast er
að ástæðan fyrir því sú fyrirtækið hafi
ekki haft samband við stjórnvöld.
Grafið undan stjórnvöldum á Kúbu
Líkt og DV greindi frá í síðasta mánuði
þá vakti það athygli heimspressunn-
ar í byrjun apríl þegar í ljós kom að
Creative Associates hefði staðið fyrir
stofnun útgáfu af samskiptamiðlin-
um Twitter á Kúbu. Samskiptamið-
illinn heitir ZunZuneo. Samkvæmt
erlendum fréttamiðlum var til-
gangurinn með opnun samskipta-
miðilsins að reyna að grafa undan
yfirvöldum í Havana með upplýs-
ingagjöf og auknum umræðum um
lýðræði. Sá tilgangur, aukin lýð-
ræðisvitund, er vissulega ekki mis-
jafn í sjálfu sér en skoða verður starf-
semi félagsins í ljósi samstarfsins við
CIA: Þegar mest lét notuðu um 40
þúsund Kúbverjar síðuna.
Líkt og DV sagði frá í síðasta
mánuði kom fram í gögnum um
stofnun samskiptamiðilsins að að-
komu bandarískra stjórnvalda að
miðlinum yrði ekki nefnd: „Ekki mun
verða minnst með nokkrum hætti á
aðkomu bandarískra yfirvalda.“
Þrátt fyrir að DV hafi upplýsingar
um áhuga Creative Associates á að
vera með þessa starfsemi á Íslandi
þá veit blaðið ekki af hverju þessi
áhugi á landinu stafar eða hvort CIA
hafði aðkomu að þessa tiltekna verk-
efni fyrirtækisins. Samkvæmt heim-
ildum DV þá var CIA hins vegar ekki
nefnt þegar Creative Associates fal-
aðist eftir samstarfsaðilum hér á
landi. n
Vildu kynna aðgerðir stjórnvalda gegn spillingu fyrir fræði-og stjórnmálamönnum frá MIð-Austurlöndum„Fyrirtækið ætlaði
að halda fimm
daga ráðstefnu hér á
landi fyrir umrædda aðila.
Fyrirtæki tengt CIA vildi
halda ráðstefnu á Ísland
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Ekki í samstarfi við ríkis-
stjórnina Creative Associates
hefur ekki haft samband við
íslensk stjórnvöld vegna vilja síns
til að vera með starfsemi á Íslandi.
Hér sjást formenn ríkisstjórnar-
flokkanna, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson og Bjarni Benediktsson.
Ökumenn sýni
gott fordæmi
Hvernig ökumenn hafa lagt bílum
sínum nærri íþróttavöllum hefur
í gegnum tíðina oft verið vanda-
mál. Að sögn lögreglu leggja öku-
menn þá gjarnan sem næst leik-
vöngum og þá upp á graseyjum,
gangstéttum og göngustígum.
Í stöku tilvikum er einnig lagt á
og við gangbrautir. Brot sem þessi
bjóða heim hættu fyrir gangandi
vegfarendur, skapa vandræði fyrir
almenningssamgöngur og valda
skemmdum hjá sveitarfélögum.
Jafnframt geta svona stöðubrot
gert mjög erfitt fyrir þegar um
neyðarakstur lögreglu, slökkvi- og
sjúkrabíla er að ræða.
Lögreglan hefur vakið athygli
á vandamálinu oftar en einu sinni
og auglýst aukið eftirlit vegna
þessa við íþróttavelli á höfuð-
borgarsvæðinu. Árangur hefur
orðið nokkur en ástandið er þó
á köflum enn óviðunandi. Lög-
reglan biðlar nú til ökumanna
sem sækja íþróttakappleiki að
sýna gott fordæmi og leggja öku-
tækjum sínum löglega. Brotlegir
munu þurfa að greiða stöðubrots-
gjald. Meðfylgjandi mynd er frá
Ásgarði í Garðabæ og sýnir vand-
ann sem við er að etja, en þessa
sjón hefur mátt sjá víða á höfuð-
borgarsvæðinu undanfarin ár.
Gleymdi
slátrinu á
eldavélinni
Mikla brunalykt lagði frá íbúðar-
húsnæði í umdæmi lögreglunn-
ar á Suðurnesjum á dögunum
og var hún kvödd á vettvang,
ásamt slökkviliði. Lögreglumenn
skrúfuðu upp opnanlegt fag á
eldhúsglugga og fóru inn. Þegar
þangað var komið kom í ljós að
reyk lagði frá potti á eldavél, að
sögn lögreglunnar á Suðurnesj-
um. Húsráðandi hafði verið að
sjóða slátur, en brugðið sér af bæ
án þess að slökkva á eldavélinni.
Slökkviliðið reykræsti húsnæðið
og urðu engar skemmdir af völd-
um slátur suðunnar.
Verra aðgengi nú en áður
Aðgengi að ýmiss konar þjónustu var verra árið 2012 en árið 2007
A
ðgengi að ýmiss konar þjón-
ustu var verra árið 2012 en
það var árið 2007. Þetta má
lesa úr lífskjararannsókn
Hagstofu Íslands en fjallað er um
málið á vef stofnunarinnar. Þar kem-
ur fram að breytingarnar felist eink-
um í því að þeim fækkar sem telja
aðgengið mjög gott en fjölgar sem
telja það frekar gott. Breytingarnar
eru yfirleitt meiri í dreifbýli en þétt-
býli.
Árið 2012 mat þó allur þorri svar-
enda aðgengi sitt að mældum þjón-
ustuþáttum sem frekar eða mjög
gott, eða á bilinu frá 71,5 prósent fyr-
ir almenningssamgöngur í dreifbýli
til 98,9 prósenta fyrir grunnskóla í
þéttbýli.
Í þéttbýli lækkaði hlutfall þeirra
sem töldu aðgengi að heilsugæslu
vera frekar eða mjög slæmt úr 11,2
prósentum í 5,2 prósent og þeim
sem töldu aðgengið mjög gott, úr
57,1 prósenti í 48,4 prósent. Að sama
skapi fjölgaði þeim sem töldu að-
gengið frekar gott úr 31,7 prósentum
í 46,5 prósent. Í dreifbýli breyttist
hlutfall þeirra sem töldu aðgengi að
heilsugæslu frekar eða mjög slæmt
lítið en hlutfall þeirra sem taldi að-
gengið mjög gott lækkaði úr 51,1
prósenti í 38,9 prósent. Niðurstöð-
urnar í heild má finna á vef Hagstof-
unnar, hagstofa.is. n
Heilsugæsla Í þéttbýli lækkaði
hlutfall þeirra sem töldu aðgengi að
heilsugæslu vera frekar eða mjög
slæmt. Að sama skapi fækkaði þeim
sem töldu það mjög gott. Myndin
tengist fréttinni ekki beint.