Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 2
Veður
Í dag lægir vind nokkuð víða á landinu
og sólin skín. Austanlands heldur þó
norðanáttin og éljagangurinn áfram. Í litlum
vindi og léttskýjuðu veðri að vetrarlagi
getur frostið náð sér á strik. Sjá SÍðu 32
Náðu lengra með
Tækniþróunarsjóði
tths.is Tækniþróunarsjóður
Velferðarmál Borgin rekur mötu-
neyti í Eirborgum þar sem öryggis-
íbúðir eru fyrir aldraða. Þar er fram-
reiddur heitur matur í hádeginu en
nú um áramótin varð sú breyting á
að maturinn er ekki lengur í boði
um helgar og á helgidögum.
Jón Gunnar Ásgeirsson, sem býr
í Eirborgum, segir hádegismatinn
mikilvægan þátt í rútínu fólks. Hann
segir íbúana æfa vegna breyting-
anna. „Við fáum engan mat 110 daga
á ári. Það eru margir sem geta ekki
eldað sér mat eða farið í búð, hvað
þá í þessu færi. Dóttir mín hefur
stundum komið og eldað fyrir mig
en það eru ekki allir svo heppnir að
eiga góða að. Félagslegi þátturinn er
þó mikilvægastur.“
Jón bendir á að heldur ætti að
hækka verðið á máltíðinni sem er
nú 660 krónur. „Ég held að flestir
væru tilbúnir að borga hundrað
krónum meira og halda þjónust-
unni um helgar inni. Við reyndum
að segja stjórnendum það en það
er enginn vilji til að hlusta. Þetta er
bara stjórnunarofbeldi.“
Ragnheiður Gunnarsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri í Eirborgum,
segir íbúa geta fengið matarbakka
senda til sín um helgar og því muni
enginn svelta. „En félagsleg ein-
angrun aldraðra er stórt vandamál
og fólki líður vel í notalegum mat-
salnum með framúrskarandi starfs-
fólki. Borgin telur sig þurfa að spara
en gerir sér kannski ekki grein fyrir
hversu dýrmæt þessi þjónusta er.“
Stefán Eiríksson, sviðsstjóri
velferðarsviðs, segir kostnað við
helgarþjónustu í Eirborgum vera
sex milljónir króna á ári. Eirborgir
ásamt einni annarri félagsmiðstöð
voru með mat um helgar á síðasta
ári en nú er aðeins opið á Vitatorgi
um helgar, þar sem matarbakkar
eru útbúnir.
Ilmur Kristjánsdóttir, formaður
velferðarráðs, segir erfitt að svara
spurningunni um hvort helgarmál-
tíðir á félagsmiðstöðvum borgar-
innar verði endurskoðaðar í ljósi
uppnáms íbúanna. „Við höfum ekki
fengið útreiknaðan kostnað við það
og eins og flestir vita eru fjármunir
af skornum skammti,“ segir hún.
Ráðið hefur þó ekki lokað málinu,
skoðaður verður möguleikinn á
sjálfboðaliðum í matarþjónustunni
og eftir söfnun gagna um félagsstarf
og matarþjónustu verður málið
tekið upp að nýju.
erlabjorg@frettabaldid.is
Uppnám vegna
matarleysis um helgar
Hætt er að framreiða mat um helgar í félagsmiðstöð aldraðra. Borgin bendir á að hægt
sé að fá matarbakka senda heim. „Félagslegi þátturinn mikilvægastur,“ segir íbúi.
Jón Gunnar segir hádegismatinn vera mikilvægan þátt í rútínu íbúanna og rjúfa
félagslega einangrun. Fréttablaðið/SteFán
Þetta er bara stjórn-
unarofbeldi.
Jón Gunnar Ásgeirsson,
tónskáld og íbúi á Eirborgum
6
milljónir á ári kostar að hafa
mat um helgar í Eirborgum.
Bláa lónið tómt
Bláa lónið var tæmt fjórða þessa mánaðar og unnið er að stækkun og endurhönnun svæðisins. Meðal breytinga er að baðsvæði fer úr 5.000 í 7.000
fermetra. Tæknilega flókið verk sem gengið hefur vonum framar, segir Dagný Hrönn Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins. „Alls koma um
hundrað starfsmenn að þessu spennandi verkefni,“ segir hún. Opna á aftur 22. janúar. Fréttablaðið/anton
Stjórnmál Ólöf Nordal innanríkis-
ráðherra greinir frá því á Facebook-
síðu sinni að við reglubundið eftirlit
í lok síðasta árs hafi komið í ljós að
hækkun hafði orðið á svokölluðum
æxlisvísum í blóði sem mæla fram-
gang og stöðu krabbameins.
„Við nánari skoðun komu í ljós
smávægilegar breytingar í kviðar-
holi sem nauðsynlegt er að bregðast
strax við,“ skrifar hún.
„Vegna þessa var ákveðið að ég
skyldi hefja lyfjameðferð í upphafi
þessa árs, í sex skipti, sem ég hef
þegar hafið.“
Þá skrifar hún að þrátt fyrir með-
ferðina brenni hún enn fyrir því
að vinna fyrir almenning og hug-
sjónir sínar og sú áskorun sem
standi frammi fyrir henni muni
ekki breyta neinu um störf hennar
í þágu almennings. – srs
Ólöf aftur í
meðferð við
krabbameini
StjórnSýSla Ný reglugerð um
aðgerðir gegn einelti, kynferðis-
legri áreitni, kynbundinni áreitni
og ofbeldi á vinnustöðum hefur
tekið gildi. Markmið reglnanna er að
fyrirbyggja einelti og áreitni með for-
vörnum og áhættumati.
Fyrirtækjum er skylt að gera sér-
stakt á áhættumat á vinnustað og
greina áhættuþætti eineltis, kyn-
ferðislegrar áreitni, kynbundinnar
áreitni og ofbeldis. Frá þessu er
greint á vef Samtaka atvinnulífsins.
Atvinnurekanda ber að gera starfs-
mönnum ljóst með skýrum hætti að
eineltishegðun sé óheimil og grípa
til aðgerða í samræmi við skriflega
áætlun um öryggi og heilbrigði á
vinnustað. Brot á reglugerðinni geta
leitt til sekta. – kbg
Sektað vegna
eineltis í vinnu
Danmörk Helle Thorning-Schmidt,
fyrrverandi forsætisráðherra Dan-
merkur, ætlar að hætta á danska
þinginu og hefja störf sem fram-
kvæmdastjóri alþjóðasamtaka Save
the Children í Bretlandi.
Helle Thorning var leiðtogi danska
Jafnaðarmannaflokksins og fyrsti
kvenkyns forsætisráðherra Dan-
merkur.
Jafnaðarmannaflokkurinn undir
forystu Helle Thorning náði ekki að
tryggja sér þingmeirihluta í dönsku
þingkosningunum í fyrra og hún
sagði af sér formannsembætti. Við af
henni í formannsembætti tók fyrr-
verandi dómsmálaráðherra Dan-
merkur, Mette Fredriksen.
Eiginmaður Helle Thorning er
Stephen Kinnock en hann er þing-
maður breska Verkamannaflokksins
og sonur Neils Kinnock, fyrrverandi
formanns Verkamannaflokksins. – srs
Helle hættir í
stjórnmálum
Helle thorning-
Schmidt, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra Damerkur
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 f I m m t u D a G u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
2
6
-3
6
8
0
1
8
2
6
-3
5
4
4
1
8
2
6
-3
4
0
8
1
8
2
6
-3
2
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K