Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Blaðsíða 15
Vikublað 13.–15. maí 2014 Fréttir Viðskipti 15
Össuri var stefnt
í Bandaríkjunum
n Áfangasigur vannst n Jón Sigurðsson langlaunahæsti forstjóri landsins
S
toðtækjaframleiðandinn Otto
Bock, stefndi íslenska stoð
tækjafyrirtækinu Össuri á
síðasta ári vegna meintra
brota á einkaleyfi fyrirtæk
isins. Þetta kemur fram í ársreikn
ingi Össurar fyrir síðasta ár sem er
aðgengilegur hjá embætti ríkisskatt
stjóra. Fjallað er um málaferlin í skýr
ingu aftast í ársreikningi Össurar.
Otto Bock er helsti samkeppnis
aðili Össurar á stoðtækjamarkaðn
um og hafa verið sagðar af því frétt
ir í gegnum árin að fyrirtækið renni
hýru augu til íslenska fyrirtækisins.
Vegna málaferlanna er bókfærður
lögfræðikostnaður í ársreikningi
Össurar.
Sigurborg Arnarsdóttir, starfs
maður Össurar sem sér um sam
skipti við fjölmiðla fyrir hönd fyrir
tækisins, segir í samtali við DV að
stoðtækjaframleiðandinn hafi ekki
rætt sérstaklega um málaferlin fyr
ir utan það sem fram kemur í opin
berum upplýsingum um fyrirtækið.
„Þetta er bara í gangi og það verð
ur bara tilkynnt um niðurstöðurnar
þegar þær liggja fyrir,“ segir Sigur
borg.
Össur er skráð í íslensku kaup
höllinni og er eitt þekktasta og verð
mætasta fyrirtæki landsins enda
leiðandi á heimsvísu í framleiðslu
stoðtækja. Fyrirtækið var meðal
annars þekkt fyrir að sjá suður
afríska hlauparanum Oscari Pistor
ious fyrir stoðtækjum áður en hann
var handtekinn vegna morðs á unn
ustu sinni.
Telja stefnuna ekki halda
Í ársreikningi Össurar kemur fram
að stoðtækjaframleiðandinn telji
að stefna Ottos Bock eigi ekki rétt
á sér. Um stefnuna segir í ársreikn
ingi Össurar. „Otto Bock, stærsti
samkeppnisaðili Össurar á stoð
tækjamarkaðnum, stefndi Össuri
fyrir dóm í Bandaríkjunum á öðr
um ársfjórðungi 2013. Otto Bock
vill meina að tilteknar vörur Össur
ar, nánar tiltekið Unity og Icecross
SealIn V line, brjóti gegn einu af
einkaleyfum Ottos Bocks og að Öss
ur hafi brotið gegn samkomulagi
sem var til staðar á milli fyrirtækj
anna. Össur hefur neitað þessum
ásökunum og telur að framleiðslu
vörur Össurar brjóti ekki gegn
einkaleyfinu.“
Í ársreikningnum kemur jafn
framt fram að Össur telji að lang
mesti kostnaður fyrirtækisins vegna
málsóknarinnar muni koma til á ár
inu 2014.
Áfangasigur Össurar
Í gögnum um málaferlin sem að
gengileg eru á vef undirréttar í Kali
forníu í Bandaríkjunum kemur fram
að Otto Bock hafi beðið lægri hlut
fyrir Össuri í undirrétti í fylkinu þar
sem dómstóllinn hafi ekki talið lík
legt að fallist yrði á sjónarmið fyrir
tækisins. Otto Bock áfrýjaði hins
vegar þeirri niðurstöðu í febrúar síð
astliðinn og því eru málaferlin enn
þá í gangi í Bandaríkjunum, saman
ber orð Sigurborgar Arnarsdóttur
hér að framan. Endanleg niðurstaða
er því ekki komin í málaferlin.
Launahæsti forstjórinn
Í ársreikningi Össurar kemur jafn
framt fram að Jón Sigurðsson, for
stjóri Össurar til margra ára, er
langlaunahæsti forstjóri landsins.
Jón hefur verið launahæsti forstjóri
landsins síðastliðin ár en laun hans
komast þó ekki nálægt forstjóra
launum í íslensku bönkunum á ár
unum fyrir hrun.
Heildarlaun hans, með bón
usum og kaupréttarsamningi um
hlutabréf í Össuri, námu samtals
rúmlega 1,3 milljónum dollara í
fyrra, eða sem nemur 149.884 millj
ónum íslenskra króna. Jón var því
með mánaðarlaun upp á tæplega
12,5 milljónir króna í fyrra. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Þetta er bara í
gangi og það verð-
ur bara tilkynnt um niður-
stöðurnar þegar þær
liggja fyrir.
Lang launahæstur
Laun Jóns Sigurðsson-
ar, forstjóra Össurar,
voru þau langhæstu
meðal forstjóra á
Íslandi í fyrra. Mánað-
arlaun hans voru 12,5
milljónir króna.
Rök hníga að stýrivaxtalækkun
Líkur á að löngu tímabili óbreyttra stýrivaxta sé að ljúka
G
reining Íslandsbanka spáir
því að peningastefnunefnd SÍ
muni ákveða að lækka stýrivexti
bankans um 0,25 prósentur
þann 21. maí. Gangi það eftir lýkur
lengsta tímabili óbreyttra stýrivaxta í
sögu verðbólgumarkmiðs bankans.
„Verður þetta að okkar mati eina
vaxtalækkun ársins og raunar eina
vaxtabreyting ársins, en við teljum
að eftir þessa lækkun muni nefndin
ákveða að halda stýrivöxtum bankans
óbreyttum út árið,“ segir á vef Grein
ingar. Þar kemur fram að helstu rökin
fyrir lækkuninni nú séu að verðbólgan
er undir 2,5 prósenta verðbólgu
markmiði bankans, verðbólgan ætti
að haldast undir eða við verðbólgu
markmiðið út árið, verðbólguhorfur
munu væntanlega batna samkvæmt
nýrri spá bankans. Þá hafi gengi krón
unnar verið stöðugt frá síðustu vaxta
ákvörðun og þá mun spila inn í að
kjarasamningum hefur verið lent í
samræmi við verðbólgumarkmið fyrir
stærstan hluta vinnumarkaðarins.
Þrátt fyrir þetta telur bankinn
að óvissa sé um vaxtaákvörðunina.
„Óvissan er í þá veru að líkur eru á því
að peningastefnunefndin ákveði að
halda stýrivöxtum bankans óbreyttum,
en finna má nokkur rök fyrir óbreytt
um stýrivöxtum. Má þar nefna að verð
bólguvæntingar til lengri tíma eru enn
nokkuð yfir verðbólgumarkmiði bank
ans, verðbólguálag á skuldabréfamark
aði hefur ekki lækkað frá síðasta vaxta
ákvörðunarfundi nefndarinnar og að
talsverð launahækkun einstakra laun
þegahópa hefur hleypt illu blóði í aðila
vinnumarkaðarins sem kann að kalla
á meiri hækkanir launa á næsta kjara
samningstímabili en samrýmist verð
bólgumarkmiðinu. Teljum við að síð
astnefnda atriðið muni vega nokkuð
þungt í óbreyttum stýrivöxtum þegar
líður á árið og að kjarasamningum
á næsta ári verði ekki lent í jafn góðu
samræmi við verðbólgumarkmiðið og
núverandi samningar, sem aftur mun
verða meðal þeirra þátta sem kalla á
hækkun stýrivaxta á næsta ári.“ n
www.kebabgrill.is • Lækjargötu 10 Reykjavík • Sími 571-8800
Opnunartími: Mán-Fim 11-23, fös og lau 11-06, sun 13-23
Brauðið
bakað á
staðnum
Smakkaðu besta
Kebab í heimi!
Seðlabankinn Greining Íslandsbanka
telur að öll rök hnígi að stýrivaxtalækkun.
Mikil fjölgun
gistinótta
Gistinóttum útlendinga á hótel
um hér á landi fjölgaði um rúm
25 prósent á fyrsta ársfjórð
ungi miðað við sama tímabil
í fyrra. Af einstökum mánuð
um fjórðungsins var lang
mesti vöxturinn í janúar en þá
fjölgaði gistinóttum erlendra
ferðamanna um rúman helm
ing frá fyrra ári. Þetta kemur
fram í Hagsjá Landsbankans.
Þar kemur fram að gistinóttum
Íslendinga hafi fjölgað um sex
prósent milli ára á fjórðungn
um og nam heildarfjölgun gisti
nátta tæpum 22 prósentum.
Icelandair
óttast verri
afkomu
Icelandair Group sendi Kaup
höll Íslands viðvörun vegna
verkfalls og yfirvinnubanns
flugmanna félagsins. Flug hef
ur raskast talsvert að undan
förnu og hafa um sjö þúsund
ferðamenn þurft að breyta
ferðum sínum. Í tilkynningu
Icelandair Group segir: „Verk
fall, yf ir vinnu bann og aðrar
aðgerðir flug manna hef ur leitt
til þess að af lýsa hef ur þurft
fleiri flug um en gert var ráð
fyr ir. Haldi aðgerðirn ar áfram
munu þær því hafa verri áhrif
á af komu Icelanda ir Group en
til kynnt var um í til kynn ingu
hinn 6. maí. Ekki er hægt að
segja til um hversu mik il áhrif
aðgerðirn ar hafa fyrr en þær
eru yf ir staðnar.“