Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2014, Side 32
Helgarblað 4.–7. júlí 201432 Fólk Viðtal Salka Margrét Sigurðardóttir salka@dv.is M óttaka og nærvera Kol- brúnar Björnsdóttur, sem ávallt er kölluð Kolla, er það viðkunnanleg að það er líkt og við höfum þekkst í fjölda ára. Hún sest brosmild niður með blaðamanni á kaffistofu 365 og pantar sér morgunmat. Hún er mjög yfirveguð og dregur fæturna að sér upp í sófa. Spurð um upphafið segist Kolla hafa fæðst á Siglufirði en segir glott- andi að fólk minnist hennar sem hins fullkomna barns. „Ég var ekki barnið sem var fiktandi í öllu. Ég gat dundað mér við hvað sem var. Ég var róleg og þægileg, held ég, en þó alveg ofsalega þrjósk.“ Kolla segist vera hvergi nærri laus við þrjóskuna sem einkenndi hana sem barn. „Ég held ég sé enn mjög þrjósk. Ég held að fólkið sem þekkir mig vel myndi segja að ég væri mjög þrjósk,“ segir Kolla. Kolla minnist bernskuáranna en þegar hún bjó á Siglufirði dvaldi hún hjá ömmu sinni. „Móðir mín átti mig þegar hún var mjög ung. Þannig að ég var fyrstu tvö árin mín hjá ömmu minni, ömmu Kollu, á meðan að mamma var fyrir sunnan í Verslun- arskólanum. Ég held ég hafi nú alltaf grætt svolítið á því hvað mamma var ung þegar hún átti mig. Bæði það að ég fékk æðislegan tíma með ömmu, amma var mamma mín líka, og líka það að við mamma höfum alltaf náð vel saman, hún er kletturinn í mínu lífi,“ segir Kolla. Kolbrún segir að amma hennar, sem hún heitir í höfuðið á, hafi verið sér eins og móðir. „Ég var ofboðslega náin ömmu, þess vegna leit amma alltaf á mig sem eina af sínum dætr- um,“ segir Kolbrún sem fylgdi ömmu sinni til grafar fyrir nokkrum árum. Hún ber mjög hlýjan hug til henn- ar. „Einhvern daginn ætla ég líka að verða amma Kolla,“ segir hún kímin. Hringir í mömmu Móðir Kollu er henni einnig mjög kærkomin. „Við erum mjög nán- ar. Ég get sagt henni allt. Þetta er vinkonusamband,“ segir Kolla um móður sína. „Ef ég er veik, þá hr- ingi ég í mömmu. Ef eitthvað rosa- lega skemmtilegt gerist, þá hringi ég í mömmu. Hún er efst á lista með manninum mínum,“ segir Kolla. „Mamma er minn besti stuðnings- maður og klappar á bakið á mér þegar illa gengur og fagnar hæst þegar vel gengur. Hún er einhvern veginn alltaf í því að gefa mér bestu ráðin. Ég er mjög þakklát fyrir það.“ Kolla minnist uppeldis síns sem hvetjandi. „Ég var alltaf alin upp í því að ef ég ætlaði að gera hlutina, ætti ég að gera þá vel. Það var mik- il áhersla lögð á nám hjá mér og að allar aðstæður til þess að ég gæti sinnt mínu námi væru til staðar. Það var mömmu rosalega mikilvægt, því það var erfitt fyrir hana að eiga mig svona ung. Tækifærin hennar voru takmarkaðri.“ Aðspurð hvort Kolla hafi upplif- að pressu fyrir vikið segir hún það sennilegt. „Eftir á að hyggja, já. Ég var hrædd um að klúðra hlutunum, ekki bara gagnvart fjölskyldunni heldur líka gagnvart sjálfri mér.“ Best í að tala sjálfa sig niður Ótti við mistök virðist raunar hafa verið helsta persónulega áskorunin sem Kolla hefur þurft að glíma við svo árum skiptir. Nýlega sagði hún þeim kvilla þó stríð á hendur. „Mér tókst í gegnum árin að verða minn versti óvinur. Það er ekkert langt síð- an ég fór að geta tæklað það. Ég hef alltaf verið best í því að tala sjálfa mig niður. Ég er að reyna að breyta því og það gengur ágætlega,“ seg- ir Kolla en maðurinn hennar hefur hjálpað henni að kljást við þetta síð- ustu ár. „Það er svo merkilegt, ég held ég sé ekki ein um þetta, ég held við séum ótrúlega mörg sem gerum þetta. Við erum kannski flest okkar verstu óvinir. Við gerum miklu meiri kröfur til okkar sjálfra heldur en annarra. Eins og hvernig við tölum við okkur sjálf, við myndum aldrei Kolbrún Björnsdóttir fjölmiðlakona er sjálf sinn versti óvinur. Þrátt fyrir að vera þekkt sem hin jákvæða Kolla í Bítinu hefur hún alltaf haft litla trú á sjálfri sér. Hún vill ekki lengur leyfa ótta við mistök að stjórna lífi sínu og tekur nú nýjum áskorunum með opnum hug. Hún hefur byggt upp sjálfsmynd sína og segir hið slæma hafa kennt sér að meta hið góða. Kolla segir frá persónulegum áskorunum, fjölskyldunni, veikindum dóttur sinnar og hvernig fjölmiðlaheimur- inn er ekki ávallt vinveittur konum. Vill ekki lifa í stöðugum ótta við mistök

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.