Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2014, Blaðsíða 25
Vikublað 29.–31. júlí 2014 Neytendur 25
Hringferð aurapúkans
Heildarkostnaður
Leið 1: 0 kr.
Leið 2: 34.530 kr.
Fjarðabyggð
Næst heldur puttalingurinn á
Austfirðina – og þar er af nógu
að taka. Stærsta sveitarfélag
Austfjarða er Fjarðabyggð, en
það nær frá Dalatanga í norðri að
Kambanesi í suðri og inniheldur
alls sex þéttbýliskjarna. Mikil
náttúrufegurð er í sveitarfélaginu
öllu og má til dæmis nefna
Gerpissvæðið milli Norðfjarðar og
Reyðarfjarðar sem er að verða eitt
af vinsælustu gönguleiðarsvæð-
um landsins. Miðað við þróun
sumarsins ættu ferðalangar
einnig að geta gengið að
góða veðrinu vísu.
Vík í Mýrdal
Næst aka aurapúkar alla
leið í Vík í Mýrdal. Engum
mun hins vegar leiðast
náttúrufegurðin sem
ferðalangar fá notið út
um bílgluggann og þá
er um að gera að stoppa
nokkrum sinnum á
leiðinni, teygja úr sér
og borða nesti – til
dæmis við Jökulsárlón.
Mývatnssveit
Frá Skagafirði húkkar aurapúkinn
sér far í Mývatnssveit. Þar gefur
að líta fjölda náttúruperla, til
dæmis Dimmuborgir, Höfða og
Námafjall. Göngufólk mun láta
freistast af fjöllunum umhverfis
Mývatn, en þetta eru Reykja-
hlíðarfjall, Búrfell, Bláfjall,
Sellandafjall og Vindbelgur sem
öll hafa myndast í gosi undir jökli.
Enginn mun sjá eftir því að slá
niður tjaldi í nágrenni þeirra.
Fjalladýrð
Næsti viðkomustaður er Möðrudalur
á Fjöllum. Tilvalið er að hafa viðkomu á Ak-
ureyri og leyfa krökkunum að leika sér í leik-
tækjunum í Kjarnaskógi eða fara í lautarferð
í Lystigarðinum. Ferðaþjónustan Fjalladýrð
Möðrudal á Fjöllum er staðsett miðja vegu
milli Mývatns og Egilsstaða. Staðurinn er
rómaður fyrir fagra fjallasýn og víðsýni til
allra átta. Sparkvöllur og frisbeególf er til
staðar fyrir fjölskylduna.
Stöðvarfjörður
Þá liggur leiðin á Stöðvarfjörð
á Austfjörðum. Á leiðinni væri gaman
að rifja upp þjóðsöguna af Lagar-
fljótsorminum, fara í sund á Egilsstöð-
um og kíkja síðan á Steinasafn Petru á
Stöðvarfirði, sem er eitt stærsta safn
sinnar tegundar í heimi. Í skógræktinni
við tjaldsvæðið eru síðan skemmti-
legar gönguleiðir og gott leiksvæði
fyrir börnin.
Skaftárhreppur
Næsti dvalarstaður er Skaft-
árhreppur í austurhluta Vestur-
Skaftafellssýslu. Landslag og
gróðurfar í Skaftárhreppi er mjög
fjölbreytilegt og andstæður í nátt-
úrunni miklar. Allt frá Mýrdalsjökli til
Skaftár og frá Eldhrauni til Mýrdals-
sands. Við rætur Mýrdalsjökuls munu
aurapúkarnir því eiga notalega stund
í faðmi náttúrunnar – svo lengi sem
Katla gýs ekki.
4
5
3
4
5
3