Fréttablaðið - 30.01.2015, Blaðsíða 58
30. janúar 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
DOMINOS DEILDIN
KR - KEFLAVÍK 109-73
STJARNAN - SNÆFELL 97-88
NJARÐV.- TINDAST. 107-99 E. FRL (88-88)
SKALLAGR. - HAUK. 106-101 E. 2 FRL
(84-84, 94-94)
STAÐAN Í DEILDINNI
KR 15 14 1 1512-1229 28
Tindastóll 15 11 4 1414-1290 22
Stjarnan 15 9 6 1332-1297 18
Njarðvík 15 9 6 1292-1220 18
Snæfell 15 8 7 1332-1325 16
Keflavík 15 8 7 1249-1287 16
Grindavík 14 7 7 1252-1281 14
Þór 14 7 7 1306-1341 14
Haukar 15 7 8 1315-1306 14
Fjölnir 14 3 11 1163-1322 6
Skallagrímur 15 3 12 1204-1408 6
ÍR 14 2 12 1196-1261 4
NÆSTU LEIKIR Í DEILDINNI
Í kvöld klukkan 19.15: Þór Þ. - Grindavík, ÍR -
Fjölnir.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 SÍMI 568 9090 • www.sm.is
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
80%
ALLT AÐ
FÓTBOLTI Norska félagið Viking Stavanger hafnaði 100 milljóna
króna tilboði belgíska úrvalsdeildarliðsins Lokeren í miðvörðinn
Sverri Inga Ingason, samkvæmt heimildum Vísis.
Sverrir spilaði sitt fyrsta tímabil í atvinnumennsku í norsku
úrvalsdeildinni á síðasta ári. Stavanger Aftenblad greinir frá
því að Viking hafi hafnað tveimur tilboðum frá danska
úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland, en það seinna var
tilboð upp á fimm milljónir norskra króna eða 86
milljónir íslenskra króna. Þriðja tilboðið hefur borist
Viking og það er frá Lokeren, en samkvæmt heimild-
um Vísis is bauð belgíska félagið um 650.000 evrur í
Sverri. Það gera rétt tæpar 100 milljónir króna.
Aftenbladet segir Viking hafa borgað Breiðabliki
um 17 milljónir íslenskra króna fyrir Sverri, en
Lokeren hefur nú boðið ríflega fimmfalda þá upp-
hæð. - tom
100 milljónir ekki nóg til að fá Sverri
ÖFLUGUR Craion var sínum gömlu
félögum erfiður í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPORT
LEIKIR DAGSINS
LEIKIR UM 5. TIL 8. SÆTI
Króatía - Þýskaland kl. 13:00
Danmörk - Slóvenía kl. 15:30
UNDANÚRSLIT
Pólland - Katar kl. 15:30
Spánn - Frakkland kl. 18:00
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HANDBOLTI Danska þjóðin er í
sárum eftir að handboltalandslið
Dana tapaði fyrir Spánverjum í
8-liða úrslitum HM í handbolta hér
í Katar. Guðmundur Guðmundsson
fékk sinn fyrsta stóra skell sem
landsliðsþjálfari Dana og hann
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gær að hann hefði verið þungur.
„Þetta reynir á og sýnir hversu
grimmar íþróttirnar geta verið,“
segir Guðmundur.
Spánn vann umræddan leik á
sigurmarki Joan Canellas á loka-
sekúndu leiksins. Guðmundur var
eins og aðrir í danska liðinu stein-
runninn á hliðarlínunni og trúði
vart eigin augum. Draumurinn um
heimsmeistaratitilinn var farinn
á augabragði. „Sigurinn gat fallið
hvorum megin sem var. Þetta var
bara þannig leikur,“ segir Guð-
mundur enn fremur.
HM eins og bikarkeppni
Í síðustu heimsmeistarakeppni,
þar sem Spánverjar urðu heims-
meistarar á heimavelli, var nýtt
fyrirkomulag tekið upp. Milliriðl-
ar voru felldir út og í staðinn tóku
16-liða úrslit við af hefðbundinni
riðlakeppni. Guðmundur er gagn-
rýninn á þetta nýja fyrirkomulag.
„HM er í raun orðið eins og
bikar keppni. Það þykir mér afar
sérstakt,“ segir Guðmundur. Danir
höfnuðu í öðru sæti síns riðils –
unnu Pólland, Rússland og Sádi-
Arabíu en gerðu jafntefli við Arg-
entínu og Þjóðverja.
Það var sérstaklega jafnteflið
gegn Argentínu í fyrsta leik sem
sat í Dönum en Guðmundur segir
úrslit þess leiks engu máli skipta
í dag.
„Ef við hefðum unnið þann leik
hefðu Þjóðverjar alltaf getað lagað
markatöluna sína eins og þeir
þurftu því þeir áttu Sádi-Arabíu
í síðasta leik,“ segir þjálfarinn.
„Við spiluðum hörkuleiki í riðl-
inum, unnum svo Ísland í 16-liða
úrslitum og svo kom þetta tap. Og
við erum úr leik þrátt fyrir að hafa
tapað bara einum leik alla keppn-
ina.“
Áður en núverandi fyrirkomulag
var tekið upp var haldin milliriðla-
keppni í stað 16- og 8-liða úrslita.
Efstu tvö liðin úr hvorum milliriðli
fóru svo áfram í undanúrslit og
hugnast Guðmundi það mun betur.
„Við erum á HM til að finna
besta lið heims. Með útsláttar-
keppni geta óvæntir hlutir gerst
og mér þætti þá eðlilegra að spila
milliriðla. Þannig hafa liðin svig-
rúm til að gera ein mistök og nán-
ast pottþétt að fjögur bestu liðin
fari í undanúrslit,“ segir hann.
„Nú getur þetta ráðist á tilviljun,
hver hittir á það á síðustu sekúnd-
unum eða ekki.“
Kvarta ekki undan blaðamönnum
Guðmundur segir að hann hafi
lært margt á þeim tíma sem hann
hefur verið í starfinu, þó svo að
hann hafi verið skammur.
„Ég hef ekki fengið marga daga
með liðinu. Ég er að gera ákveðn-
ar breytingar á bæði sókn og vörn
liðsins og leikmenn eru að kynnast
nýjum þjálfara. Það tekur tíma,“
segir Guðmundur.
Þá er gríðarlega mikil umfjöllun
um danska liðið og blaðamanna-
fundir þess fjölsetnir. „Það er hluti
af mínu starfi að sinna fjölmiðlum
og ég kvarta ekki undan því. Ég er
glaður yfir hversu mikinn áhuga
liðið fær. Það er gott fyrir dansk-
an handbolta og þess vegna sinni
ég glaður þessum hluta starfsins.“
Ulrik Wilbek náði frábærum
árangri með danska liðið og var
vitað að það yrði erfitt fyrir hvern
sem er að ætla að feta í fótspor
hans.
„Ég vissi það vel en ég setti allt
slíkt bara til hliðar. Það sem máli
skiptir er að ég hef horft upp á
mitt lið standa sig vel og spila
góðan handbolta. Það er margt
jákvætt við leik liðsins og hvernig
hann hefur þróast. Ég hef aðeins
fundið fyrir miklum stuðningi
leikmanna og allra innan danska
handboltasambandsins.“
Tilviljanakennd leið að titli
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins, gagnrýnir mótsfyrirkomulagið á HM í handbolta
eft ir að Danir duttu út í 8-liða úrslitum eft ir tap fyrir Spáni. Danir hefj a baráttuna um fi mmta sætið í dag.
SVEKKJANDI Guð-
mundur Guðmundsson,
þjálfari danska liðsins,
í leiknum á móti Spáni
í fyrrakvöld þar sem
danska landsliðið þurfti
að sætta sig við eins
marks tap.
FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK
HANDBOLTI Patrick Grötzki átti erfiðar lokamínútur í leik Þýskalands og Katar
í 8-liða úrslitum HM í handbolta. Hornamaðurinn snjalli átti tvö skot á loka-
mínútunum sem Danijel Saric, hinn bosníski markvörður Katars, varði og tryggði
þar með sínum mönnum sigur og sæti í undanúrslitum.
„Nóttin var stutt enda vonbrigðin mikil,“ sagði hann við Fréttablaðið á hóteli
þýska liðsins í Doha í gærmorgun. Þýskaland mætir Króatíu í dag í fyrri leik
sínum í umspili um sæti 5-8. „En við viljum fara á Ólympíuleika og því skipta
næstu leikir svo miklu máli. Aðeins einn í landsliðinu hefur farið á Ólympíuleika
og því viljum við ólmir komast þangað,“ segir hann en liðin í 2.-7. sæti HM fara í
undankeppni ÓL. Þjóðverjar hafa háleit markmið fyrir framtíðina og ætla sér að
búa til lið sem getur orðið heimsmeistari á heimavelli árið 2019. Dagur Sigurðs-
son á að leiða það verkefni og Grötzki segir að hann sé rétti maðurinn til þess.
„Án nokkurs vafa. Hann er frábær þjálfari og hver einasta stund á þessu móti
hefur verið þaulhugsuð. Við mætum vel undirbúnir í hvern leik og það er engin
tilviljun í því sem hann gerir. Hann er hundrað prósent rétti maðurinn til að
leiða okkur áfram.“ Nánar er rætt við Grötzki á íþróttavef Vísis. - esá
Dagur Sigurðsson er hundrað prósent rétti maðurinn
LÉK VEL Á HM Patrick Grötzki klikkaði
ekki á mörgum skotum á HM. MYND/GETTY
KÖRFUBOLTI Heitustu liðin í Dom-
inos-deildunum þessa dagana eru
karla- og kvennalið Grindvíkinga.
Sólin er komin upp í Grindavík eftir
dimma daga fyrir áramót og Grind-
víkingar hafa nú unnið flesta leiki í
röð í báðum deildum.
Karlalið Grindavíkur hefur unnið
fimm leiki í röð og þessir sigr-
ar hafa skilað liðinu upp í sjöunda
sætið fyrir umferðina sem hófst í
gær en það eru jafnframt bara tvö
stig upp í þriðja sæti deildarinnar.
Grindvíkingar heimsækja Þór úr
Þorlákshöfn í kvöld.
Kvennalið Grindavíkur hefur
unnið sex leiki í röð eða öll lið deild-
arinnar í einum rykk fyrir utan
topplið Snæfells sem er næst á dag-
skrá í deildinni en fyrst fá Grinda-
víkurkonur Njarðvík í heimsókn í
undanúrslitum bikarsins.
Það var vissulega dimmt yfir
Röstinni í Grindavík í byrjun des-
embermánaðar þegar karlaliðið var
aðeins búið að vinna tvo af fyrstu
níu leikjum sinum og kvennaliðið
hafði tapað tveimur leikjum í röð
sem þýddi að liðið var ekki lengur
meðal fjögurra efstu liðanna.
Svo vill til að þjálfari beggja lið-
anna er Sverrir Þór Sverrisson og
honum tókst að snúa við blaðinu
hjá báðum liðum. Lykilatriðið voru
flottir sigrar í síðustu leikjum fyrir
jólafríið og síðan hafa bæði liðin
verið ósigrandi í fyrsta mánuði nýja
ársins.
Nýir bandarískir leikmenn hafa
að sjálfsögðu hjálpað til sem og það
að karlaliðið endurheimti hinn stór-
efnilega Jón Axel Guðmundsson og
menn eins og Jóhann Árna Ólafsson
úr meiðslum.
Sverrir Þór á samt mikið hrós
skilið fyrir að hafa snúið við báðum
skútum á sama tíma og lið hans eru
til alls vís í framhaldinu. - óój
Sverrir Þór taplaus á nýja árinu
Grindavík hefur unnið fl esta deildarleiki í röð í bæði karla- og kvennakörfunni
SJÖ SIGRAR Í SJÖ LEIKJUM Í
JANÚARMÁNUÐI Sverrir Þór Sverr-
is son er búinn að kveikja á báðum
Grindavíkurliðunum eftir erfiða
byrjun á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
D
-8
9
A
8
1
7
E
D
-8
8
6
C
1
7
E
D
-8
7
3
0
1
7
E
D
-8
5
F
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K