Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 6
Vikublað 3.–5. júní 20146 Fréttir Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Greiddu tugmilljóna arð út úr Sinnum n Ásdís Halla seldi 24 prósent hlut til lífeyrissjóðanna Á sdís Halla Bragadóttir, fyrrver­ andi bæjarstjóri í Garðabæ, og aðrir hluthafar í heima­ þjónustunni Sinnum ehf. hafa greitt sér tæplega 42 milljóna króna arð út úr fyrirtækinu á síð­ ustu árum. Arðurinn hefur runnið niður í móðurfélagið EVU Consorti­ um ehf. Á síðustu árum hefur verið á bilinu fjögurra til tæplega 27 millj­ óna króna hagnaður á rekstri fyrir­ tækisins. Mestur var hagnaðurinn árið 2011 eða tæplega 27 milljónir og var jafnhá upphæð greidd í arð til hluthafa. Fyrirtækinu gengur því vel. Þetta kemur fram í ársreikningum fyrirtækisins síðustu ár. Tugmilljóna viðskipti Sinnum ehf. hefur verið talsvert í fréttum síðustu vikuna vegna frétta um tugmilljóna króna verkefni sem fyrirtækið hefur fengið frá Garðabæ án útboðs. Ásdís Halla er sem fyrr segir fyrrverandi bæjarstjóri í Garða­ bæ. Á síðustu tveimur árum hafa við­ skipti bæjarins við fyrirtækið numið frá tæplega 40 og upp í tæplega 50 milljónir króna á ári. Viðskiptin voru ekki boðin út en Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hefur sagt að aðeins eitt fyrirtæki sinni slíkri heimaþjón­ ustu. Ásdís Halla hefur sagt að fyrir­ tækið vinni fyrir mörg sveitarfélög og fái verkefni sín á grundvelli tilboða, stundum sé tilboðum fyrirtækis­ ins tekið og stundum ekki. 78 starfs­ menn vinna hjá Sinnum ehf. Seldu til lífeyrissjóðanna Í fyrrasumar seldu hluthafar Sinnum ehf., eignarhaldsfélagið Gekka ehf., sem er í eigu Ásdísar Höllu og annað félag sem heitir Flösin ehf., tæplega þriðjung hlutafjár til fyrirtækisins Kjölfestu en það er fjárfestingarsjóð­ ur í eigu nokkurra lífeyrissjóða. Alls var um að ræða 30 prósenta eignarhlut í móðurfélagi Sinnum ehf., Evu Consortium. Af þessum 30 prósentum seldi eignarhaldsfélag Ás­ dísar Höllu 24 prósent. Ársreikningur félags hennar, Gekku ehf., fyrir árið 2013 liggur ekki fyrir og þess vegna er ekki hægt að sjá hvað lífeyris sjóðirnir greiddu fyrir hlut í fyrirtækinu. Ljóst er hins vegar að hagnaður hefur verið af þeim viðskiptum enda er rekstur Sinnum ágætur líkt og hagnaðartölur og upphæð arðgreiðslna sýnir. Arðbærir samningar Þeim mun fleiri samninga sem Sinn­ um ehf. gerir við sveitarfélög eins og Garðabæ þeim mun meiri tekj­ ur koma inn í félagið og þeim mun verðmætara verður það. Hluthaf­ arnir geta svo eftir atvikum selt hluti í fyrirtækinu á grundvelli þeirrar veltu og þess hagnaðar sem mynd­ ast í fyrirtækinu. Eignarhaldið á fyrirtækinu í dag er þannig að félag Ásdísar Höllu á 43 prósenta hlut, fjárfestingarfélag líf­ eyrissjóðanna á 30 prósent og Flös­ in ehf. á 27 prósent. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Arðbær rekstur Rekstur Sinnum ehf. hefur verið arð­ bær en 42 milljóna króna arður hefur ratað til móður­ félags þess auk þess sem Ásdís Halla Bragadóttir seldi 24 prósenta hlut til lífeyrissjóðanna í fyrra. Eina fyrirtækið Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, hefur sagt að Sinnum ehf. sé eina fyrirtækið sem býður upp á þá þjónustu sem fyrirtækið veitir. Liðkuðu til fyrir Sinnum Sjálfstæðismenn í Reykjavík Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í velferð­ arráði Reykjavíkurborgar liðkuðu til fyrir Sinnum ehf. á fundi fyrir tæpu árið þar sem rætt var um rekstur stuðnings­ og áfanga­ heimilis á Miklubraut 18. Orðrétt sagði í bókun frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins: „Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun: Velferðarsvið leggur til að samið verði við Samhjálp um rekstur Miklubrautar 18 til næstu 3ja ára. Af fjórum aðilum er metið að reynsla Samhjálpar og Sinnum ehf. sé meiri en hinna tveggja. Hvað valið á milli Samhjálpar og Sinnum varðar er fjallað er um að ólík nálgun fyrir­ tækjanna ráði afstöðu sviðsins. Af svörum starfsmanna kemur fram að skýringin liggur í ólíku skipulagi vakta eða viðveru starfsmanna og hversu sveigjanlega fyr­ irtækin munu mæta þeim einstaklingum sem eiga erfitt með að standa í skilum. Að þessu sögðu taka fulltrúar Sjálfstæðis­ flokksins undir niðurstöðu sviðsins en vilja benda á að Samhjálp hefur áralanga reynslu í að annast og reka úrræði fyrir fólk með fíkniefnavanda og hefur ákveðið forskot á Sinnum ehf. hvað það varðar. Hins vegar er Sinnum ehf. nýtt og vaxandi fyrirtæki í velferðarþjónustu og myndi geta stuðlað að fjölbreytni í þjónustu við þá sem þurfa á velferðarþjónustu í borginni að halda en mikil fákeppni er á þeim markaði.“ Náðu að greiða starfsmönnum laun Samkeppniseftirlitð skoðar samruna 365 og Konunglega kvikmyndafélagsins Þ að er ákveðin óvissa um það,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365, aðspurður um stöð­ una á kaupum fyrirtækisins á Konunglega kvikmyndafélaginu. Samkeppniseftirlitið tók viðskiptin til skoðunar í maí eftir að greint var frá kaupunum og hefur tekið sér 120 daga til að skoða viðskiptin. „Þeir hafa tekið vel í að við gerum ákveðna hluti meðan samstarfið er til skoðunar,“ segir Ari en með því á hann við að Samkeppniseftirlitið veiti 365 og Konunglega kvikmynda­ félaginu heimild til að hefja sam­ starfið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Kaupin verða þó ekki heimiluð endanlega strax. Ari segir að Konunglega kvik­ myndafélagið hafi náð að greiða starfsmönnum sínum laun um mánaðamótin. „Þeir náðu að klára sig um mánaðamótin gagnvart sínu starfsfólki.“ Sigmar Vilhjálmsson, eigandi og framkvæmdastjóri Kon­ unglega kvikmyndafé­ lagsins, segir að til hafi verið fyrir laun­ um í félaginu um mánaðamótin. „Það er til fé í fé­ laginu,“ segir hann. Sigmar segir að Samkeppnis­ eftirlitið hafi feng­ ið tvær greinargerð­ ir um málið, aðra frá 365 og hina frá Konunglega kvik­ myndafé­ laginu. „Vonandi skýrist þetta eitthvað í dag,“ segir Sigmar en með því vísar hann til mánudagsins 2. júní. Sigmar hef­ ur sagt að fyrirtækið kunni að fara í greiðslustöðvun ef samþykkt samrunans dregst verulega hjá Samkeppniseftirlitinu. Framtíð samstarfs 365 og Konunglega kvikmyndafé­ lagsins ætti því að skýrast, í bili að minnsta kosti, í þessari viku. n ingi@dv.is Náðu að greiða laun Sigmar Vilhjálmsson segir að Konunglega kvikmyndafélagið hafi náð að greiða starfsmönnum sínum laun um mánaðamótin. Strikað yfir Júlíus 463 kjósendur Sjálfstæðis­ flokksins strikuðu Júlíus Vífil Ingvarsson, frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins, út af lista í borgarstjórnarkosningunum á laugardag. Þetta kemur fram á vef Kjarnans en alls voru út­ strikanir á lista Sjálfstæðis­ flokksins 875 og því Júlíus með rúmlega helming þeirra. 138 strikuðu yfir nafn Bjark­ ar Vilhelmsdóttur á lista Sam­ fylkingarinnar en 112 strikuðu yfir nafn Sóleyjar Tómasdóttur. 36 strikuðu yfir nafn Svein­ bjargar Birnu Sveinbjörns­ dóttur á lista Framsóknar og flugvallarvina, 14 yfir nafn Þórlaugar Ágústsdóttur hjá Pírötum og 52 strikuðu yfir nafn Ilmar Kristjánsdóttur hjá Bjartri framtíð. Íslandsmet í yfirlæti „Og þegar betur er að gáð sýn­ ist mér oddviti Framsóknar ekki komast með tærnar þar sem „góða fólkið“ hefur hælana þegar kem­ ur að ofstæki og öfgafullum við­ brögðum og fyrirlitningu gagnvart skoðunum annarra,“ skrifar sjálf­ stæðismaðurinn, Brynjar Níelsson, á bloggsíðu sína. Þar segir hann ömur legt að heyra suma frambjóð­ endur Samfylkingarinnar og Vinstri grænna tala um að Framsóknar­ flokkurinn væri ekki stjórntækur vegna afstöðu oddvitans til lóða­ úthlutunar til múslima. „Þetta er kannski ekki heimsmet í yfirlæti en að minnsta kosti Ís­ landsmet og sennilega Norður­ landamet einnig. Og þetta er mikið til sama fólkið og fannst alveg frá­ leitt að rússneska rétttrúnaðar­ kirkjan fengi lóð vegna afstöðu til samkynhneigðar og að einstaka kristnir predikarar fengju yfirhöfuð að koma til landsins vegna afstöðu sinnar til samlífs sama fólks.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.