Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2014, Síða 30
Vikublað 3.–5. júní 201430 Sport E nski landsliðsmaðurinn Rickie Lambert varð á mánudag nýjasti liðs maður Liverpool. Fyrir fjórum árum, þegar Lambert var 28 ára, lék hann í þriðju efstu deild Eng­ lands og virtist fátt benda til þess að þarna væri á ferð leikmaður sem ætti eftir að spila á HM og fyrir eitt allra sterkasta félagslið Bretlandseyja. Breska blaðið Daily Mail fór yfir magnaða sögu Rickies Lambert á dögunum. Alinn upp hjá Liverpool Það má í raun segja að Lambert sé að fara aftur heim því hann er alinn upp í akademíu Liverpool þar sem hann var frá 10 ára aldri þar til hann var 15 ára. Hann var ekki talinn eiga mikla framtíð fyrir sér hjá Liverpool og fór svo að hann var látinn fara frá félaginu. „Mér var beinlínis sagt að ég væri ekki nógu góður, sem var augljóslega erfitt fyrir mig,“ sagði Lambert í viðtali fyrr á þessu tímabili. „Fyrir mér var þetta heimsendir. Núna veit ég – og get sagt ungum knattspyrnumönnum í sömu spor­ um – að það er það alls ekki.“ Skrúfaði tappa á krukkur Þrátt fyrir þessi orð Lamberts virtist hann vera lengi að jafna sig á áfall­ inu. Hann fékk þó samning hjá Blackpool árið 1998 þar sem hann var til 18 ára aldurs. Hann fékk afar fá tækifæri hjá liðinu, lék mest­ megnis með yngri liðum félagsins, og var loks látinn fara árið 2000. Á þessum þremur árum spilaði hann einungis þrjá leiki fyrir aðalliðið og benti flest til þess að Lambert hefði sungið sitt síðasta sem atvinnumað­ ur í knattspyrnu. Eftir að hafa verið leystur undan samningi fékk hann vinnu við að skrúfa tappa á rauðrófu­ krukkur í verksmiðju. Nokkrum mánuðum síðar fékk hann að æfa með Macclesfield í neðri deildum Englands sem hann gerði samhliða verksmiðjustarfinu. Vildi bara spila fótbolta „Eftir að ég fór frá Blackpool kom tímabil þar sem ég var án félags. Ég var ekki samningsbundinn og fékk þar af leiðandi ekki greitt í fjóra eða fimm mánuði. Þetta var mjög erfiður tími. Ég velti því mikið fyrir mér hvað ég gæti tekið mér fyrir hendur ef ég yrði ekki knattspyrnumaður. En stað­ reyndin var sú að ég vildi ekki gera neitt annað en spila fótbolta,“ sagði Lambert. Hjá Macclesfield má segja að ferill Lamberts hafi farið af stað fyrir alvöru. Hann samdi við félagið, sem þá var í fjórðu efstu deild Eng­ lands, árið 2001, en þá var Lambert 19 ára. Hann lék mestmegnis á miðj­ unni og í 49 leikjum skoraði hann 10 mörk. Bæting ár frá ári Frammistaða hans með Macclesfield vakti athygli Stockport og árið 2002, eftir eitt tímabil með Macclesfield, var hann keyptur fyrir 300 þúsund pund. Á þeim tíma spilaði Stockport í þriðju efstu deild Englands. Þótt skrefið fram á við hafi ekki verið stórt nýtti Lambert tækifærið fullkomlega hjá félaginu. Hann varð fastamaður í byrjunarliði Stockport og var látinn spila á miðjum vellinum. Hann skor­ aði 2 mörk á sínu fyrsta tímabili þegar félagið komst upp um deild, 12 mörk á öðru en 4 mörk á því þriðja. Eftir þrjú tímabil yfirgaf Lambert félagið á frjálsri sölu og samdi við Rochdale í fjórðu efstu deild Eng­ lands. Stjórinn, Steve Parkin, taldi að kraftar Lamberts myndu best nýt­ ast fremst á vellinum og færði hann því af miðjunni. Á þessum tíma, árið 2004, var Lambert 23 ára og myndaði hann ógnarsterkt sóknar­ par með Grant Holt, sem síðar átti eftir að gera garðinn frægan í úr­ valsdeildinni með Norwich. Saman skoruðu þeir 27 mörk í þeim 24 leikj­ um sem þeir léku saman. Lambert lék með Rochdale í tvö tímabil, en rétt eftir að leiktíðin 2006/2007 hófst var hann seldur til Bristol Rovers fyr­ ir 200 þúsund pund. Bristol lék þá í sömu deild og Rochdale en var mun hærra skrifað. Þetta tímabil skoraði Lambert 10 mörk í öllum keppnum og tryggði liðið sér sæti í þriðju efstu deild. Á sínu öðru tímabili skoraði Lambert 19 mörk og á sínu þriðja, 2008/2009, bætti hann um betur og skorað 29 mörk. Rickie Lambert virt­ ist vera að slá í gegn. Sagt að grenna sig Þegar tímabilið 2009/2010 var nýhafið gerði Southampton til­ boð í Lambert sem reyndist forsvarsmönnum Bristol erfitt að hafna. Southampton var þá í þriðju efstu deild Englands og hljóðaði til­ boðið upp á milljón pund. Á þeim tíma var Alan Pardew stjóri félagsins en áður en kaupin gengu í gegn setti Pardew það sem skilyrði að Lamb­ ert kæmi sér í betra líkamlegt stand. „Ég var of þungur. Ég hugsaði ekki nógu vel um mig eins og ég hefði átt að gera,“ viðurkenndi Lambert fyrr í vetur. Það er óhætt að segja að hann hafi tekið þessu heilræði. Á sínu fyrsta tímabili með Southampton skoraði hann 36 mörk í 58 leikjum. Það dugði þó ekki til að koma liðinu upp. Tímabilið 2010/2011 skorað hann 21 mark í 52 leikjum en þá komst Southampton upp í Champ­ ionship­deildina. Eftir eitt tímabil þar, þar sem Lambert skorað 31 mark í 48 leikjum, fór Southampton rakleiðis upp í úrvalsdeildina. Þar hefur Lambert leikið núna undan­ farin tvö tímabil og vakið athygli fyr­ ir vaska framgöngu sína á vellinum. Í heildina hefur hann skorað 28 úr­ valsdeildarmörk í 75 leikjum og 117 mörk í 235 leikjum í það heila fyrir Southampton. Þessi stóri og stæði­ legi framherji býr yfir miklum gæð­ um, en það sem vakið hefur einna mesta athygli er spyrnugeta hans. Hann er þekktur fyrir að skora úr aukaspyrnum og þá hefur hann tek­ ið 34 vítaspyrnur fyrir Southampton og skorað úr þeim öllum. Landsliðsmark með fyrstu snertingu Þann 8. ágúst 2013 var Lambert kall­ aður í landsliðshóp Englendinga í fyrsta sinn fyrir vináttuleik gegn Skotum. Þennan sama dag eignaðist eiginkona hans þeirra þriðja barn. Sex dögum síðar skoraði Lambert mark með sinni fyrstu snertingu í sínum fyrsta landsleik þegar hann skallaði knöttinn í netið eftir að hafa verið á vellinum í tvær mínútur og 43 sekúndur. „Mig hefur dreymt um þetta alla ævi. Þetta hefur svo mikla þýðingu fyrir mig,“ sagði hann í viðtali og bætti við: „Mér er alveg sama þó fólk tali um tíma minn í rauðrófuverksmiðjunni – hann sýn­ ir hversu mikið ég hef lagt á mig.“ Talið er að Liverpool muni greiða fjórar milljónir punda, 760 milljón­ ir króna, fyrir Lambert. Upphæðin gæti þó hækkað samhliða leika­ fjölda, skoruðum mörkum og fleiri þáttum. Ljóst er að hörð samkeppni bíður Lamberts en fyrir í Liverpool­ liðinu eru Daniel Sturridge og Luis Suarez – tveir af allra bestu fram­ herjum ensku úrvalsdeildarinnar. n Þótti of slakur fyrir Liverpool n Ótrúlegt ævintýri Rickies Lamberts n Á leið til Liverpool n Vann við að skrúfa tappa á krukkur Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Ungur að árum Hér má sjá Rickie Lamb- ert í Liverpool-búningnum. Sautján árum eftir að hann yfirgaf félagið er Lambert á heimleið. Tölfræði Lamberts Ár Félag Leikir Mörk 1998–2000 Blackpool 3 0 2000–2002 Macclesfield 49 10 2002–2004 Stockport 110 19 2004–2006 Rochdale 68 28 2006–2009 Bristol Rovers 155 59 2009–2014 Southampton 235 117 2013– Enska landsliðið 4 2 Magnaður Rickie Lambert er frábær leikmaður sem hefur alla burði til að gera gott Liverpool-lið enn betra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.