Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Qupperneq 24
Vikublað 29.–31. júlí 201424 Neytendur
Hringferð aurapúkans
H
átt verðlag til handa ferðamönnum á Íslandi hefur ver-
ið á milli tannanna á fólki á síðustu misserum. Hvort
sem það er súkkulaðikaka á Mývatni, gistiheimili
í Keflavík eða gjaldtaka á ferðamannastöðum þá
er punkturinn alltaf sá sami – verðlag er of hátt.
Talað er um að tilgangur ferðaþjónustuaðila sé að fá
sem flesta aura frá erlendum ferðamönnum og að nú
sé ógerningur fyrir Íslendinga að ferðast með hag-
kvæmum hætti um landið.
DV hefur því sett saman tvær mismunandi
leiðir til að ferðast um landið á einni viku án
þess að greiða fyrir það hátt gjald. Leið eitt er
kostnaðarlaus á meðan leið tvö hentar vel
hagkvæmu fjölskyldufólki. Ekki er gert
ráð fyrir kostnaði við mat en þeim
kostnaði má halda í skefjum með
því að sleppa veitingastöðunum og
vegasjoppunum og smyrja heldur
nesti. Það er jú mikið notalegra að
borða úti í náttúrunni en á þess-
um stöðum. n aslaug@dv.is
n Svona ferðast þú frítt eða ódýrt
um landið n Farðu á puttanum
n Tjaldaðu í náttúrunni
Gisting
1 Einhvers staðar verða þreyttir ferðamenn að halla höfði þegar kvölda tekur og þá getur verið erfitt
að finna ódýra gistingu við hæfi. Leið eitt gerir ráð fyrir
að fólk tjaldi í náttúrunni og komist þannig hjá því að
borga gjald fyrir gistingu. Gallinn er sá að fólk hefur þá
ekki aðgang að salernisaðstöðu eða annarri þjónustu.
Kosturinn er hins vegar sá að þú ert ekki bundinn
við ákveðið svæði heldur eru valkostirnir beinlínis
óteljandi. Fyrir þá nægjusömustu sem geta með léttu
móti sagt skilið við nútíma þægindi á borð við klósett,
sturtu og kranavatn er þetta því góð og skemmtileg
leið til þess að ferðast um landið.
2 Leið tvö er ögn hefðbundnari. Þar færðu allar sex næturnar, reyndar allt upp í 28 nætur, á aðeins
14.900 krónur. Útilegukortið veitir tveimur fullorðnum
og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á 44
tjaldsvæðum á landinu. Leið tvö í hringferð aura-
púkans er samsett af sex þessara tjaldsvæða.
Í báðum tilvikum er gert ráð fyrir að ferðalangar eigi
eða fái lánað tjald eða ferðavagn.
Leið 1: Ókeypis.
Leið 2: 14.900 kr.
Ferðamáti
1 Stóri kostnaðarliðurinn í ferðalagi um landið er gjarnan ferðamátinn. Almenn-
ingssamgöngur á Íslandi, sérstaklega úti á
landi, eru með dýrara móti og þá er heldur
ekki hlaupið að því að leigja sér bílaleigubíl.
Leið eitt býður upp á langódýrustu leiðina
til þess að ferðast á milli staða – með því
að húkka sér far. Þetta er frábær leið til
þess að kynnast öðrum ferðalöngum og
ef þú ert heppinn þá hittir þú á staðkunn-
ugan heimamann sem getur frætt þig um
svæðið. Hins vegar getur verið þreytandi
að standa klukkutímum saman úti í
vegarkanti með puttann út í loftið og vona
að næsti bíll stoppi. Þá kemur vefsíðan
samferda.is sterk inn. Þar eru bæði auglýst
laus pláss og þá geta puttalingar einnig
sett inn beiðni um far.
2 Þessi leið hugnast hins vegar ekki öll-um, síst þeim sem eru með börn. Þá er
næstbesti kosturinn að fara á sparneytnum
einkabíl. Á heimasíðu Orkusetursins er hægt
að reikna út hversu langt þú kemst á bens-
ín- eða dísillítranum á þínum bíl. Leið tvö
gerir ráð fyrir hefðbundnum fjölskyldubíl,
til dæmis Ford Focus Station, beinskiptum
með bensínvél. Í utanbæjarakstri kemstu
22,7 kílómetra á lítranum á þessum bíl,
samkvæmt reiknivél Orkusetursins. Þannig
er hægt að reikna út að í hringferðinni (1.332
km) ferðu alls með 58,7 lítra. Miðað við
núverandi eldsneytisverð (247,8 kr.) kostar
ferðin því 14.540 krónur.
Leið 1: Ókeypis.
Leið 2: 14.540 kr.
Afþreying
1 Hamingjan kostar ekkert og það er vel hægt að hafa nóg fyrir stafni í fríinu án
þess að eyða peningum. Takið með ykkur
spil og bækur og farið í gönguferðir um nátt-
úruna. Samveran er það eina skiptir máli.
2 En þó svo að margt skemmtilegt sé hægt að gera í ferðalaginu án þess að
eyða einni krónu þurfið þið samt sem áður
ekki að neita ykkur um allt – þið eru jú í fríi.
Leið tvö gerir ráð fyrir tveimur sundferðum
og innliti á eitt safn. Fyrst er farið í sund
á Varmalandi í Borgarfirði en fyrir tvo
fullorðna og tvö börn kostar það 1.490
krónur, sund á Egilsstöðum kostar 1.600
krónur og þá er aðgangseyrir fyrir tvo
fullorðna 2.000 krónur í Steinasafni Petru
á Stöðvarfirði.
Leið 1: Ókeypis
Leið 2: 5.090 kr.
Borgarfjörður
Fyrsti dvalarstaður puttalingsins
er Borgarfjörður. Þar er af nógu að
taka hvað náttúruperlur varðar.
Má þar meðal annars nefna
Grábrók í Norðurárdal, Hraunfossa
og Deildartunguhver. Gangan upp
á Grábrók er við flestra hæfi en
þar er að finna einstakt útsýni yfir
Borgarfjörð. Þar er einnig að finna
Surtshelli sem er einn þekktasti
hellir á Íslandi. Ferðalangar ættu
ekki að vera í vandræðum með að
finna sér fallegan næturstað.
Bláskógabyggð
Síðustu nótt aurapúkans
er varið í Bláskógabyggð á
Suðurlandi. Bláskógabyggð er
eitt fjölsóttasta svæði Íslands á
sumrin og því má gera ráð fyrir
að rekast á fleiri ferðamenn á
svæðinu – sérstaklega í kringum
Þingvelli, Geysi og Gullfoss.
Góðu fréttirnar eru þær að auð-
velt ætti að vera að ferðast á
puttanum um svæðið.
Skagafjörður
Næsti viðkomustaður er Skaga-
fjörður en hann hefur sömuleiðis
að geyma fjölda náttúrugersema,
frá fallegum fjallshlíðum niður
að ströndinni og eyjunum. Eitt
kunnasta kennileiti fjarðarins er
án efa Drangey – hin tæplega 200
metra háa klettaeyja. Að auki má
nefna Þórðarhöfða og Ketubjörg
sem hvort tveggja setja svip sinn
á umhverfið. Hér verður ekki erfitt
að finna næturstað með útsýni.
Skagaströnd
Næst aka ferðalangar norður á
Skagaströnd en tjaldsvæðið þar er
á skjólsælum og rólegum stað rétt
austan við byggðina. Á leiðinni er
tilvalið að stoppa í Húnafirði, borða
nesti og skoða hinn 15 metra háa
Hvítserk sem stendur í flæðarmálinu.
Þegar á Skagaströnd er komið er
tilvalið að ganga á náttúruperluna
Spákonufellshöfða sem er vinsælt
útivistarsvæði. Þar hafa verið merkt-
ar gönguleiðir og sett upp fræðslu-
skilti um fugla og gróður. Ekki gleyma
að skrifa nöfnin ykkar í gestabókina!
Varmaland
Fyrstu nótt fjölskyldunnar
á einkabílnum er varið í
Varmalandi í Borgarfirði.
Tjaldsvæðið er stórt og rúm-
gott og þar er einnig að finna
sundlaug sem alla jafna er
vel nýtt af gestum tjald-
svæðisins. Fyrir ofan svæðið
gnæfir klettur sem tilvalið er
að ganga upp á, virða fyrir
sér fallegt útsýni yfir svæðið
og taka fyrstu hópmynd
ferðalagsins.
Úthlíð
Síðasti áningar-
staður ferðalanga á
einkabíl er í miðjum
Gullna hringnum, í
Úthlíð í Biskupstungum.
Á leiðinni er nauðsynlegt
að stoppa við Skógafoss
og eiga síðan góða stund
inni í Þórsmörk. Jafnvel
væri hægt að taka krók
inn að Landmannalaug-
um. Síðasta deginum
er síðan best varið í að
skoða náttúruperlur
umhverfisins – Gullfoss,
Geysi og Þingvelli – áður
en haldið er heim á leið.
1
6
1
6
2
2