Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Síða 15
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Fréttir 15
„Það var eins og Það væri
búið að uppstoppa mig“
n Alexandra Sif segir frá því þegar henni var nauðgað viku fyrir jól n Mætti skilningsleysi og fordómum n Fann til með gerandanum
ömurleg manneskja að vera að
kæra hann og eyðileggja hans líf.
Það er einmitt það sem hann gerði
mér,“ segir hún.
Túlkaði háttsemi sem „hint“
Í bréfi ríkissaksóknara til Alexöndru
þar sem henni er tilkynnt að málið
hafi verið fellt niður kemur fram að
helsta ástæða fyrir niðurfellingunni
sé að um sé að ræða orð gegn orði.
Í bréfinu kemur fram að lýsing ger
anda á atvikinu sé mjög ólík lýsingu
Alexöndru og því sé sakfelling talin
ólíkleg. „Í máli þessu hefur kærði
játað að hafa haft samræði við kær
anda og lýst því að hann hafi túlk
að ákveðna háttsemi hennar sem
„hint“ um að hún hafi viljað meira,
hann hafi heyrt hana stynja og
fundið fyrir raka þegar hann snerti
kynfæri hennar […] Kærði hefur
lýst því að hann hafi upplifað hátt
semi kæranda þannig að hún hefði
með hegðun sinni gefið til kynna
að hún vildi meira eftir að hann
byrjaði að snerta hana,“ segir í bréfi
ríkissaksóknara til Alexöndru.
Gefur lítið fyrir túlkun geranda
Alexöndru blöskrar þessi túlkun
geranda á nauðguninni. „Hann
túlkar það að ég snúi mér á hliðina
sem svo að ég hafi verið að ota
rassinum mínum að honum, að
senda honum boð. Ég tók það alveg
fram við lögregluna að þegar þetta
gerðist þá fann ég fyrir unaði. Það er
bara eðli líkamans, ég get ekki ráð
ið við það. Ég hugsaði bara: „hvað
er að mér? Hvers vegna finn ég fyrir
unaði? Er eitthvað að mér?““
Varð fyrir áreiti
Alexandra segir að gerandi og vinir
hans hafi sent henni skilaboð bæði
á Facebook og í síma eftir að hún
kærði nauðgunina. Strax aðfara
nótt mánudags hafi hún fengið
smáskilaboð frá sameiginlegum
vini hennar og geranda þar sem
hún var ásökuð um lygar. „Er ekki
í lagi með þig? Hvern fjandann er
eiginlega að þér kona? Vantar þig
svona rosalega peninga til að gera
upp nauðgun? Djöfulsins aumingi
ertu. Deyðu,“ les Alexandra upp af
síma sínum fyrir blaðamann. Þetta
hafi ekki verið einu skilaboðin sem
hún hafi fengið og hafi önnur verið
síst skárri.
Óþægilegt að segja frá
Hún segir að margir hennar nán
ustu vinir hafi ekki trúað henni
þegar hún sagði þeim frá nauðg
uninni. „Mér fannst svo óþægi
legt að segja þetta, því þegar ég
segði þetta þá væri eins og ég vildi
láta vorkenna mér og fá athygli. Ég
hef aldrei pælt áður í því að þessi
setning er búin að missa svo mikla
meiningu,“ segir Alexandra. Hún
segir að hún hafi misst nokkra vini
síðastliðið hálft ár. „Þetta voru ekki
vinir mínir. Tvær bestu vinkonur
mínar drulluðu yfir mig og sögðu of
mikið drama í kringum mig. Sögðu
við mig að ég hefði alveg getað sagt
nei. Ég fékk ekki einu sinni skilning
frá vinkonum mínum.“
Ósátt við réttarkerfið
Alexandra segir að réttarkerfið hafi
algjörlega brugðist henni í málinu.
„Þetta er ekki réttlátt. Ég á bara
að taka þessu og láta eins og ekk
ert sé. Það er ekkert svo auðvelt.
Það eina sem gerist hjá honum er
að hann fær kæru og hún er svo
felld niður – hann laus mála. Með
an þarf ég að ganga með þetta allt
mitt líf.“ n
„Ég er ekki
eitthvert
leikfang, ég á
skilda virðingu.
Þögn ekki sama og samþykki
Alexandra fraus og gat sig hvergi hreyft.