Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Qupperneq 24
24 Neytendur Vikublað 3.–5. júní 2014
Fékk ekki afsökunarbeiðni frá bankanum
Gróa fékk sér lögfræðing í deilu við Landsbankann
É
g vildi auðvitað að Landsbank-
inn bæði mig afsökunar á þess-
um ummælum, en þeir gerðu
það ekki. Þeir telja sig örugg-
lega ekki hafa gert neitt rangt,“ segir
Gróa Hávarðardóttir sem Lands-
bankinn sækir nú á vegna þess að
hún var ábyrgðarmaður á láni hjá
dóttur sinni. Eins og kom fram í
ítarlegri umfjöllun um málið í DV á
dögunum þá leitaði dóttir hennar til
umboðsmanns skuldara vegna láns-
ins sem Gróa og önnur dóttir hennar
voru ábyrgðarmenn á. Dóttirin fékk
farsæla lausn sinna mála og skuld
sína fellda niður. Þegar afgreiðslu
hennar máls var lokið hjá embættinu
ákvað Landsbankinn að ganga að
ábyrgðarmönnum lánsins og krafði
mæðgurnar um samtals 1,6 millj-
ónir króna. Gróa, sem er öryrki og
háð bifreið sinni til að komast á milli
staða, fékk þau skilaboð frá bankan-
um eftir greiðslumat vegna skuldar-
innar að hún ætti bara að selja bíl-
inn sinn upp í skuldina. Talsmaður
Landsbankans viðurkenndi að slík
krafa stæðist ekki starfsreglur bank-
ans.
DV hafði samband við Gróu á ný
til að athuga hvernig málin stæðu
nú. Gróa segir að starfsmaður bank-
ans hafi haft samband við hana eft-
ir að greinin birtist. Bankinn hafi gert
henni ákveðið tilboð og lagt fram
samning um endurgreiðslu vegna
ábyrgðarinnar.
„Ég er reyndar ekki búin að sam-
þykkja þetta því ég fékk mér lög-
fræðing. Ekki það að ég ætli að koma
mér undan því að borga enda reikna
ég fastlega með að borga þetta, ég
ætla ekki að láta þetta fara í ein-
hverja vitleysu. Lögfræðingurinn
vildi skoða þetta betur áður en ég
gerði eitthvað meira,“ segir Gróa.
Hún bíður enn eftir afsökunarbeiðn-
inni sem hún hefði viljað fá vegna
ummæla starfsmanns bankans. „Það
er alveg greinilegt að það hefur ver-
ið kastað til höndunum við þetta
greiðslumat og þeim verið alveg
sama hvernig þetta var gert. Vinnu-
brögðin voru bara ekki í lagi og þetta
sagði ég þeim. Sjálfsagt taka þeir það
til athugunar, þeir láta ekki hanka sig
á þessu aftur.“ n
mikael@dv.is
Gróa og bíllinn Fjármálastofnanir geta
gengið að ábyrgðarmönnum lána þrátt fyrir
að lántakendur hafi fengið skuldaleiðréttingu
hjá umboðsmanni skuldara. Mynd SiGtryGGur Ari
Njóttu í hófi
Það er fátt betra en góður kaffibolli
en öllu má ofgera með óhófi. Kaffi
inniheldur nefnilega mikið magn af
koffíni frá náttúrunnar hendi sem fólk
þarf að gæta sín á. Þannig er ekki mælt
með því að fullorðin meðalmanneskja
neyti meira en fjögurra bolla af kaffi
á sólarhring. Er þá miðað við að einn
bolli sé 200 millilítrar en einn slíkur
inniheldur um 100 milligrömm af koffíni.
Ef koffíns er neytt í of miklu magni getur
það haft ýmis óæskileg áhrif á heilsu og
líðan fólks og valdið höfuðverk, svima,
skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartrufl-
unum og kvíðatilfinningu. Fólk er þó
misviðkvæmt fyrir áhrifum koffíns.
Ó
dýrasti bollinn af einföldum
latté í miðborg Reykjavíkur
fæst á Prikinu í Bankastræti.
Þetta leiðir verðkönnun DV
á þremur vinsælum kaffi-
drykkjum á átján kaffihúsum og
veitingastöðum í miðborginni í
ljós. Heilum 170 krónum munar á
ódýrasta og dýrasta bollanum af ein-
földum latté. Súfistinn bókakaffi á
Laugavegi er dýrasti staðurinn í öll-
um flokkum.
Mikið framboð
Í könnuninni fór blaðamaður á milli
staða og tók niður verð á þremur vin-
sælum kaffidrykkjum. Verð miðast
við uppgefið og auglýst verð á hverj-
um stað. Ýmist af matseðlum eða til-
kynningatöflum við afgreiðsluborð.
Verð miðast við einfaldan drykk af
latté, cappuccino og americano.
Ekki er tekin afstaða til gæða, bragðs
eða þjónustu á hverjum stað heldur
aðeins rýnt í verð. Þótt könnunin sé
umfangsmikil þá er miðbær Reykja-
víkur, eins og kannski margir vita,
smekkfullur af kaffihúsum og hægt
að fá bolla víða. Þessi könnun er því
kannski ekki tæmandi en hún gefur
mjög góða yfirsýn yfir framboð og
verðlag í 101 Reykjavík þar sem svo
margir tylla sér niður og fá sér kaffi
við hin ýmsu tækifæri.
Kaffiborgin reykjavík
Reykjavík komst í mars síðastliðn-
um á lista ferðasíðu CNN yfir átta
bestu kaffiborgir í heimi. Á listan-
um voru borgir eins og Vínarborg,
Róm og Seattle en þær eiga það all-
ar sameiginlegt að þar geta ferða-
langar gengið að því sem vísu að
fá frábæran kaffibolla. CNN sagði
Íslendinga vera þjóð sem er óð í kaffi
líkt og aðrir Norðurlandabúar og að
mikil kaffivakning hafi orðið meðal
Íslendinga síðastliðinn aldarfjórð-
ung. Íslendingar drekki mikið af
uppáhelltu kaffi heima fyrir en fari á
kaffihús til að fá sér espresso-drykki.
Þeirra vinsælastir séu einmitt latté
og cappuccino.
Vakti það athygli CNN að engar
alþjóðlegar kaffihúsakeðjur væri að
finna á Íslandi og því hefðu minni
kaffihús náð að blómstra víða í
borginni. Kaffitár og Te og kaffi eru
það næsta sem við komumst að eiga
kaffihúsakeðjur, en víða erlendis
hafa keðjur eins og Starbucks tekið
yfir markaðinn.
Súfistinn alltaf dýrastur
Sem fyrr segir er ódýrasti latté-boll-
inn í miðbænum á 400 krónur á Prik-
inu. Dýrastur er hann á Súfistanum
í Máli og menningu þar sem bollinn
kostar 570 krónur. Þannig munar 170
krónum, eða 42 prósentum, á þess-
um tveimur stöðum.
Þegar cappuccino-bollinn er
skoðaður er hann einnig ódýrastur
á Prikinu á 390 krónur og aftur
dýrastur á Súfistanum á 560 krón-
ur. Aftur munar 170 krónum á verði
milli staða.
Á Iðu bókakaffi við Vesturgötu 2a,
færðu ódýrasta americano-bollann í
úttekt DV. Hann kostar 380 krónur en
enn eina ferðina á Súfistinn dýrasta
bollann þar sem americano-bollinn
kostar 500 krónur.
Einsleitt og
einkennilegt verð
Þegar litið er yfir sviðið
í úttekt DV þá sér mað-
ur strax að verð á kaffi
er afar einsleitt í mið-
bænum. Algengt verð
á einföldum latté er
450–500 krónur. Sömu
sögu er að segja með
cappuccino en víðast
hvar er americano
ódýrari en hinir tveir
enda aðeins sam-
settur úr espresso-
skoti og heitu vatni.
Lítið samræmi
virðist þó í því hversu
mikið ódýrari americano er
samanborið við hina drykkina á
hverjum stað. Einn staður sker sig
þó úr hvað þetta varðar en það er
Mokka á Skólavörðustíg. Þar kostar
americano 610 krónur og er 110
krónum dýrari en bæði latté og
cappuccino. n
í kaffiborginni
Þetta kostar bollinn
n Ódýrasti bollinn í miðbænum á Prikinu n Súfistinn með dýrasta kaffið
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Café Haíti
Geirsgötu 7b
n Latté: 490
n Cappuccino: 490
n Americano: 450
Te og kaffi
Aðalstræti
n Latté: 495
n Cappuccino: 475
n Americano: 415
Stofan Café
Aðalstræti 7
n Latté : 560
n Cappuccino: 500
n Americano: 470