Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Qupperneq 8
8 Fréttir Vikublað 3.–5. júní 2014 Í desember síðastliðnum hugðist Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur loka leikskólanum Efri-Björtu- hlíð í Hamrahlíð vegna ýmislegra skemmda sem börnum sem þar eru í vist stafaði hætta af. Fór svo að leikskólinn fékk frest, sem enn er í gildi. Orsök skemmdanna er rör sem sprakk og olli vatnsskemmdum. Líkt og sjá má á myndunum eru miklar rakaskemmdir í Björtuhlíð. Gert var við til bráðabirgða en síðastliðið hálft ár hafa börn verið í vist í grotnandi leikskólanum. Málning innanhúss flagnar og segist starfsmaður leikskól- ans í samtali við DV hafa komið að einu barni sem hafði stungið máln- ingarflögu upp í sig. Á öðrum stöðum eiga börn á hættu að fá í sig viðarflísar. Starfsmaður segir leikskólann anga af fúkkalykt. „Rosaleg fúkkalykt“ Starfsmaður leikskólans, sem vill ekki að nafn sitt komi fram, segir vanda- mál í tengslum við húsnæðið vera margþætt. Raunar er allur leikskólinn undirlagður af rakaskemmdum. „Það er alltaf rakalykt í húsnæðinu og það er málning í glugganum sem flagnar. Viðurinn er farinn svo börnin plokka málningu og viðarflísar. Allt lítur bara mjög subbulega út. Það sprakk rör í einum vegg og það hefur ekki verið gert við það, það sést vel á veggnum. Það eru rakaskemmdir í steypunni og það mætir manni alltaf rosaleg fúkka- lykt þegar maður kemur inn,“ segir hann. Setja upp í sig málningu Segir starfsmaðurinn að ýmsar hættur bíði barna á leikskólanum. Ber þar helst að nefna að börnin séu að borða flagnaða málningu. Segir hann það þekkt vandamál á leikskólanum að börnin stingi upp í sig málningarflög- um. „Það kom til dæmis fyrir á minni deild að ég kom að einu barnanna að stinga málningu upp í sig úr gluggan- um,“ segir hann. Auk þessa er nokkuð um það að börn fái flísar vegna skemmda. „Svo eru dyrakarmar sem eru illa farnir. Maður bíður bara alltaf eftir því að börnin fái flís. Það má segja að leikskólinn sé að grotna niður.“ Frestur rennur út sumar Í svari frá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur við fyrirspurn DV vegna málsins kemur fram að standi leikskólinn ekki við áætlun sem honum hefur verið sett verði honum lokað í lok sumars. „Eins og staðan er núna á leikskólan- um Björtuhlíð þá eru úrbótakröfur af okkar hálfu á leikskólann sem áætl- un hefur verið gerð um að fara í að lagfæra. Sumu hefur verið lokið en það sem eftir stendur hefur leik- skólinn frest fram yfir sumarlok til að ljúka,“ segir í svarinu. Samkvæmt starfsmanni Björtuhlíðar hefur lítið sem ekkert verið gert frá því að leik- skólinn fékk frest. „Það var gert eitt- hvað smávegis eins og að líma gólf- lista og skipta um læsingar á gluggum sem voru hættulegar. Leikskólinn var málaður að utan en það var bara til að gera hann vatnsheldan. Þeir settu það í forgang af því að það var svo rosa- lega illa farið,“ segir leikskólastarfs- maðurinn. Leikskólastjóri áhyggjulaus „Ég segi bara pass,“ svarar Arn- dís Bjarnadóttir, leikskóla- stjóri Björtuhlíðar, spurð um skemmdirnar og mögulega lokun Heilbrigðiseftirlitsins á leikskólanum í lok sumar. „Ég veit ekki betur en það standi til að bæta úr þessu, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu í dag. Starfsfólki og foreldrum líð- ur bara afskaplega vel og mér finnst þetta ekki vera neitt, því þetta er ekki nógu jákvæð frétt fyrir leikskólann,“ segir Arndís. Verður lagað Agnar Guðlaugsson, deildarstjóri bygginga á umhverfis- og skipulags- sviði á skrifstofu framkvæmda og viðhalds, segir í samtali við DV að verstu skemmdirnar hafi verið lag- aðar strax og til standi að laga aðrar skemmdir í sumar áður en frestur rennur út. „Við erum að vinna í því að fara í utanhússviðgerðir og glerskipti. Við fórum yfir þetta með Heilbrigðis- eftirlitinu og löguðum strax eldhúsið. Rakaskemmdirnar verða lagaðir, það verður farið í múrviðgerðir. Yfirleitt þegar svona kemur upp förum við í það strax,“ segir hann. n Leikskólabörnin borða málningu n Heilbrigðiseftirlitið frestaði lokun Efri-Björtuhlíðar Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Það má segja að leikskólinn sé að grotna niður Flísar Viður stendur út á dyrakörmum með þeim afleiðingum að leikskólabörn fá flísar. Sprungið rör Merki um vatnsskemmdir sem komu í kjölfar þess að rör sprakk. Málning plokkuð Hér hafa leikskólabörn- in plokka málningu af veggjunum. Vitað er að börnin hafi lagt sér hana til munns. „Subbulegt“ Þessi mynd sýnir salerni barnanna. Líkt og sjá má eru rakaskemmdir á veggjunum líkt og í öllum leikskólanum. Efri-Bjartahlíð Sjá má að talsverðar skemmdir eru á framhlið hússins. Samkvæmt starfsmanni leikskólans eru þó skemmdirnar alvarlegri að innan. Börn að leik Starfs- maður leikskólans segir það þekkt vanda- mál að börn borði flagnaða málningu sem og fái flísar vegna rakaskemmda. Edrú ungmenni í Reykjanesbæ Unglingar í Reykjanesbæ koma vel út úr könnunum Einung- is þrjú prósent nemenda í 10. bekk Reykjanesbæ hafa orðið ölvuð síðastliðna 30 daga, helm- ingi færri en gengur og gerist á landsvísu. Sama hlutfall nemenda í Reykjanesbæ í 10. bekk, þrjú prósent, segist hafa notað mari- júana einu sinni eða oftar um ævina, en til samanburðar hafa sex prósent nemenda á sama aldri á höfuðborgarsvæðinu notað marijúana. Þessar upplýsingar eru meðal þess sem kemur fram í rannsókn sem gerð var í ár fyrir Reykjanes- bæ af fyrirtækinu Rannsókn og greining. Gylfi Jón Gylfason fræðslu- stjóri skýrir litla vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk með góðu forvarnarstarfi, kröftugu starfi kennara innan skólanna og góðu samstarfi heimila og skóla. Hellti sér yfir farþega „Þetta er ekki framkoma sem við viljum sjá í okkar vögnum,“ seg- ir Kolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó, í sam- tali við DV.is um myndband þar sem vagnstjóri hellir sér yfir far- þega sem kvartaði yfir óstund- vísi. „Vagnstjórinn verður auð- vitað kallaður inn og rætt við hann. Málið er bara í því ferli. Þetta er ekki framkoma sem við viljum sjá í okkar starfsemi,“ segir Kolbeinn. „Þú ert ekta fyllibytta og þarft að rífast af því þú ert drukkinn,“ heyrist bílstjórinn segja við far- þegann í myndbandinu. „Ég rífst við þig líka alveg bláedrú,“ svarar farþeginn. „Þú átt að skammast þín og þegja,“ segir strætóbílstjórinn þá. Marína Gerða Bjarnadóttir deildi myndbandinu á Facebook-síðu Strætó. Í ábendingunni kemur fram að síðastliðinn miðviku- dag hafi hún verið í strætis- vagni númer 14 og orðið vitni að atburðarásinni. „Þetta var voðalega ófaglegt og enginn í þjónustustarfi ætti nokkurn tímann að bregðast svona við,“ segir Marína í póstinum en í myndbandinu heyrist rifrildi strætóbílstjórans og farþegans greinilega. Vagnstjórinn reyndi að reka manninn út úr vagninum en hann varð ekki við því. „Hvað veistu? Þú veist ekki neitt!,“ kall- ar strætóbílstjórinn á farþeg- ann. „Ég veit miklu meira en þú heldur,“ svarar farþeginn. „Þú veist ekki rassgat maður og ættir að skammast þín að láta fólk heyra svona til þín,“ segir strætóbílstjórinn. Skömmu síðar óskar strætóbílstjórinn eftir því að lög- reglan verði kvödd á vettvang til að fjarlægja manninn úr strætis- vagninum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.