Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Side 2
Vikublað 29.–31. júlí 20142 Fréttir
Akureyringar
fá salerni
Fréttastofa RÚV greindi frá því
á mánudag að Akureyringar
fengju nú loksins almenn
ingssalerni, en slíkt hefur ekki
þekkst á Akureyri um nokkurt
skeið. Bæjaryfirvöld ákváðu
að opna aftur almenningssal
erni undir kirkjutröppunum í
miðbæ Akureyrar. Samkvæmt
fréttum RÚV hafa ferðamenn
sem nauðsynlega hafa þurft
að kasta af sér vatni flykkst
að Akureyrarkirkju og hefur
sóknarnefnd í kjölfar þess
brugðið á það ráð að rukka fyrir
aðstöðuna. Logi Már Einarsson,
varaformaður bæjarráðs Akur
eyrar, segir í samtali við RÚV
að salernið verði opið fram að
hausti.
Gæsluvarð-
hald staðfest
Hæstiréttur staðfesti á mánudag
úrskurð Héraðsdóms Vestur
lands um fjögurra vikna gæslu
varðhald yfir Reyni Þór Jónas
syni og þýskum félaga hans, en
þeir eru grunaðir um stórfellda
líkamsárás í Grundarfirði þann
17. júlí síðastliðinn.
Þeir hafa verið í haldi síð
an þá. Úrskurðurinn nú er á
grundvelli almannahagsmuna.
Rannsóknardeild lögreglunn
ar á Akranesi fer með rannsókn
málsins.
Báðir voru þeir í áhöfn
Baldvins NC 100, sem lá þá við
bryggju í Grundarfirði. Reyn
ir er fyrrverandi Íslandsmeist
ari í vaxtarrækt. Fórnarlambinu
er enn haldið sofandi og er með
mjög alvarlega höfuðáverka.
Mál Selfosspresta
á borði ráðherra
Styr hefur staðið um samstarf tveggja presta í Selfosskirkju síðustu ár
F
rá árinu 2009 hefur sóknar
prestur Selfossprestakalls,
séra Kristinn Ágúst Friðfinns
son, verið ósáttur við
ákvörðun sem biskup Íslands
tók, en hann telur að lög hafi ver
ið brotin með ákvörðun biskups um
að ráða séra Óskar H. Óskarsson sem
prest við kirkjuna. Séra Kristinn býr
um þessar mundir í Kaupmanna
höfn, en hann er í leyfi frá störfum
við Selfosskirkju. Köldu hefur and
að milli aðila sem tengjast málinu og
virðist engin sátt ætla að fást í það á
næstunni.
Árekstrar í kjölfar sameininga
Forsaga málsins er sú að árið 2009 var
Selfosssókn sameinuð Hraungerðis
prestakalli. Áður en sameiningin var
gerð hafði Óskar þjónað sem prestur
í Selfossprestakalli. Þegar Selfoss
sókn sameinaðist Hraungerðispresta
kalli tók Kristinn við þessari viðbót við
prestakall sitt, en hann hafði áður verið
sóknarprestur í Hraungerðisprestakalli.
Presturinn sem þjónað hafði í Sel
fosssókn var Gunnar Björnsson, en
hann var færður til í starfi sama ár
og Selfosssókn sameinaðist Hraun
gerðisprestakalli. En svo virðist sem
sóknarbörn í Selfosssókn hafi verið
óánægð með þessi málalok og héldu
því fram að kirkjuþing hefði tekið
fram fyrir hendur biskups og vildu fá
að velja sér prest, frekar en að Krist
inn tæki sjálfkrafa við Selfosssókn.
Náðu ekki samkomulagi um
verkaskiptingu
Mótmæli við ákvörðun kirkju
þings bárust úr mörgum áttum.
Sóknarnefnd Selfosskirkju ályktaði
um málið, undirskriftum var safnað
og bréf bárust kirkjuþingi frá sóknar
börnum. Blaðamaður hefur nýlega
rætt við sóknarbörn Selfosskirkju,
sem búa á Selfossi og svo virðist sem
söfnuðurinn sé nokkuð klofinn í af
stöðu sinni. Einhverjir virðast vilja
hafa Kristin sem sinn prest og aðrir
Óskar. „Það fer bara eftir því hvern þú
spyrð,“ sagði einn viðmælandi.
Svo fór að Kristinn og Óskar störf
uðu báðir sem prestar við Selfoss
kirkju og skiptu verkum á milli sín.
En samstarfið gekk ekki vel og herma
heimildir DV að Kristinn telji að sú
verkaskipting sem var ákveðin hafi
brotið gegn lögum. Þeir Kristinn og
Óskar hafi reynt að ná samkomulagi
um verkaskiptingu innan kirkjunnar
en almennileg sátt náðist aldrei um
málið.
Fjallað var um málið í DV fyrir
rúmum þremur árum. Þar kom fram
að deilur væru á milli þeirra Kristins
og Óskars og að þær væru í höndum
biskups. Einnig voru deilur innan Sel
fosskirkju um til dæmis hluti á borð
við skrifstofuskipan, en DV greindi frá
því á sínum tíma að Óskar hefði ekki
viljað gefa frá sér skrifstofu Selfoss
kirkju til Kristins. Kristinn óskaði eft
ir lyklunum að skrifstofunni en Óskar
vildi ekki víkja.
Úr varð að biskup ákvað að Óskar
hefði umsjón með starfinu í Sel
fosssókn og var það sú ákvörðun
sem Kristinn taldi brjóta gegn lög
um. Svo virðist sem biskup hafi tek
ið ákvörðun sína stuttu eftir að hafa
fengið sent bréf frá séra Óskari, sem
hann telur að gæti hafa haft áhrif
á ákvörðunina. Samkvæmt heim
ildum DV sendi Kristinn erindi til
innanríkis ráðuneytisins vegna máls
ins og er það nú statt þar.
Sameiningin var klúður
Viðmælandi DV sem starfar inn
an Þjóðkirkjunnar og þekkir vel til
málsins segir að mistökin hafi legið
í því að sameina Selfosssókn undir
Hraungerðisprestakall. „Þetta var
eiginlega tilraun til málamiðlunar
sem mistókst,“ segir viðmælandinn
og bætir við. „Því að Kristinn var
orðinn sóknarprestur. Svo var aug
lýst annað embætti í prestakallinu en
það var þá samt skilgreint þannig að
sá prestur ætti að þjóna Selfossi. Sem
er náttúrlega svolítið skrýtið þar sem
þetta er kannski 90 prósent af fólkinu,
þannig að þá er í raun og veru verið
að skipuleggja sóknarprestinn út úr
því að þjóna meginhluta sóknarbarn
anna.“ Hann telur að í svona málum
sé heppilegast að bíða með að sam
eina sóknir þar til að prestar láti af
störfum af einhverri ástæðu, því þá er
byrjað með autt borð og minni líkur á
deilum sem þessum.
Kristinn vildi ekki tjá sig um mál
ið við DV en í fundargerð aðalfundar
Prestafélags Íslands, sem haldinn var
þann 3. maí árið 2011, talaði Krist
inn opinberlega um málið. Í fundar
gerðinni segir að Kristinn hafi kvaðst
vera „afar ósáttur með gang mála og
ræddi [meðal annars] um það hvern
ig staðið hefði verið að auglýsingu
prests í hinu nýja prestakalli, nefndi
hann [meðal annars] að presti Sel
fossprestakalls hefði verið lofað því
fyrirfram að hann fengi stjórnunar
lega ábyrgð í Selfossprestakalli.“ Í
fundargerðinni segir einnig að Krist
inn hafi „reynt að standa á sínum rétti
en uppskorið fátt annað en einelti og
vanlíðan.“
Eins og áður sagði vildi Kristinn
ekki tjá sig um málið við DV, en sagði
þó að hann hygðist snúa aftur til
starfa í Selfosskirkju með haustinu.
Séra Óskar vildi heldur ekki tjá sig
um málið þegar DV leitaði eftir við
brögðum hans og baðst undan við
tali. Málið er til skoðunar hjá innan
ríkisráðuneytinu og óvíst er hvenær
niðurstaða fæst í það. n
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is „Þetta var
eiginlega
tilraun til mála-
miðlunar sem
mistókst
Kristinn Ágúst Friðfinnsson Óskar Hafsteinn Óskarsson
Selfoss
Áralangar deilur hafa
staðið á milli prest-
anna eftir sameiningu.