Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Síða 12
Vikublað 3.–5. júní 201412 Fréttir
Bæjarstjóratíð Árna á enda
n Árna Sigfússyni langar ekki á þing n „Ætli ég hvíli mig ekki aðeins“
V
onbrigði. Þetta er kannski
algengasta orðabók stjórn-
málanna eftir kosn-
ingar. Það eru svo miklu
fleiri sem verða fyrir von-
brigðum heldur en ganga himin-
glaðir út í nóttina.“ Þetta segir Árni
Sigfússon sem lætur af störfum
bæjarstjóra í Reykjanesbæ eftir að
hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks-
ins féll á laugardaginn. Starfinu
hefur Árni gegnt í tólf ár en Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur verið við völd
í bænum tvöfalt lengur.
Í bæjarstjóratíð Árna hafa skipst
á skin og skúrir. Herinn fór með til-
heyrandi atvinnumissi, ýmis umdeild
mál komu upp tengd embættisverk-
um bæjarstjórans og margsinnis var
deilt harkalega um vægi umhverfis-
sjónarmiða og atvinnusköpunar á
Suðurnesjum. Flaggað var í hálfa
stöng við kosningamiðstöð Sjálfstæð-
isflokksins á kosninganótt en Árni
bar sig vel þegar DV heyrði í honum
hljóðið á mánudegi eftir kosningar.
Klofningsframboðið hafði áhrif
Á sunnudagsmorgni hófu Samfylk-
ingin, Bein leið og Frjálst afl við-
ræður um myndun meirihluta, en
síðastnefndi flokkurinn er klofn-
ingsframboð úr Sjálfstæðisflokkn-
um. „Ég óska þeim góðs gengis og
mun auðvitað reyna að greiða götu
þeirra eins og hægt er,“ segir Árni
sem viðurkennir að úrslit kosning-
anna hafi verið vonbrigði fyrir sig.
„Ég bjóst við fimm bæjarfulltrúum.
Ég hafði skynjað að það væri á bratt-
ann að sækja fyrir alllöngu en taldi
að okkar vinna myndi skila fimm.“
Hann telur klofningsframboðið út
úr Sjálfstæðis flokknum eina helstu
ástæðu þess að hreini meirihlutinn
féll. „Það gefur auga leið að margir
ágætir sjálfstæðismenn ákváðu að
styðja það framboð. Það hafði mest
áhrif. Hins vegar hefur margt geng-
ið á og ég gerði mér alveg grein fyrir
stöðunni,“ segir Árni.
Í aðdraganda kosninga var deilt
harkalega á verk meirihlutans í
Reykjanesbæ undanfarin ár. Fjall-
að var um skuldastöðu bæjarins, lágt
atvinnustig, sölu á eignum í bæjar-
stjóratíð Árna. Þetta og margt fleira
hefur margsinnis verið til umfjöllun-
ar í DV. „Ég hef reyndar, til að halda
heilsu, ekki legið yfir öllum netmiðl-
um og því sem sagt er. Það er mikil-
vægt, en um leið þarf maður að vita
hvernig umræðan er,“ segir Árni að-
spurður hvort hann telji harka-
lega gagnrýni hafa átt þátt í ósigri
Sjálfstæðisflokksins. „Með aukinni
notkun þessara netmiðla þar sem fólk
getur baunað út úr sér hugsunum,
nánast um leið og þær kvikna, án þess
að hugsa til hlítar hvað á að segja.
Þetta er sérstök umræða og getur ver-
ið svo hvöss. Í aðdraganda þessara
kosninga var hún það. Margt hefði
kannski betur verið látið ósagt, en
það er á ábyrgð þeirra sem það segja
og ég vil ekki gera lítið úr því fólki eða
svara því í sömu mynt,“ segir Árni en
tekur fram að hér sé hann ekki að vísa
til neins sérstaks. „Ég hef ekki sest
yfir bloggsíður einstaklinga og hinna
ýmsu miðla. Ég er ekkert inni í því.“
Stoltastur af fræðslumálunum
DV bað Árna um að útlista af hverju
hann væri stoltastur þegar hann liti
yfir bæjarstjóratíð sína. „Ég er gríðar-
lega stoltur af börnunum okkar og
uppbyggingu fræðslu- og skóla-
mála. Það er svo mikilvægt, vegna
þess vanda sem við höfum geng-
ið í gegnum hér í Reykjanesbæ, að
við menntum okkur út úr krepp-
unni,“ segir Árni og fagnar uppgangi
í skólamálum á tímabili hans sem
bæjarstjóri. Einkunnir úr samræmd-
um prófum hafa risið í Reykjanesbæ
undanfarin ár, en PISA-kannanir að
vísu ekki endurspeglað viðsnún-
inginn að fullu. Árni segir mikilvægt
að byggja upp menntun og hlúa að
fræðslumálum, og að þetta hafi tek-
ist þökk sé sterkri framtíðarsýn og
vönduðum vinnubrögðum innan
skólakerfisins.
„Við getum líka verið stolt af um-
hverfi okkar og þeim innviðum sem
við höfum byggt upp,“ segir Árni
og bætir við: „Auðvitað hafa þeir
kostað. Ég hef verið gagnrýndur
fyrir meðal annars það að fjárfesta í
þessum innviðum. En þegar samfé-
lag eins og okkar hefur lítið fjármagn
vegna lítilla skatttekna, þá er ekkert
um annað að ræða en að taka lán til
þess að fjármagna þá uppbyggingu
sem hefur verið hér í skólamálum.
Við erum með sex grunnskóla, tón-
listarskóla og tíu leikskóla. Ég er
stoltur af því að okkur hafi tekist að
byggja þetta upp.“ Árni nefnir einnig
mikilvægi fjölbreyttra atvinnuhátta,
svo sem ferðaþjónustu og þess að
öflug fyrirtæki séu löðuð að bænum.
Ekki út í landspólitíkina
„Ég vil þessu samfélagi allt hið besta.
Ég vil bara tryggja að samfélaginu
gangi áfram vel, en geri það frá öðr-
um stað,“ segir Árni. Aðspurður
hvað hann hyggist taka sér næst fyr-
ir hendur svarar hann: „Ætli ég hvíli
mig ekki aðeins. Kominn tími til.“
Ætlar hann ekki að demba sér í
landspólitíkina? „Ég hef unnið að
samfélagslegri uppbyggingu í nær-
samfélaginu alveg frá því ég kom úr
námi, bæði í Reykjavík og svo aftur í
Reykjanesbæ. Ég hef aldrei haft hug
á að sitja á þingi,“ svarar Árni og bæt-
ir við: „Einhverjir hafa haldið að það
væri gorgeir að segja þetta, en það er
ekki þannig. Mér finnst einfaldlega
þessi vettvangur svo miklu áhuga-
verðari. Árni segist telja sig geta gert
meira gagn á sveitarstjórnarstiginu
en á Alþingi. „Það þarf enginn að
hafa áhyggjur af því ég að ég fari að
reyna að taka af honum þingsætið.“ n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Árni Sigfússon Hefur
starfað sem bæjarstjóri
Reykjanesbæjar í 12 ár.
Sendibíll ársins 2014.
Hvað réð úrslitum?
Var það framúrskarandi vinnuumhverfið og sveigjanlega
flutningsrýmið? Lága eyðslan? Eða ríkulegur staðalbúnaður,
eins og til dæmis Bluetooth, olíumiðstöð og brekkuaðstoð?
Mögulega spilaði hátt endursöluverð og lág bilanatíðni líka inn í.
Nýr Ford Transit Connect er harðgerður og vinnusamur.
Komdu og prófaðu sendibíl ársins.
FORD TRANSIT
CONNECT
FR
Á 2.382.470 ÁN VSK
MEÐ DÍSILVÉL
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Transit Connect
FR
Á 2.589.641 ÁN VSK
FÁANLEGUR Í TVEIMUR LENGDUM.
FÆR FRÍTT Í STÆÐI.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
KR.
KR.
ford.is
MEÐ BENSÍNVÉL
Ford Transit Connect, EcoBoost bensín 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,6 l/100 km. CO2 losun 129 g/km. Verð með bensínvél frá 2.990.000 m/vsk.
Ford Transit Connect, 1,6TDCi dísil 75 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,4 l/100 km. CO2 losun 115 g/km. Verð með dísilvél frá 3.250.000 m/vsk.
Transit Connect með 1,6TDCi dísilvél og Start-Stop spartækni uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.