Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Page 18
18 Fréttir Erlent Vikublað 3.–5. júní 2014 „Nú í dag lýkur arabíska vorinu“ n Sýrlenskir flóttamenn í Líbanon kjósa í forsetakosningum A tkvæðagreiðsla utan kjör- fundar fyrir komandi forsetakosningar í Sýr- landi hófst síðastliðinn miðvikudag. Samkvæmt fréttamiðlum í Líbanon flykktust flóttamenn að sýrlenska sendiráð- inu þar, en þriðjungur Sýrlendinga hefur flúið heimaland sitt í kjöl- far borgarastríðsins sem hófst fyrir hartnær þremur árum. Meirihluti þeirra býr nú í nærliggjandi lönd- um. Hafa andstæðingar Assads, núverandi forseta, sagt brögð vera í tafli í kosningunum og hafa heitið því að sniðganga þær. Standa Sýrlendingar frammi fyrir vali á milli þriggja frambjóð- enda, en forsetakosningarnar eru þær fyrstu í fjörutíu ár þar sem kjósendur hafa val um fleiri en einn frambjóðandi. Tuttugu og fjórir sóttust eftir að bjóða sig fram en aðeins þrír komust í gegn- um mjög stranga síun, sem meðal annars krefst stuðnings þrjátíu og fimm þingmanna. Núverandi þing samanstendur af tveimur fylking- um, en er það aðeins í orði þar sem flokkur Assads, Baathistar, ræð- ur lofum og lögum. Auk þessa get- ur aðeins brot Sýrlendinga kosið, þar sem engar kosningar fara fram á því svæði sem uppreisnar- menn stjórna, og langflestir flótta- menn eiga þess ekki kost að kjósa. Fátt bendir því til annars en kosn- ingarnar séu leiksýning ein. Handbendi í mótframboði Mótframbjóðendur Assads eru tveir og bendir allt til þess að um sé að ræða leppa til að gefa kosningunum ímynd lögmætis. Annar þeirra, Maher Hajjar, er einn fimm stjórnarandstöðuþingmanna á sýrlenska þinginu. Hann hefur starfað innan sýrlenska kommún- istaflokksins um árabil og komst inn á þing í kosningum árið 2012. Sé það haft í huga að nauðsyn- legt er að hafa stuðning þrjátíu og fimm þingmanna til bjóða sig fram til forseta er ljóst að hann býður sig fram í leyfi stjórnarinnar. Hefur hans eigin flokkur afneitað honum eftir að hann bauð sig fram og sagt hann bjóða sig fram sem einstak- ling en ekki fulltrúa flokksins. Hinn andstæður Assads í forsetakosn- ingum er Hassan al-Nouri. Sá var ráðherra í ríkisstjórn Assads á ár- unum 2000 til 2002 og virðist vera innmúraður bandamaður forset- ans. Múgæsing í utankjörfundarkosningu Líbanska dagblaði The Daily Star greindi frá rafmögnuðu andrúms- lofti sem myndaðist síðastliðinn miðvikudag er þúsundir fylgis- manna Assads flykktust að sýr- lenska sendiráðinu til að kjósa sinn mann. Voru heilu rúturnar sendar á kjörstað með þeim afleiðingum að umferð lamaðist í Beirút. Rút- urnar voru merktar í bak og fyrir með myndum af Assad og fána Hezbollah-samtakanna. Þau sam- tök, sem gjarnan hafa verið kennd við hryðjuverk og eru sem ríki inn- an ríkis í Líbanon, eru einn helsti stuðningsaðili Assads í nærliggj- andi löndum. Sýrlenskir þjóð- söngvar ómuðu úr bílum og börn sungu lög með línum á borð við „landið okkar stendur með þér; Assad er okkar forseti“. Svo var að heyra af flestum viðmælendum The Daily Star að þeir væru komnir til að kjósa Assad. „Nú í dag lýkur arabíska vorinu, í dag lýkur þessari bandarísku tilraun,“ sagði Mo- hammad Jamous, flóttamaður sem hefur búsetu í Suður-Líbanon, í samtali við blaðið rétt áður en hann steig upp í rútu á leið á kjörstað. Varð múgæsingin svo mikil að kjós- endur reyndu að ráðast inn í sendi- ráðið til kjósa. Þurfti að kalla til líbanska herinn til að stilla til friðar. Segir Hezbollah hóta flóttamönnum Bak við þessi sterku viðbrögð er þó ekki allt sem sýnist samkvæmt The Daily Star. Einn Sýrlending- anna sem blaðið ræddi við sagði að helsta ástæðan fyrir þátttöku sinni í kosningunum væri að hann óttað- ist að hann fengi ekki að snúa aft- ur heim skyldi forsetinn hafa betur í borgarastríðinu. „Ég er hræddur við að þeir setji mig á svartan lista og ég fái aldrei að koma aftur heim til fjölskyldu minnar,“ segði mað- urinn. Michel Kilo, talsmaður Sýr- lenska þjóðarráðsins, hefur viðrað svipaða gagnrýni á kosningarn- ar. Heldur hann því fram hótanir og þvinganir Hezbollah-samtak- anna skýri mikla þátttöku flótta- manna í forsetakosningunum. „Við höfum heimildir fyrir því að Hezbollah hafi hótað að sprengja flóttamannabúðirnar í Líbanon ef þeir kjósa ekki. Það er engin hefð fyrir því að Sýrlendingar kjósi með svo kröftugum hætti,“ segir Kilo í samtali við The Daily Star. Kosn- ingaþátttaka í Jórdaníu rennir nokkrum stoðum undir þessa kenningu Kilos. Fjöldi sýrlenskra flóttamanna þar er svipaður og í Líbanon en utankjörstaðarkosn- ingar þar einkenndust fremur af mótmælum en stuðningsyfirlýs- ingum. n Frambjóðendur Sýrlendingar hafa val á milli þessara þriggja manna í forsetakosningum. Fátt bendir til annars en mótframbjóðendur Assads séu leiksoppar hans. Al-Nouri er til vinstri en Hajjar til hægri. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Margmenni Skjáskot sem sýnir kjósendur flykkjast að sýrlenska sendiráðinu í Líbanon. Rútur fluttu Sýrlendinga úr flóttamannabúðum að sendiráðinu. „Landið okkar stendur með þér; Assad er okkar forseti. Var í haldi í fimm ár Bandarískur hermaður, Bowe Bergdahl, er á heimleið eftir að hafa verið í haldi talibana frá árinu 2009. Bergdahl hvarf sporlaust þann 30. júní 2009 í suðausturhluta Afganistans en fljótlega kom í ljós að hann hafði verið handsamaður af talibön- um. Talið er að honum hafi verið veitt frelsi eftir að Bandaríkja- menn féllust á að leysa fimm fanga úr haldi úr Guantamo- fangabúðunum. Washington Post greinir frá því að ástand hans sé gott en hann sé nú undir eftirliti lækna. Að sögn blaðsins tilkynnti sjálfur Barack Obama Bandaríkjaforseti foreldrum Bergdahls frá því að honum hefði verið sleppt úr haldi. Spánarkon- ungur sest í helgan stein Jóhann Karl Spánarkonungur hefur ákveðið að afsala sér krúnunni eftir að hafa verið við völd frá árinu 1975. Forsætisráð- herra landsins, Mariano Rajoy, tilkynnti þetta á mánudag. Son- ur Jóhanns Karls, Filippus krón- prins, mun taka við krúnunni. Jóhann Karl hefur lengst af ver- ið óumdeildur á Spáni þó vin- sældir hans hafi dalað í kjölfar efnahagserfiðleika landsins á undanförnum árum. Þannig var greint frá því árið 2012 að hann hafi verið í veiðiferð í Botsvana um svipað leyti og allt var í kaldakoli heima fyrir vegna yfir- vofandi þjóðargjaldþrots. Talið er að ástæðan fyrir því að hann afsalar sér krúnunni nú sé tengd heilsu hans sem hefur hrakað undanfarin ár. Tunnusprengjur bana þúsundum Fullyrt er að um tvö þúsund manns hafi fallið í loftárásum sýr- lenska stjórnarhersins í borginni Aleppo á þessu ári. Þetta segja samtökin Syrian Observatory for Human Rights. Stjórnarherinn hefur notað svokallaðar tunnu- sprengjur gegn uppreisnarmönn- um í borginni. Sprengjurnar eru þannig úr garði gerðar að stálflís- um og öðru lauslegu er komið fyrir í tunnum sem eru auk þess fullar af sprengiefni. Sprengjurn- ar valda miklum skaða. Samtök- in fullyrða að af þessum tvö þús- und sem hafi fallið séu fjölmargir óbreyttir borgarar, þar á meðal 283 konur og 567 börn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.