Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Page 17
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Fréttir Erlent 17
Undir hæl nýs rússlands
n Rússar fá frönsk flugmóðurskip þrátt viðræður um nýtt evrópskt vopnasölubann n Viðskiptasamningur upp á 200 milljarða króna n Hagsmunir Frakklands gríðarlega miklir
Nýja-Rússland
Hugmynd Vladimírs Pútín, Rússlandsforseta, um Nýja-Rússland, eða Novorossiya, gengur út á að til verði nýtt ríki sem nái frá austur-
héruðum Úkraínu til aðskilnaðarhéraðsins Transnistríu í Moldóvu í vestri. Rússneska keisaraveldið lagði landsvæðið undir sig á 19. öld
og var það hluti af Rússlandi fram að rússnesku byltingunni árið 1917. Hörð valdabarátta meðal aðskilnaðarsinna hefur þó orðið til þess
að engin ein hugmynd um ríkjaform eða markmið með andspyrnunni hefur orðið ofan á í Austur-Úkraínu.
Fáni Nýja-Rússlands Er keimlíkur fána suðurríkja Bandaríkjanna.
Nýja-Rússland Ljósgrænt: Héruð þar sem er virk andspyrna
við Úkraínustjórn og myndu tilheyra Nýja-Rússlandi.
Dökkgrænt: Héruð undir stjórn aðskilnaðarsinna sem heyra
undir Nýja-Rússland.
Óvinir Evrópu
Nú eru alls 87 einstaklingar og 20 lögaðilar á svörtum lista Evrópusambandsins fyrir
að grafa undan landyfirráðum Úkraínu í eystri héruðum landsins. Þar á meðal eru
leiðtogar andspyrnuhreyfingarinnar og meðlimir í öryggisráði Rússlands, leyniþjón-
ustumenn og bandamenn Vladimírs Pútín, Rússlandsforseta.
Ramzan Kadyrov
Forseti Tsjetsjeníu hefur stutt
aðskilnaðarsinna í Úkraínu og sagst
reiðubúinn til að senda þangað 74
þúsund sjálfboðaliða til að berjast
með þeim. Kadyrov hefur starfað
náið með Pútín og Tsjetsjenía verið
leppríki Rússa í stuðningi við að-
skilnaðarsinna. Kadyrov hefur kallað
þvingunaraðgerðirnar hryðjuverk og
bannað Barack Obama Bandaríkja-
forseta að koma til Tsjetsjeníu.
Pavel Gubarev
Leiddi aðgerð þar sem stjórn
Donetsk-héraðs var tekin yfir
með valdi og gerði sjálfan sig
að héraðsstjóra. Áður en hann
varð byltingarleiðtogi, starfaði
hann sem auglýsandi og jóla-
sveinn. Kona hans, Ekaterina,
var gerð að utanríkisráðherra
og bankareikningur hennar
notaður til að taka við fé frá
Rússlandi.
Valery Kaurov Sjálfskipaður
forseti hins „Nýja-Rússlands“ sem
hefur biðlað til Rússlands um að senda
hersveitir inn í Austur-Úkraínu.
Sergei Beseda Yfirmaður 5. deild-
ar leyniþjónustu Rússlands og ábyrgur
fyrir alþjóðastarfsemi hennar.
Vladimír Antyufeyev
Var ráðherra öryggismála í aðskiln-
aðarhéraðinu Transnistríu í Mol-
dóvu en nýlega gerður aðstoðar-
forsætisráðherra Donetsk-héraðs.
Antyufeyev hefur sterk tengsl við
Rússa og tryggir bein ítök þeirra
í stjórn héraðsins. Hann starfaði
einnig áður með rússneskum
aðskilnaðarsinnum í Suður-Ossetíu
og Abkasíu í Georgíu, sem lýstu yfir
stríði á hendur Georgíu árið 2008.