Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Page 18
Vikublað 13.–15. maí 201418 Fréttir Erlent
Umburðar-
lyndari eftir
fall múrsins
Umburðarlyndi gagnvart
samkynhneigðum hefur auk-
ist mikið í Þýskalandi frá því að
Berlínarmúrinn féll. Á móti kem-
ur að umburðarlyndi í garð inn-
flytjenda sem aðlagast illa þýsku
samfélagi hefur minnkað á sama
tímabili. Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn frá Bertelsmann-stofn-
uninni. Í rannsókninni var einnig
spurt um traust Þjóðverja til
einstakra stofnana samfélagsins.
Í ljós kom að traustið hefur auk-
ist mikið frá falli Berlínarmúrsins,
þá einna helst í garð réttarkerfis-
ins og lögreglu.
V
ladimír Pútín, forseti
Rússlands, fór í sigurför
til Krímskaga á föstudag
þar sem hann hann fagn-
aði Sigurdeginum svokall-
aða, sem haldinn er hátíðlegur til
að minnast sigurs Bandamanna
á Þjóðverjum í síðari heimsstyrj-
öldinni. Pútín fagnaði deginum þar
í annað skipti, en hann er haldinn
8. maí ár hvert. Mikilfengleg skrúð-
ganga herliðs Rússa fór yfir Rauða
torgið í Moskvu á fimmtudag.
Á eitt farartækjanna var búið að
setja fána Krímskaga og því virt-
ist Pútín vera að halda sína eigin
sigurhátíð um leið. Á föstudag var
Pútín komin til Sevastopol á Krím-
skaga. Þar fylgdist hann með sjó-
og flugher sínum sýna mátt sinn
og megin í höfninni í tilefni dags-
ins. Þetta er fyrsta heimsókn for-
setans til Krím síðan skaginn var
innlimaður í Rússland og var hún
harðlega gagnrýnd af bæði NATO
og utanríkisráðuneyti Úkraínu.
Snúa til „móðurlandsins“
Hátíðardagurinn er einn sá mikil-
vægast í rússnesku samfélagi og
tugþúsundir flykktust að höfninni í
Sevastopol til að fylgjast með sjón-
arspilinu. Pútín fór um borð í orr-
ustuskip sem lágu í vari í höfninni,
heilsaði upp á áhafnir og fylgd-
ist með flughernum framkvæma
magnaðar æfingar.
Pútín hélt því næst ræðu, þar
sem hann fagnaði innlimun Krím-
skaga og þeim tveimur milljón-
um íbúa sem hann sagði að væru
nú að snúa aftur til „móðurlands-
ins.“ Skaginn var færður undir yfir-
ráð Úkraínu árið 1954, á tímum
Sovétríkjanna, og var undir stjórn
landsins allt þar til Pútín og hans
lið réðst inn í landshlutann. Þrátt
fyrir að Rússar tali um landið sem
sitt hafa vestræn ríki og yfirvöld í
Kænugarði ekki viðurkennt yfirráð
Rússa yfir svæðinu.
Átök í Mariupol
Ekki fögnuðu allir jafn ákaft og
Pútín. Í borginni Mariupol brut-
ust út átök á svæði þar sem vegur
liggur á milli Rússlands og Krím-
skaga. Staðfest hefur verið að í það
minnsta þrír hafi fallið og 25 særst
í átökunum. Yfirvöld í Kænugarði
segja að 20 „hryðjuverkamenn“
hafi látið lífið og einn lögreglu-
þjónn, þegar 60 vopnaðir menn
reyndu að taka yfir lögreglustöð
í borginni. Árásir þeirra voru þó
brotnar á bak aftur af lögreglu og
úkraínsku herliði.
Vestræn ríki og NATO hafa for-
dæmt aðgerðir Rússa á Krímskaga
og Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri NATO, segir banda-
lagið líta svo á að heimsókn Pútíns
hafi verið óviðeigandi. „Við lítum
enn á Krímskaga sem yfirráða-
svæði Úkraínu og eftir því sem ég
best veit hafa yfirvöld í Kænugarði
ekki boðið Pútín í heimsókn þang-
að,“ sagði Rasmussen við fjölmiðla.
Umdeildar kosningar
Í austurhluta Úkraínu fór fram at-
kvæðagreiðsla um helgina og
halda aðskilnaðarsinnar því fram
að niðurstöður hennar sýni fram
á að íbúar í héruðunum Donetsk
og Luhansk vilji stjórna sér sjálfir.
Aðeins ein spurning var á kjörseðl-
inum: „Styður þú sjálfsstjórn
Þjóðarlýðveldisins Donetsk/
Þjóðarlýðveldisins Luhansk?“
Fréttamenn BBC sem voru á staðn-
um greindu frá því að engin kjör-
skrá hefði verið til staðar og að
kjósendur hefðu getað kosið oftar
en einu sinni.
Þá voru kjörstaðir í Mariupol
örfáir, en í borginni býr um hálf
milljón manna. Rússnesk yfirvöld
segja að niðurstöður kosninganna
sýni „vilja fólksins“, en stjórnvöld
Úkraínu segja kosningarnar ekki
hafa neinn lagalegan grundvöll.
Utanríkisráðherra Breta, William
Hague, tekur undir þetta og lét
hafa eftir sér í fjölmiðlum að ESB
gæti beitt Rússlandi frekari við-
skiptaþvingunum, reyni yfirvöld
þar að hafa áhrif á forsetakosn-
ingu í Úkraínu sem fram fer þann
26. maí. n
n Hélt upp á Sigurdaginn með hersýningu n Umdeildar kosningar
Pútín fagnaði
á Krímskaga
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Við lítum enn á
Krímskaga sem
yfirráðasvæði Úkraínu og
eftir því sem ég best veit
hafa yfirvöld í Kænugarði
ekki boðið Pútín í heim-
sókn þangað.
Færanlegur kjörstaður Kosningar sem haldnar voru í austurhluta Úkraínu um helgina
þykja mjög umdeildar. Aðskilnaðarsinnar og Rússar segja niðurstöðurnar sýna vilja fólksins
en vestræn ríki segja þær ómarktækar. Fréttamenn BBC á staðnum greindu frá vafasömum
kjörstöðum, líkt og þeim sem sést hér á myndinni.
Sigurreifur Pútín Forsetinn fagnaði innlimun
Krímskaga á föstudag. Hann sagði íbúa á svæðinu
vera að snúa aftur til „móðurlandsins.“ MyndiR ReUteRS
„Putler kaput“ Í vesturhluta Úkraínu er
Pútín líkt við Hitler. Rússnesk yfirvöld hafa
hins vegar haldið því fram að fasistar hafi
tekið völdin í Úkraínu.
Drepinn í
skotbardaga
Galindo Mellado Cruz, sem var
einn af æðstu stjórnendum Zet-
as-glæpaklíkunnar í Mexíkó,
lést í skotbardaga um helgina í
Tamaulipas-héraði norðaustur-
hluta Mexíkó. Frá þessu greindi
breska ríkisútvarpið, BBC, á
mánudag. Galindo var einn af
stofnendum Zetas- mafíunnar,
sem sérhæfði sig í dreifingu og
smygli á fíkniefnum. Klofnings-
hópur innan Zetas stofnaði ný
glæpasamtök, Gulf Cartel, og
hefur verið grunnt á því góða á
milli hópanna undanfarin miss-
eri. Galindo er sagður hafa fallið,
ásamt fimm öðrum, í skotbardaga
við mexíkóskar öryggissveitir.
Að því er BBC greinir frá eru
Zetas stærstu glæpasamtök
Mexíkó og eru meðlimir hennar
þekktir fyrir hroðaleg ofbeldis-
verk.
Nakin í
borðtennis
Veitingastaður í London, sem
býður upp á borðtennis, hélt á
dögunum borðtennismót, sem
er svo sem ekki í frásögur fær-
andi nema fyrir þá staðreynd að
keppendur voru naktir. Þetta ku
vera, að sögn stofnanda staðar-
ins, sem heitir Bounce, fyrsta
borðtennismót sinnar tegundar í
Bretlandi. Sjö þátttakendur voru
fengnir til að taka þátt; fólk af
báðum kynjum. Þau eru öll fyrir-
sætur og höfðu gaman af. Stefan
Johnson, einn þeirra, sagði að
hann hefði verið feginn að kom-
ast að því að herbergið var vel
upp hitað. Fáir sem engir áhorf-
endur komust að, enda fór mótið
fram í lokuðu rými baka til. Eng-
um sögum fer af því hver vann
mótið.