Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Qupperneq 27
Lífsstíll 27Vikublað 3.–5. júní 2014
Dýrustu
heimili heims
27 hæða heimili
– 115 milljarðar kr.
Indverski milljarðamæringurinn Mukesh
Ambani á dýrasta heimili heims. Byggingin
heitir Antilia og er staðsett í Mumbai á
Indlandi. Skýjakljúfurinn er 27 hæðir, 400.000
fermetrar og er metinn á meira en 115
milljarða króna. Auðæfi Mukesh eru metin á
2.700 milljarða. Á meðal þess sem „heimilið“
hefur að geyma eru sex bílakjallarar, þrír
þyrlupallar, heilsugæsla og þar eru um 600
starfsmenn. Langdýrasta heimili veraldar.
Byggt fyrir hjákonu
– 85 milljarðar kr.
Sagan segir að Villa Leopolda í Frakklandi hafi
verið byggð af Leopold II konungi Belgíu fyrir
eina af mörgum hjákonu hans. Lily Safra er
núverandi eigandi en auðæfi hennar eru metin
á litlu meira en virði hússins eða 150 milljarða
króna. Húsið var metið á 85 milljarða árið
2008 þegar rússneski milljarðamæringurinn
Mikhail Prokhorov reyndi að kaupa það. Hann
hætti við að lokum þrátt fyrir að hafa greitt 50
milljónir evra í forkaupsrétt sem hann tapaði.
Roman býr vel
– 15,9 milljarðar kr.
Roman Abramovich, eigandi Lundúnaliðsins
Chelsea, á villu í hinu fræga hverfi Kensington
Palace Gardens við „Milljarðaveginn“. Roman
undirbýr byggingu stórrar viðbyggingar
neðanjarðar. Hún mun hýsa tennisvöll,
heilsugæslu og bílasafn. Áætlanirnar hafa
verið samþykktar af borgaryfirvöldum. Auðæfi
Romans eru metin á um 1.050 milljarða króna.
Keypti fjögur hús og reif eitt – 14,7 milljarðar kr.
Ken Griffin keypti draumahúsið á 14,7 milljarða króna árið 2012 – Blossom-setrið við Palm
Beach í Bandaríkjunum. Setrið samanstóð af fjórum húsum en Griffin lét rífa eitt þeirra.
Griffin eignaðist auðæfi sín í gegnum vogunarsjóð en þau eru metin á um 600 milljarða.
39 baðherbergi – 28 milljarðar kr. Fair Field-setrið í Saga-
ponack í New York-fylki státar af 29 svefnherbergjum og hvorki fleiri né færri en 39 baðherbergj-
um. Það er viðskiptaauðjöfurinn umdeildi Ira Rennert sem á setrið en auðæfi hans eru metin á
um 678 milljarða króna. Á svæðinu eru þrjár sundlaugar og orkuver fyrir setrið eingöngu.
Hús fyrir soninn – 25 milljarðar kr. Indverski stáljarlinn Lakshimi
Mittal keypti villuna góðu handa syni sínum árið 2008. Hann borgaði þá rúmlega 25 milljarða
króna fyrir eignina og glæsilegu garðana sem henni fylgja. Setrið er staðsett á „Milljarðavegin-
um“ í Kensington Palace Gardens nærri Lundúnum þar sem öryggisgæsla er gríðarleg. Engar
myndir eru til innan úr húsinu sjálfu. Auðæfi Mittal eru metin á kringum 1.900 milljarða.
Dýrasta íbúð í heimi
– 27 milljarðar kr.
Penthouse-íbúðin í One Hyde Park í
Lundúnum er dýrasta íbúð heims. Hún er í
eigu óþekkts milljarðamærings frá
Austur-Evrópu. Íbúðin var keypt í maí 2014
en fyrra met átti íbúð í sama hverfi sem
seldist á 25 milljarða árið 2011.
Hátæknisetur Bills
Gates – 13,5 milljarðar kr.
Næstríkasti maður heims, Bill Gates, á
glæsisetur í Seattle í Bandaríkjunum. Þar er
að finna nýjustu tækni. Hvort sem er í sund-
lauginni sem er með sérstakt vatnahljóð-
kerfi eða í 2.500 fermetra líkamsræktarsaln-
um. Þá er Bill einnig með sitt eigið bókasafn
þar sem lestrarrýmið er hvelfing. Auðæfi
Bills eru metin á 8.750 milljarða króna.
Næstdýrasta íbúð
heims – 25 milljarðar kr.
Þegar Rinat Ahkmetov keypti íbúð sína í
One Hyde Park í London árið 2011 á tæpa 25
milljarða króna var hún dýrasta íbúð heims.
Ekki nema 25.000 fermetrar og með skot-
heldu gleri. Full hótelþjónusta er í húsinu
allan sólarhringinn en auðæfi Ahkmetov eru
metin á um 1.300 milljarða króna.
Japanska
sveitasetrið í Kaliforníu
– 8,3 milljarðar kr.
Ellison-setrið í Woodside í Kaliforníufylki í
Bandaríkjunum er byggt í japönskum stíl að
hluta en einnig eins og sveitasetur. Eigandinn,
Larry Ellison stofnandi og eigandi Oracle-
tæknirisans, á gríðarlegan fjölda fasteigna
um allan heim. Setrið var byggt árið 2004 og
er samsett úr tíu byggingum og er við vatn
sem búið var til í framkvæmdunum. Auðæfi
Elllison eru metin á 5.800 milljarða króna.
n listi Forbes fyrir árið 2014 birtur n Antilia í mumbai á indlandi ber af