Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Qupperneq 12
12 Fréttir Helgarblað 4.–7. júlí 2014
Flutningurinn klassískt
dæmi um byggðastefnu
Á
ætlaður flutningur höfuð-
stöðva Fiskistofu frá Hafnar-
firði til Akureyrar er klass-
ískt dæmi um byggðastefnu
Framsóknarflokksins, miðað
við upplýsingar DV um ástæðurnar
fyrir flutningnum. Í vikunni hafa far-
ið í gang vangaveltur um hvort aðr-
ar ástæður kunni að vera á bak við
þá ákvörðun Sigurður Inga Jóhanns-
sonar, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, að flytja höfuðstöðvar
Fiskistofu til Akureyrar.
Vangavelturnar ganga meðal
annars út á það hvort Fiskistofa hefði
stigið á tærnar á einhverjum valda-
miklum og fjársterkum aðilum í sjáv-
arútvegi sem eru með góð tengsl inn
í ríkisstjórnina. Viðmælendur DV
eru hins vegar á því að svo sé ekki.
Ekkert mál, eitt eða fleiri, hafi komið
upp þar sem eitthvert sjávarútvegs-
fyrirtæki eða útgerðarmaður gæti átt
harma að hefna gagnvart Fiskistofu
eða starfsmönnum stofnunarinnar.
Ákvörðunin um flutninginn tekin
Miðað við orð Sigurðar Inga Jó-
hannssonar, um ástæðurnar sem
liggja að baki flutningi Fiskistofu,
í Morgunblaðinu var ákvörðun-
in um flutninginn tekin á forsend-
um byggðastefnu og án þess að hún
væri ígrunduð svo miklu nemi. Orð-
rétt sagði Sigurður Ingi við Moggann:
„Næstu tvo mánuði munum við kort-
leggja hvernig hægt verður að fram-
kvæma þetta með skynsömum hætti
fyrir bæði starfsfólk og stofnun.“
Meðal þess sem kann að felast í
orðum Sigurðar Inga er hvort flutn-
ingur Fiskistofu standist lög eða ekki
og hvort hann þurfi að verða sér úti
um heimild fyrir flutningnum til að
af honum megi verða. Hafsteinn Þór
Hauksson, lektor í lögfræði við Há-
skóla Íslands, telur til dæmis nokk-
uð ljóst að ekki sé heimild í lögum
fyrir flutningnum en þetta kom fram
í viðtali RÚV við hann: „Ef þetta er
svona, eins og mér sýnist í fljótu
bragði, að lagaheimildina sé ekki að
finna í stjórnarráðslögunum né í lög-
um um Fiskistofu, eða annars staðar,
þá finnst mér verulegur vafi á því, já.“
Hafsteinn byggir niðurstöðu sína á
dómi Hæstaréttar Íslands um flutn-
ing Landmælinga Íslands frá Reykja-
vík til Akraness árið 1998 en sá dóm-
ur veitti skýrt fordæmi þess efnis að
óheimilt væri að flytja ríkisstofnan-
ir án lagaheimildar. Landmælinga-
málið er því skýrt fordæmi um Fiski-
stofumálið.
Alþingi gæti því þurft að að sam-
þykkja lög um flutninginn og er alls
ekki víst að meirihluti væri fyrir slíkri
lagasetningu á þingi.
Sjálfstæðismenn gagnrýnir
Til dæmis er alls ekki einhugur um
flutninginn hjá sjálfstæðismönnum
og sagði Brynjar Níelsson, þingmað-
ur flokksins, til dæmis að hann væri
ósáttur við hann. „Þótt ég telji mik-
ilvægt að að efla og stuðla að fjöl-
breyttari atvinnu á landsbyggðinni
er ekki hægt að gera hvað sem er í
þeim tilgangi. Ekki boðlegt að svipta
70 manns lífsviðurværi eins og hendi
sé veifað. Hlýtur að vera hægt að
færa einstök verkefni til með öðrum
hætti.“ Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingflokksmaður flokksins, sagðist
einnig vera á móti flutningnum sem
og þeir Jón Gunnarsson og Vilhjálm-
ur Bjarnason.
Þá má ætla að meirihluti þing-
manna stjórnarandstöðunnar muni
leggjast gegn honum þótt einhverj-
ir af þingmönnum norðausturkjör-
dæmis muni örugglega lýsa yfir
stuðningi við ákvörðunina, líkt og til
dæmis varaþingmaðurinn Björn Val-
ur Gíslason hefur gert.
Þrátt fyrir þetta má ætla að ekki
náist meirihluti á Alþingi fyrir slíkri
lagasetningu. Ef svo fer að setja þurfi
ný lög til að heimila flutninginn, og
ekki næst meirihluti fyrir þeim á
þingi, mun Sigurður Ingi Jóhanns-
son ekki geta framkvæmt hann og
mun því þurfa að hætta við hann.
Erfitt mál fyrir ríkisstjórnina
Flutningur Fiskistofu frá Hafnarfirði
til Akureyrar virðist því vera orðinn
að stóru pólitísku deilumáli. Ekki
bara utan ríkisstjórnarinnar held-
ur líka innan hennar. Frá því í kosn-
ingunum í fyrra hafa sannarlega
komið upp nokkur mál sem Sjálf-
stæðisflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn eru ekki sammála um og
ber auðvitað fyrst að nefna skulda-
afskriftarhugmyndir Framsóknar-
flokksins, sem þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins voru langt í frá sammála,
og bendir flest til að Fiskistofumálið
bætist í þennan hóp.
Málið gæti því reynt verulega á
ríkisstjórnarsamstarfið á næstunni.
Svo virðist sem Sigurður Ingi Jó-
hannsson hafi ekkert ráðfært sig við
samstarfsflokk Framsóknarflokks-
ins í ríkisstjórn og tekið ákvörðun-
ina um flutninginn einhliða. Til að
ná málinu í gegnum Alþingi gæti
Framsóknarflokkurinn líka hugs-
anlega þurft að semja dýru verði
við Sjálfstæðisflokkinn; verði þar
sem Framsóknarflokkurinn gæti
þurft að gefa eftir í viðræðum við
Sjálfstæðisflokkinn um eitthvert
mál sem flokkurinn setur á oddinn
en ríkisstjórnarflokkarnir eru ekki
sammála um. n
„Næstu tvo mánuði
munum við kort-
leggja hvernig hægt verð-
ur að framkvæma þetta.
Sigurður Ingi Jóhannsson ákvað flutning Fiskistofu fyrst en ætlar svo að hugsa um hann
Klassísk byggðastefna
Flutningur Fiskistofu er talinn vera
klassískt dæmi um byggðastefnu
Framsóknarflokksins en ekki
hefndaraðgerð í neinum skilningi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, er
maðurinn á bak við ákvörðunina.
Fáir flytja Fáir starfsmenn Fiskistofu virðast
ætla að flytja með stofnuninni til Akureyrar.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Fréttaskýring
Á
dögunum fjallaði DV um að
ungur karlmaður hafi kært
Sigurð Aron Snorra Gunnars-
son fyrir ærumeiðingar sem
og hótanir í sinn garð. Í kjölfar
umfjöllunarinnar hefur Sigurður
Aron óskað eftir því að fram komi
að hann lýsi sig saklausan af hót-
unum. Málið er í rannsókn hjá lög-
reglu.
Sigurður Aron hefur þó viður-
kennt að hafa sent skjáskot af
samförum þeirra tveggja á núver-
andi kærustu karlmannsins. Karl-
maðurinn segir að Sigurður Aron
hafi meðal annars hótað að senda
Outlaws-meðlimi á sig.
Sigurður segist vilja koma því
á framfæri að bæði karlmaðurinn
sem og Baldur Freyr Einarsson,
sem hefur aðstoðað karlmanninn,
fari með rangt mál. Sigurður telur
að gögn, svo sem ástarbréf á milli
sín og karlmannsins og Facebook-
samskipti, sanni að þeir fari með
rangt mál.
Baldur Freyr hefur sagt að hann
hafi ekki fengið frið frá Sigurði frá
því hann byrjaði að aðstoða karl-
manninn. Sigurður vísar því á bug.
„Ég hafði samband við hann fyr-
ir rúmri viku og þar áður í mars,“
segir hann. n hjalmar@dv.is
Lýsir sig saklausan
Sigurður Aron segist sitja undir fölskum ávirðingum
Segist saklaus
Sigurður segist ekki hafa
hótað manninum.
„Mannleg
mistök“
Mannleg mistök urðu til þess að
hvalaskoðunarbáturinn Haukur
strandaði við Lundey á Skjálf-
anda á sjötta tímanum seinni
part miðvikudags. Þetta kemur
fram í tilkynningu sem Norður-
sigling sendi frá sér eftir að bátn-
um hafði verið bjargað. Um borð
voru nítján farþegar og tveir í
áhöfn.
Í tilkynningu segir að málsat-
vik hafi verið þau að verið var að
skoða lunda við eyjuna og vegna
„mannlegra mistaka“ hafi bátn-
um verið siglt of nálægt eyjunni.
Við það hafi hann setið fastur og
tekið að halla.
Kallað var strax eftir aðstoð og
neyðaráætlun bátsins sett í gang.
Hlúð var að farþegum þar til þeir
voru ferjaðir frá borði og fluttir til
Húsavíkur til aðhlynningar á veg-
um Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og Norðursiglingar. Björg-
unaraðgerðir gengu hratt fyrir sig.
Aðeins 20 mínútum eftir að til-
kynnt var um atvikið var gúmmí-
bátur frá Norðursiglingu kominn
á staðinn og fylgdu fleiri bátar í
kjölfarið. Eftir að báturinn hafði
verið losaður sigldi hann fyrir
eigin afli til hafnar á Húsavík.
Aurskriða féll á
Hnífsdalsveg
Snemma á fimmtudagsmorgun
féll aurflóð niður Eyrarhlíðina og
yfir Hnífsdalsveg á Ísafirði þannig
að hann lokaðist. Lögregla, með
aðstoð björgunarsveita, lokaði
veginum í kjölfarið. Mikil úrkoma
hefur verið á norðanverðum
Vestfjörðum undanfarna daga.
Eng inn var á ferð um veg inn
þegar skriðurn ar féllu.