Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Side 17
Vikublað 13.–15. maí 2014 Fréttir Erlent 17
Inntökupróf fara fram
laugardaginn 17. maí 2013
Rafræn skráning á
www.listdans.is
Grunndeild árgangur 2005
og eldri koma í inntökupróf
klukkan 12–13:30
Framhaldsdeild árgangur
1998 og eldri koma í
inntökupróf klukkan 14–17
Tekið verður inná bæði
nútíma listdansbraut og
klassíska listdansbraut.
Nám við Listdansskóla
Íslands er góður undir
búningur fyrir frekara nám
og / eða atvinnu mennsku.
Nemendur hafa fengið
inngöngu í virta dansskóla
og keppt erlendis fyrir
Íslands hönd.
Myndirnar eru teknar á sýningum skólans.
Ljósmyndarar: Steve Lorenz og Joe Ritter
Skólaárið 2014–2015
Þekking
Reynsla
Fagmennska
Gæði
Úrvalskennarar í klassískum
og nútíma listdansi
Staður
Engjateigur 1
105 Reykjavík
Nánari upplýsingar
www.listdans.is
588 91 88
Stofnaður 1952
farsæl starfsemi í yfir 60 ár
Þjáðist af kvíðaröskun
Áföll í barnæsku sögð hafa haft áhrif á hann
S
uðurafríski spretthlaupar-
inn Oscar Pistorius þjáðist
af kvíðaröskun þegar hann
skaut unnustu sína, hol-
lensku fyrirsætuna Reevu Steen-
kamp, til bana. Þetta gerði það að
verkum að hann brást við ógn-
andi aðstæðum á öfgakenndan
hátt. Þetta kom fram í dag við rétt-
arhöldin yfir honum sem standa
yfir í Pretoríu í Suður-Afríku.
Merryll Vorster, prófessor í rétt-
arsálfræði, var á meðal þeirra sem
báru vitni fyrir dómi. Sagði hún að
samspil margra þátta hefðu valdið
kvíðaröskuninni, bæði líkamlegir
og andlegir. Nefndi hún til dæmis
þá staðreynd að Oscar missti báða
fótleggina þegar hann var ungbarn
og foreldrar hans hefðu skilið þegar
hann var barn. Þá hafi innan fjöl-
skyldunnar ríkt mikill ótti vegna
glæpa í Suður-Afríku. Vorster benti
einnig á að Oscar hafi misst móður
sína þegar hann var fjórtán ára og
það hafi verið honum erfið reynsla.
Eins og komið hefur fram hefur
Pistorius ekki neitað að hafa orðið
Reevu að bana. Sagðist hann hafa
talið hana vera innbrotsþjóf. Svo fór
að Oscar skaut nokkrum skotum í
gegnum baðherbergishurð heimil-
is þeirra og hæfðu tvö þeirra Reevu.
Saksóknarar fullyrða að Oscar hafi
myrt hana að yfirlögðu ráði. Búist er
við því að dómur verði kveðinn upp
í málinu innan nokkurra vikna. n
einar@dv.is
Kvíðaröskun Vorster sagði að
áföll sem Oscar varð fyrir í barn-
æsku hefðu leitt til kvíðaröskunar á
fullorðinsárunum. Mynd reuters
Flóttamenn
drukknuðu
Bát með fjögur hundruð flótta-
menn innanborðs hvolfdi úti fyr-
ir ströndum Ítalíu á mánudag,
með þeim afleiðingum að nokkrir
týndu lífi. Báturinn var á leið frá
Líbýu og sökk 185 kílómetra suð-
ur af eyjunni Lampedusa. Þegar
þetta er skrifað liggur ekki fyrir
hversu margir týndu lífi.
Þetta ekki í fyrsta sinn sem
Afríkubúar í leit að betra lífi
drukkna á svæðinu því um 400
flóttamenn drukknuðu í tveimur
slysum í fyrra.
Flestir flóttamenn sem reyna
að fara þessa leið eru frá Erítreu,
Sómalíu og Sýrlandi, að því er
heimspressan greinir frá.
Harris fyrir dómi
Kona hefur fyrir breskum rétti
greint frá því að Rolf Harris, áður
sjónvarpsmaður hjá BBC í um
fjörutíu ár, hafi misnotað hana
þegar hún var 13 ára gömul.
Harris var í fyrrahaust ákærður
fyrir kynferðisbrot gegn börn-
um og fyrir að hafa búið til fjórar
klámfengnar myndir af börnum.
Ásakanirnar komu fram við rann-
sóknina á sjónvarpsmanninum
og kynferðisbrotamanninum
Jimmy Savile.
Harris er 84 ára í dag og er
grunaður um að hafa brotið gegn
fleiri unglingsstúlkum.
Konan, sem nýtur nafnleynd-
ar, sagði fyrir rétti að hann hefði
misnotað hana í nokkur skipti,
jafnvel á meðan dóttir hans var í
sama herbergi.
Brotin sem Harris er ákærður
fyrir, 12 talsins, voru framin gegn
börnum á aldrinum sjö til 18 ára,
að því er BBC greinir frá.
Vill land á
Svalbarða
Kínverjinn Huang Nubo, sem
vildi á sínum tíma kaupa Gríms-
staði á Fjöllum, hefur nú áhuga á
að kaupa landsvæði við Aðventu-
fjörð á Svalbarða. RÚV greinir frá
þessu og vísar í norska héraðs-
fréttamiðilinn an.no.
Nubo er sagður vilja koma
upp ferðaþjónustu á svæðinu en
heimamenn telja að hann ásælist
náttúruauðlindir á svæðinu og
hafi augastað á skipaflutnings-
leiðum. Nubo bauð 111 milljónir
dala í landið.