Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 14
Vikublað 3.–5. júní 201414 Fréttir Viðskipti
Keypti útgerðina til
að selja hana strax
Af með tjöruna -
á með
Aktu inn í
sumarið á
hreinum bíl!
Við erum á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Magnús Kristinsson keypti Berg-Hugin af sjálfum sér
M
agnús Kristinsson, þrota-
bú gamla Landsbanka Ís-
lands og eignarhaldsfélag
sem var í eigu skyldmenna
Magnúsar lánuðu móður-
félagi útgerðarinnar Bergs-Hugins í
Vestmannaeyjum samtals rúma tvo
milljarða króna með seljendalán-
um til eignarhaldsfélagsins Q44 ehf.
til að kaupa útgerðina. Magnús fjár-
magnaði því kaup sín á útgerðinni að
hluta til sjálfur. Í lok árs 2012 skuld-
aði Q44 ehf. honum rúman milljarð á
meðan félagið skuldaði Landsbanka
Íslands nærri 660 milljónir og öðru
félagi tæpar 400 milljónir.
Q44 ehf. er móðurfélag Bergs-
Hugins í dag, félagið sem ætlaði að
selja útgerðina í Eyjum til Síldar-
vinnslunnar í Neskaupstað áður en
Vestmannaeyjabær ákvað að höfða
dómsmál til að koma í veg fyrir
söluna. Dæmt var Vestmannaeyja-
bæ í vil í málinu í byrjun maí og féllst
Héraðsdómur Reykjavíkur þar með á
að sveitarfélagið ætti forkaupsrétt að
útgerðinni.
Nýtti sér forkaupsrétt
Alltaf hefur verið talað um viðskipt-
in með Berg-Hugin eins og Magn-
ús Kristinsson sé að selja útgerðina
sem að stofninum til er fjölskyldu-
fyrirtæki. Magnús missti hluta af
Bergi-Hugin yfir til Landsbanka Ís-
lands í kjölfar hrunsins 2008. Hann
hafði fengið lánaðar háar fjárhæð-
ir frá bankanum og tók bankinn 45
prósenta hlut af útgerðinni upp í
skuldir. Í lok árs 2011 átti Magnús 41
prósents hlut í Bergi-Hugin, Lands-
banki Íslands átti 45 prósent og
eignarhaldsfélagið RGísla ehf. átti
14 prósent – Ragnhildur Gísladótt-
ir tónlistarkona er eiginkona Birkis
Kristinssonar hálfbróður Magnúsar.
Magnús átti hins vegar forkaups-
rétt að hlutabréfum Landsbanka Ís-
lands í Bergi-Hugin. Þennan for-
kaupsrétt nýtti hann sér árið 2011
og eignaðist þar með 45 prósenta
hlut bankans í útgerðinni. Hann
eignaðist líka 14 prósenta hlut
RGísla ehf., sem í dag heitir Cappa
ehf. Þessi viðskipti eignarhaldsfé-
lagsins sem á Berg-Hugin í dag, Q44
ehf., voru öll fjármögnuð með selj-
endalánum.
Magnús ekki skráður
Athygli vekur hins vegar að í hlut-
hafaupplýsingum Q44 ehf. kemur
fram að félagið sé í eigu eignarhalds-
félags sem hét Blik ehf. árið 2012 en
heitir nú Sirkus Íslands ehf. Stjórn-
armaður Q44 ehf. er Þórarinn V.
Þórarinsson, lögmaður Magnúsar
til margra ára. Félagið Sirkus Íslands
ehf. er hins vegar ekki í eigu Magn-
úsar heldur manns sem heitir Birgir
Hermannsson. Miðað við þessar
upplýsingar þá á Magnús ekki út-
gerðina Berg-Hugin heldur annar
maður.
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hvernig stendur á þessu því alltaf er
talað um útgerðina eins og Magnús
eigi hana.
Keypt og selt strax
Staðan er því sú að fyrirtæki, sem á
endanum hlýtur að vera í eigu Magn-
úsar, keypti Berg-Hugin, meðal
annars af honum sjálfum, fyrir rúma
tvo milljarða króna árið 2012. Í lok
ágúst 2012 seldi þetta fyrirtæki, Q44
ehf., útgerðina svo til Síldarvinnsl-
unnar en héraðsdómur hefur nú
ógilt þá sölu. Eignir Bergs-Hugins
eru hins vegar miklu meira en
tveggja milljarða virði þar sem þær
voru bókfærðar á rúma fjóra millj-
arða í ársreikningi 2012.
DV greindi frá því eftir söluna
árið 2012 að Magnús hefði komið að
máli við forsvarsmenn Síldarvinnsl-
unnar og boðið þeim útgerðina til
kaups. Ekki hefur verið gefið upp
hvað Síldarvinnslan átti að greiða
fyrir útgerðina en hvað sem því líður
þá liggur nú fyrir að ekkert verður af
viðskiptunum með Berg-Hugin. Ef
Magnús hefur ætlað sér að efnast vel
á mismuninum á kaupverðinu á út-
gerðinni, rúmum tveimur milljörð-
um króna, og söluverðinu þá er ljóst
að það gengur ekki eftir, að minnsta
kosti ekki í þessari tilraun sem Hér-
aðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt.
Ætli Magnús sér að selja útgerðina
þarf hann að bjóða Eyjamönnum
hana til kaups. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Útgerðin kyrr í Eyjum Útgerð
Magnúsar Kristinssonar verður áfram í
Vestmannaeyjum nema sveitarfélagið
falli frá forkaupsrétti sínum.
Seldi sjálfur
Magnús Kristinsson
var sjálfur skráður
fyrir ríflega 40
prósenta hlut í
Bergi-Hugin en
eignarhaldsfélag
honum tengt
keypti fyrirtækið
fyrir rúma tvo
milljarða
árið 2012.
MyNd SIgtryggur ArI
2012 Q44 ehf.
kaupir 41 prósents
hlut Magnúsar
Kristinssonar, 45
prósenta hlut Lands-
banka Íslands og 14
prósenta hlut RGísla
ehf. í Bergi-Hugin.
Kaupverð er rúmir
tveir milljarðar.
30. ágúst 2012 Q44 ehf.
selur 100 prósenta hlut í Bergi-
Hugin til Síldarvinnslunnar.
6. maí 2014 Héraðsdómur
Reykjavíkur ógildir söluna á Bergi-
Hugin til Síldarvinnslunnar. Vest-
mannaeyjabær á forkaupsrétt.
Viðskiptin með Berg-Hugin
Már ætlaði að sækja um
Bjarni Benediktsson auglýsir starf seðlabankastjóra
M
ár Guðmundsson seðla-
bankastjóri lýsti því yfir í febr-
úar síðastliðinn að hann hefði
hug á að sækja aftur um starf
seðlabankastjóra ef það yrði auglýst
laust til umsóknar. Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra hefur nú aug-
lýst starfið og er umsóknarfrestur
til loka mánaðarins. Hugur Más
varðandi umsókn um starfið
liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Þegar greint var frá því í febr-
úar síðastliðnum að til stæði að
auglýsa starf Más sagði
hann í bréfi til starfs-
manna Seðlabanka
Íslands. „Ég hef áður
lýst því yfir að ég er
tilbúinn að hefja
nýtt tímabil sem
seðlabankastjóri
og sú yfirlýsing
stendur. Verði hins vegar gerðar laga-
breytingar sem fela í sér að eðli starfs-
ins breytist eða breytingar verða á
umsóknarferlinu sjálfu verð ég að
leggja nýtt mat á málið.“
Fréttin í febrúar um að til stæði
að ráðast í breytingar á lögum
um Seðlabanka Íslands var
túlkuð af sumum sem að-
ferð ríkis stjórnarinnar til að
reyna að losna við Má
úr starfi. Seðlabank-
inn undir stjórn
Más hefur alls ekki
verið samstíga
ríkisstjórninni
í
skoðunum, enda er hann sjálfstæð
stofnun, og hefur þetta stundum farið
nokkuð í taugarnar á forsvarsmönnum
ríkisstjórnarinnar og hefur Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson til dæmis sagt að
Már sé í pólitík.
Ein kenning sem fór í loftið eftir
að greint var frá því að starf Más yrði
auglýst var að sú krafa yrði gerð að
seðlabankastjóri hefði doktorsgráðu.
Sú varð hins vegar ekki raunin og
er einungis talað um háskólapróf
í hagfræði. „Umsækjendur skulu
hafa lokið háskólaprófi í hag-
fræði eða tengdum greinum og
búa yfir víðtækri reynslu og þekk-
ingu á fjármálastarfsemi og
efnahags- og peningamál-
um. Gerð er krafa um stjórn-
unarhæfileika og hæfni í
mannlegum samskipt-
um.“ n ingi@dv.is
Nýjum bílum
fjölgar
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Bílgreinasambandinu fjölgaði ný-
skráðum fólksbílum umtalsvert í
maímánuði miðað við sama tíma
í fyrra.
Nýskráðum fólksbílum fjölg-
aði í 2.155 miðað við 1.424 í fyrra,
og er það rúmlega fimmtíu pró-
senta fjölgun. Samkvæmt Özuri
Lárussyni, framkvæmdastjóra
Bílgreinasambandsins, má rekja
þessa miklu aukningu til sterkari
krónu og minnkandi verðbólgu
miðað við sama tíma í fyrra. Seg-
ir hann þetta jákvæða þróun þar
sem umferðaröryggi eykst og
mengun minnkar með nýrri bíla-
flota.
Sigurður Óli
ráðinn til Teva
Sigurður Óli Ólafsson, fyrrver-
andi forstjóri lyfjafyrirtækisins
Actavis, hefur verið ráðinn
forstjóri samheitalyfjasviðs
ísraelska lyfjafyrirtækisins Teva
Pharmaceutical Industries.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Teva, þar sem segir að
fyrirtækið sé stærsta samheita-
lyfjafyrirtæki í heimi og tíunda
stærsta lyfjafyrirtæki í heimi.
Sigurður Óli tekur við starfinu
um næstu mánaðamót en hann
var forstjóri Actavis Phamra, al-
þjóðleg sölueining samheita-
og sérlyfja Actavis. Hann lét af
störfum þar nýlega.
Teva var stofnað í Ísrael árið
1901 og er með höfuðstöðvar í
Jerúsalem, að því er fram kem-
ur í áðurnefndri tilkynningu.
Sigurður Óli verður staðsettur í
starfsstöð fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum.