Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Blaðsíða 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 3.–5. júní 2014
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu,
jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri
hversdagsins.
Uppgangur öfga í Evrópu
n Lýðhyggjan vinnur á í Evrópu n Marine Le Pen stefnir á forsetaembætti Frakklands n Geta þeir unnið saman?
athyglin verið á hinum skrautlega
Nigel Farage, með-stofnanda UKIP
(United Kingdom Independence
Party), eða Breska sjálfstæðis-
flokksins, sem er skilgreindur sem
hægrisinnaður lýðhyggjuflokkur.
Upprunalega var flokkurinn stofn-
aður til höfuð Maastricht-sáttmála
Evrópusambandsins árið 1993 og
er rúmlega tuttugu ára gamall. Nig-
el Farage hefur leitt flokkinn meira
eða minna síðan 2006 og hefur
Farage meðal annars komið hingað
til lands og þá til þess að tala gegn
Evrópusambandinu. Farage hefur
setið á Evrópuþinginu síðan 1999,
eða í fimmtán ár og hefur með
ræðumennsku sinni og „munnlegri
vélbyssuskothríð“ verið einn harð-
asti andstæðingur ESB. Til er fjöldi
myndbanda á Youtube þar sem
Farage fer mikinn í ræðustólnum.
Hann er ákafur talsmaður þess að
Bretar gangi úr Evrópusambandinu
og vill líka leggja evruna niður.
Stórsigur UKIP
UKIP vann stórsigur í kosningunum
til bæjar- og sveitarstjórna í Bret-
landi, sem og í Evrópukosningunum
sem fram fóru um daginn. Fékk
flokkurinn hátt í 28% fylgi til
Evrópuþingsins og er stærstur
bresku flokkanna á Evrópuþinginu.
Í breskum stjórnmálum hafa
Íhaldsflokkurinn og Verkamanna-
flokkurinn í raun skipst á að að hafa
völdin og þriðji flokkurinn, Frjáls-
lyndi flokkurinn, ekki haft nægi-
legan styrk til þess að hafa völdin
einn. Flokkurinn er hins vegar núna
í stjórn með Íhaldsflokknum og því
má ef til vill segja að UKIP hafi tek-
ið sér ákveðna stöðu þar sem Frjáls-
lyndi flokkurinn var áður, en sópað
til sín mun meira óánægjufylgi.
David Cameron, núverandi for-
sætisráðherra Íhaldsflokksins, hef-
ur lofað Bretum kosningum um
veru landsins í ESB eða brotthvarf
úr því, vinni flokkurinn meirihluta í
næstu kosningum, sem fram eiga að
fara á næsta ári. Það má því segja að
verulegur hiti sé í breskum stjórn-
málum varðandi Evrópumálin.
Geta þeir unnið saman?
Hvernig Nigel Farage tekst á næstu
mánuðum að spila úr þessum
mikla kosningasigri mun tíminn
leiða í ljós. Þá mun það einnig skýr-
ast hvort þeir efasemdamenn sem
nú eru komnir inn á Evrópuþing-
ið tekst að knýja fram breytingar á
sambandinu með einum eða öðr-
um hætti. Annað sem verður mjög
áhugavert að fylgjast með er hvort
þeim takist að mynda blokk eða
blokkir á Evrópuþinginu og hvern-
ig samstarf þeirra muni ganga. Nú
þegar eru uppi raddir um að þrátt
fyrir þennan mikla meðbyr verði
áhrifin kannski ekki eins mikil og
menn myndu halda. Því þrátt fyr-
ir aukinn styrk, eru þessi flokkar
enn í miklum minnihluta á Evrópu-
þinginu, þar sem hefðbundnir
hægri og kristilegir flokkar, ásamt
jafnaðarmönnum eru stærstir og
með mest áhrif. n
Varðsveitir Ungverjalands
Myndin er tekin í Búdapest, við
innvígsluathöfn 600 nýrra með-
lima í Varðsveitir Ungverjalands á
„Hetjutorginu“ í Búdapest. Þetta eru
liðsmenn Jobbik-flokksins í landinu og
minnir uppsetning óneitanlega fjölda-
samkomur í Þriðja ríkinu í Þýskalandi
á þriðja áratug síðustu aldar.
Afríkubúar
til sýnis í Ósló
Listamenn endurvekja fordómafulla fortíð Noregs
S
ýning tveggja norskra lista-
manna hefur vakið umtals-
verða athygli en gengur hún
út á að endurvekja sýningar
á Afríkubúum sem voru
vinsælar í Evrópu um aldamótin
1800/1900, svokallaðir mannlegir
dýragarðar. Báðir listamennirnir,
Mohamed Ali Fadlabi og Lars
Cuznor, eru erlendir að uppruna,
Fadlabi á rætur að rekja til Súdan
en Cuznor til Svíþjóðar. Að þeirra
sögn er markmið sýningarinn-
ar fyrst og fremst að vekja athygli á
að ímynd Norðmanna á sjálfum sér
sem fordómalausri þjóð sé röng.
Vilja listamennirnir minna á að sýn-
ing á Afríku búum hafi verið eitt vin-
sælasta skemmtiatriðið á Heimssýn-
ingunni í Ósló árið 1914.
Sú sýning, sem var nefnd Kon-
goslandsbyen eða Kongóbær, var
geysivinsæl á sínum tíma. Þar mátti
sjá áttatíu Afríkubúa af báðum kynj-
um í sínu „náttúrulega umhverfi“ og
talið er að nærri helmingur norsku
þjóðarinnar hafi gert sér ferð á sýn-
inguna á sínum tíma. Ólíkt Heims-
sýningunni fyrir hundrað árum eru
„sýningargripirnir“ nú sjálfboðalið-
ar og ekki eingöngu frá Afríku. Kald-
hæðnin er þó sú að Afríkubúarnir
fyrir hundrað árum fengu laun fyr-
ir sýninguna. Hefur hin nýja sýning
sem er í Frognerparken í úthverfi
Óslóar notið talsverða vinsælda, líkt
og forveri hennar, frá því hún opnaði
fyrir hálfum mánuði.
„Norðmenn hafa reynt að breiða
út þá hugmynd að samfélag þeirra sé
komið á það stig að kynþáttafordóm-
ar þekkist ekki, að samfélagið í heild
sinni sé mjög umburðarlynt. Það er
einfaldlega röng ímynd. Norðmenn
töldu sig vera æðri öðrum þjóðum
árið 1914 og það telja þeir sig enn
vera. Nú eru þeir æðri vegna um-
burðarlyndis,“ segir Fadlabi í sam-
tali við fréttaveituna Reuters. Segir
hann markmið sýningarinnar vera
fyrst og fremst að storka meintum
siðferðilegum yfirburðum norsku
þjóðarinnar. Hafa listamennirnir
báðir tjáð að þeir hafi fengið hótan-
ir vegna sýningarinnar hvort tveggja
frá nýnasistum og samtökum sem
berjast gegn kynþáttaníði. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Þessir flokkar
unnu á
Eftirtaldir flokkar unnu vel á í kosn-
ingunum til Evrópuþingsins. Skilgreina
má þessa flokka sem lýðhyggju- eða
þjóðernisflokka, öfga-hægri og eða
jafnvel fasista/nasistaflokka.
n Front National: 25% fylgi
n Danski þjóðarflokkurinn: 26,5%
fylgi
n UKIP: 27,5% fylgi
n Sannir Finnar: 13% fylgi
n Fimmstjörnuhreyfingin (Ítalía):
21% fylgi
n Gullin dögun (Grikkland): 9,4%. Í
þessum flokki eru yfirlýstir nýnasistar.
Leiðtogi flokksins var í fyrrahaust
handtekinn og ákærður fyrir glæpa-
starfsemi.
n Fidez (Ungverjaland): 51,5% og
Jobbik 14,7%. Báðir þessir flokkar
daðra við fasisma og hefur Jobbik
meðal annars vopnaðar sveitir innan
sinna vébanda. Liðsmenn Jobbik hafa
ráðist á sígauna og gyðinga í landinu.
n Króatar kusu í fyrsta sinn í Evrópu-
kosningum, enda landið nýjasta og
28. aðildarland ESB. Um 41% atkvæða
féllu í skaut kosningabandalagi
þriggja þjóðernissinnaðra hægri-
flokka.
Til sýnis Hér má sjá póstkort af
sýningu á Afríkubúum frá árinu 1904
í Bretlandi. Slíkar sýningar voru bæði
vinsælar og algengar í Evrópu.