Fréttablaðið - 30.01.2015, Qupperneq 54
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 26
Það eru sumir sem
verða yfir sig hrifnir af
gongum, eiga kannski
ellefu stykki og eru með
þau um allt hús.
Chris McMillan, hárstílisti raun-
veruleikastjörnunnar Kim Kard-
ashian, segir að löngu, glansandi
lokkarnir hennar séu hluti af
ímynd hennar og einkennum.
McCmillan bar ábyrgð á Rach-
el-klippingunni vinsælu sem
Jennifer Aniston var með í sjón-
varpsþáttunum Friends. Hann
hefur núna tjáð sig um hvern-
ig hann hefur unnið með hárið á
Kardashian. Hann segist aldrei
hafa þurft að nota hárlengingar
vegna þess að hennar náttúru-
lega hár er svo góður grunnur til
að vinna með.
„Langa, æðislega hárið á Kim
er hluti af einkennum hennar,“
sagði McMillan. „Náttúruleg
áferð hársins er þykk og bylgju-
kennd. Í stað þess að berjast
gegn því, notfæri ég mér það, og
held öllu mjúku, auðveldu og lág-
stemmdu.“
Í viðtali við tímaritið Allure
talaði McMillan einnig um hvern-
ig hann útbjó hár Kardashian
fyrir brúðkaup hennar á síðasta
ári og hafði hann einfaldleikann
í fyrirrúmi. „Brúðkaup er ekki
rétti tíminn til að búa til eitthvað
„trendí“.
Hárstílisti Kardashian tjáir sig
Chris McMillan segir síða, glansandi hárið vera eitt af einkennum hennar.
KIM KARDASHIAN Raunveruleikastjarn-
an virðist vera í góðum málum með Chris
McMillan sér við hlið. NORDICPHOTOS/GETTY
Trend
Rúskinn
og aft ur
rúskinn
„Fyrir mörgum árum sagði góð
vinkona mín við mig að ég þyrfti
að læra að spila á gong. Ég fjár-
festi í gongi og hef spilað á það
síðan,“ segir Siri Gopal Singh,
kundalini-jógakennari og gong-
heilari. Hann er frá Los Angeles
og er staddur hér á landi og mun
halda námskeið í gong-heilun um
helgina.
„Gong er notað á margs konar
máta, í sinfóníum, rokkhljóm-
sveitum og á allskyns tónlistar-
vettvangi. Ég spila á það eins og ég
var þjálfaður til,“ segir Siri Gopal,
sem notar hljóðfærið í heilun, hug-
leiðslu og slökun.
Hann hefur spilað á gong í sjö
ár og ferðast víða. „Nú ferðast ég
um heiminn og kenni. Um helgina
verð ég á Íslandi og í desember
var ég í Kína að kenna allt frá við-
skiptafólki til heimavinnandi hús-
mæðra.“
Hann segir hægt að nota gong til
þess að vinna á ýmiss konar kvill-
um og létta lund. „Ég var með við-
skiptavin sem var á leið í aðgerð.
Ég gerði læknandi gong-hugleiðslu
fyrir hana sem róar hugann svo
hún gæti verið afslöppuð og tilbúin
fyrir aðgerðina.“ Siri Gopal hefur
einnig haft nemendur og viðskipta-
vini sem glíma við þunglyndi eða
eru að komast yfir sambandsslit.
Hann hefur mikla ánægju af
starfi sínu. „Hvenær sem ég er að
vinna með nema eða er með hóp-
tíma er ég líka að njóta góðs af
því,“ segir hann og bætir við að
hann spili einnig á gong í einrúmi
fyrir sjálfan sig.
„Ég var með kennara sem lærði
að spila á gong af Yogi Bahajan í
mörg ár. Ég tók marga tíma og svo
skiptir máli að halda áfram og æfa
sig stöðugt, eins og með allt.“
Sjálfur á Siri Gopal tvö gong.
„Það eru sumir sem verða yfir sig
hrifnir af gongum, eiga kannski
ellefu stykki og eru með þau um
allt hús,“ segir hann og hlær. „Ég
kýs fremur að einbeita mér að því
að nota eitt gong og skapa sam-
band við það,“ segir hann og bætir
við að hljóðið í gonginu breytist
með árunum.
Siri Gopal ferðaðist með gong
til landsins sem verður í jógastöð-
inni Andartaki þar sem það verð-
ur notað í heilun og gong-slökun.
„Það er um áttatíu sentimetrar að
stærð og mjög fallegt. Það mun
hljóma dásamlega um helgina en
eftir nokkur ár mun það búa yfir
enn ríkari hljómi vegna þess að
það mun drekka í sig allt íslenska
loftið,“ segir hann og hlær.
Siri Gopal verður með opið nám-
skeið í Andartaki Kundalini-jóga-
stöð um helgina, nánari upplýs-
ingar má nálgast á Andartak.is.
gydaloa@frettabladid.is
Notar gong í heilun,
hugleiðslu og slökun
Siri Gopal, jógakennari og gong-heilari, hefur ferðast víða og kennt gong-heilun.
SIRI GOPAL Hefur leikið á gong í sjö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LÍFIÐ
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR
CHLOE GUCCI GUCCI JASON WU DEREK LAM
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-3
0
C
8
1
7
E
D
-2
F
8
C
1
7
E
D
-2
E
5
0
1
7
E
D
-2
D
1
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K