Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2014, Qupperneq 28
Vikublað 13.–15. maí 201428 Lífsstíll
Bestu heilsu-
trixin í eldhúsinu
n Solla laumar hveitigrasdufti í matinn n Tobba nánast hætt að nota sykur
S
ólveig Eiríksdóttir hugsar
vel um heilsuna og það ger-
ir líka Tobba Marinósdóttir.
Blaðamaður DV grennslaðist
fyrir um helstu brögðin sem
þær beita til að lauma meiri hollustu í
mataræðið, auk þess að kynna sér al-
menn góð ráð af netinu.
„Eitt af leynitrixunum mínum er
að nota avókadó plús nokkra stevíu-
dropa plús hreint kakóduft í stað-
inn fyrir súkkulaði í krem og ýmis-
legt sætt. Síðan lauma ég hvar sem
ég get smávegis af hveitigrasdufti út í
drykki, sósur, dressingar, já bara þar
sem ég kem því við. Ég er líka dug-
leg að láta fræ spíra og nota í salöt og
sem snakk.“
Tobba hefur tekið heilsuna í gegn
á síðustu árum. Hún segist nánast
hætt að borða sykur, borðar mik-
ið af fiski og notar íslenskt bygg við
matreiðsluna. Þá byrjar hún flesta
morgna á góðum chia-graut.
„Ég er nánast hætt að nota syk-
ur til að sæta bakstur eða mat. Nota
þess í stað stevíu, döðlur, banana
eða hunang.
Íslenska byggið finnst mér
æðislegt, sérstaklega á sumrin með
góðum mat. Ég sýð þá góðan pott um
helgi og geymi byggið kalt inni í ís-
skáp út vikuna. Það má nota í grauta
eða sem meðlæti, hrært saman við
til dæmis smátt saxað kóríander,
konfekttómata og furuhnetur.
Besta heilsutrixið er þó án efa að
borða fisk þrisvar í viku. Ég hef alltaf
borðað mikinn fisk en eftir að ég varð
ólétt fékk ég þá ráðleggingu frá ljós-
móður að borða fisk þrisvar sinnum
í viku sem segir mikið til um hversu
mikilvægur hann er. Chia-fræin eru
einnig uppfull af omega-3 fitusýrum
og trefjum. Ég borða yfirleitt einn
skammt af chia-graut á dag,“
segir Tobba og gefur lesendum
uppskrift að sínum uppáhalds
chia-graut.
Chia-grautur Tobbu
n 2 msk. chia-fræ
n 1/4 saxaður frosinn banani
n 1 msk. kókosmjöl
n 3 dropar stevia
n Örlítill kanill og hálf krukka af fjörmjólk
Aðferð:
Þetta er sett í krukku. Ég nota
krukku undan kókosolíunni frá
Sollu og fylli hana með fjörmjólk til
hálfs.
Allt hráefni hrist saman og geymt
í ísskáp yfir nótt – eða að lágmarki í
eina klukkustund.
Settu ferskar
kryddjurtir í
krukkur
Notaðu ferskar
kryddjurtir til
að krydda mat-
inn. Svo sem
basilíku, mintu,
salvíu, kóríander og
steinselju. Kryddjurtirnar eru dýr-
ar og skemmast fljótt. Til að lengja
endingartímann má fjarlægja laufin
af stilkunum og geyma þau í loft-
þéttu íláti í ísskápnum. Kryddjurtirn-
ar verða að vera alveg þurrar. Svona
geta þær enst í allt að tveimur vik-
um.
Frystu þroskaða banana
Frosnir bananar eru ljúffengir á
bragðið. Þeir mildast og gefa drykkj-
um mjúka áferð. Þá er líka hægt
að útbúa hollan ís úr
frosnum banana.
Prófaðu að bæta
hrákakó saman við
frosinn banana, eða
berjum. Slíkur ís er
hreint góðgæti.
Gerðu þínar
eigin ídýfur og
salat-dressingu
Til að hafa holl-
ustugildið í há-
marki er gott ráð
að útbúa olíur og
ídýfur sjálf/ur heima.
Gerðu stóra skammta
og geymdu í ísskápnum. Prófaðu
að nota krukkuna líka í vinnslunni.
Þú getur til dæmis kreist sítrónu og
appelsínu í krukku, kryddað með
salti og pipar og hrist. Einfalt en afar
gott.
Taktu
hollustuna
með þér
Það er stað-
reynd að við
borðum það
sem er í kring-
um okkur þegar við
erum svöng. Hafðu því hollustubita
meðferðis hvert sem þú ferð. Gott
ráð er að útbúa hnetumix og geyma
í hanskahólfinu í bílnum. Hafa sal-
at í krukku eða niðurskorið græn-
meti meðferðis í vinnuna og poka af
grænu tei í töskunni.
Útbúðu morgunmatinn
á kvöldin
Morgnarnir geta verið krefjandi
og allt á ferð og flugi á heimilinu.
Þess vegna er ágætt að
bregða á það ráð að
útbúa morgunmatinn
kvöldið áður. Vinsælt
er að útbúa búðing úr
chia-fræjum og höfr-
um í krukku, bæta við
blönduna möndlumjólk og
berjum. Þá er sniðugt að vera
búinn að taka til hráefni í grænan
drykk og geyma í poka í ísskápn-
um. Eða baka heilsu múffur sem
aðeins þarf að hita um morgun-
inn.
Blómkál
er sniðugt
grænmeti
Fyrir þá sem
eru í hollustu-
átaki er blóm-
kál nauðsynlegt.
Það nýtist vel til að
þykkja súpur og sósur. Þá er hægt
að útbúa blómkálsstöppu í stað kar-
töflustöppu, það er reyndar vinsælt
meðlæti með fiski eða kjötbollum
í Svíþjóð og er næringarríkara og
auðmeltara.
Notaðu hafra
í stað hveitis
Hvítt hveiti er
mikið unnin
vara, snautt
af næringar-
efnum og inni-
heldur aðgangs-
harða prótínið glúten. Hollari kostur
er að nota hafra. Þú getur malað þá í
blandaranum eða matvinnsluvélinni
og fengið mjöl sem er ákaflega gott
að nota í hverslags bakstur, til að
mynda morgunlummurnar.
Prófaðu grænmetisnúðlur
– þær koma á óvart
Hveitinúðlur og pasta telst
vera mikið unnin vara. Það er
slímaukandi og ekki sérlega
gott fyrir meltinguna. Próf-
aðu fordómalaust grænmetis-
núðlur úr kúrbít, gulrótum
eða gúrku. Gufusoðið og saltað
kúrbítspasta með góðri ólífuolíu og
parmesanosti kemur reglulega á
óvart.
Útbúðu þína
eigin drykki
Gosdrykkir
eru á hröðu
undan-
haldi. Sykrað-
ir drykkir valda
þyngdaraukningu,
sykursýki og hjartasjúkdómum. Ef að
þig langar í ljúffengan drykk, þá tek-
ur enga stund að útbúa hann.
Helltu vatni í könnu og bland-
aðu í það því sem hugurinn girnist.
Til dæmis sítrónum, eða appelsín-
um, súraldini, mintu, engifer, gúrku,
jarðarberjum. Góð blanda er súr-
aldin, engifer og minta með ögn af
hunangi.
Taktu pásu frá mjólk
Prófaðu meiri fjölbreytni þegar kem-
ur að mjólkur afurðum. Til dæmis að
skipta út mjólk fyrir möndlu- og eða
kókosmjólk, og hnetusmjöri í stað
smjörs. Nú er hægt að fá margar
tegundir hnetusmjörs, úr möndlum,
kasjúhnetum og heslihnetum. Þetta
smjör er ljúffengt á brauð með sultu
eða sem ídýfa með eplum eða græn-
meti. n
kristjana@dv.is
Hollustan í fyrsta sæti Solla
er lunkin við að lauma hollustunni í
fæðið og Tobba er nánast hætt að
nota sykur og borðar mikið af fiski.
MyNdir SiGTryGGur Ari