Fréttablaðið - 14.01.2016, Qupperneq 18
Sími: 540 2050 | pontun@penninn.is
Tilboðsverð gildir út Janúarmánuð 2016. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur og myndabrengl.
BRÉFABINDI - 7 CM KJÖLUR
VERÐ 384 KR.
Verð áður: 549 kr.
afsláttur
30%
Utanríkisráðherra auglýsir tvo styrki til ritunar meistaraprófsritgerða um
málefni Norðurslóða.
Verkefnin geta t.d. verið á sviði (alþjóða)stjórnmála og –laga,
öryggismála, umhverfis- og loftlagsbreytinga, efnahags- og
samfélagsþróunar og auðlindanýtingar, sem tengist Norðurslóðum.
Miðað er við lokaverkefni í meistaranámi að lágmarki 30 ECTS einingar
og jafnframt við það miðað að verkefnin verði unnin á árinu 2016.
Hvor styrkur er að upphæð kr. 400.000 og verður hann greiddur út í tvennu
lagi, 200.000 kr. þegar þriðjungi vinnunnar er lokið að mati leiðbeinanda
og 200.000 kr. þegar verkefni er lokið og því skilað.
Í umsókn skal eftirfarandi koma fram:
1. Nafn, heimilisfang og netfang umsækjanda.
2. Lýsing á inntaki rannsóknar, og á hvern hátt hún er fallin
til að varpa ljósi á umfjöllunarefnið, á íslensku og ensku
(300-500 orð á hvoru máli).
3. Tímaáætlun um framvindu, sbr. áðurnefnd tímamörk.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar nk. Umsókn skal send á
netfangið postur@utn.stjr.is. Henni skal fylgja ferilskrá umsækjanda og
samþykki leiðbeinanda fyrir ritgerðinni sem lokaverkefni.
Umsóknir verða metnar af valnefnd sem ráðherra skipar. Gert verður
samkomulag um framvindu og verklok við þá sem fyrir valinu verða.
Gert er ráð fyrir að styrkveitandi fái kynningu á niðurstöðum auk prentaðs
eintaks af ritgerðinni.
Utanríkisráðherra
auglýsir styrki til meistaranema
Skattar á fyrirtæki eru nær hvergi
hærri meðal OECD-ríkja en á
Íslandi. Árlegur tekjuauki nýrra
skatta sem lagðir voru á fyrirtæki
eftir hrun nemur 85 milljörðum
króna. Þetta samsvarar næstum
því útgjöldum ríkisins til löggæslu
og menntamála. Engin áform eru
um að draga þessa skatta til baka.
Þetta getur skert samkeppnishæfni
fyrirtækja og á endanum eru áhrif-
in neikvæð fyrir neytandann sem
greiðir hærra verð. Þetta er mat
Ásdísar Kristjánsdóttur, forstöðu-
manns efnahagssviðs Samtaka
atvinnulífsins, en hún hefur verið
að rannsaka breytingar á skattkerf-
inu frá árinu 2008 og kynnir efnið á
Skattadegi Deloitte í dag.
Hlutdeild fyrirtækjaskatta í
heildarskatttekjum ríkisins hefur
vaxið skarpt síðustu árin. Nú er svo
komið að ríkisútgjöld eru farin að
vaxa á ný en eftir standa nýir skatt-
ar sem enn hafa ekki verið dregnir
til baka. Ásdís telur mikilvægt að
miðla því að á endanum greiði ein-
staklingar þessa skatta.
„Tilhneigingin hefur verið sú
að aukin skattlagning á fyrir-
tæki sé í lagi, á meðan fyrirtækin
borga meira þá borgi einstaklingar
minna. Hins vegar er raunin sú að
kostnaður af fyrirtækjasköttum er
alltaf borinn af einstaklingum, það
er eigendum, launþegum eða við-
skiptavinum, spurningin er bara
hvernig kostnaðurinn dreifist,“
segir Ásdís.
Skattar á bæði fyrirtæki og ein-
staklinga eru nú hærri hér á landi
en fyrir hrun. Frá árinu 2008 hafa
verið gerðar 176 breytingar á skatt-
kerfinu, 132 skattahækkanir og
44 skattalækkanir, flestar á árinu
2014.
Þörf á að endurskoða
nýja skatta á fyrirtæki
Skattur á fyrirtæki er óvíða hærri en hér. Árlegur tekjuauki nýrra fyrirtækja-
skatta er 85 milljarðar króna. Forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnu-
lífsins telur brýnt að endurskoða skattana þar sem þeir valdi verðhækkunum.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, vill láta minnka fyrirtækjaskatta eftir að dregið
hefur verið úr skuldum íslenska ríkisins. Hér séu skatttekjur og útgjöld ríkisins með því mesta sem þekkist. Fréttablaðið/SteFÁn
Ef horft er til fyrirtækjaskatts, en
tryggingagjaldið dregið frá, þá eru
skattar á Íslandi einir þeir hæstu
meðal OECD-ríkja, fimm prósent
af landsframleiðslu samanborið
við þrjú prósent meðaltal OECD-
ríkja. Skattur sem eingöngu leggst á
fyrirtæki hefur farið úr því að vera
1,7 prósent á árinu 2003 í 4,9 pró-
sent á árinu 2014. Á sama tíma hafa
margar þjóðir lagt aukna áherslu á
að styðja við fyrirtækin í landinu
og fremur lækka skattprósentu
fyrirtækja en að auka hana.
„Til skamms tíma geta fyrirtæki
dregið úr arðsemi sinni þegar til
skattahækkana kemur, en til langs
tíma munu hækkanir lenda á neyt-
andanum eða launþega. En allir
þessir þættir eru til þess fallnir að
draga úr samkeppnishæfni fyrir-
tækja og það á við um alla geira,“
segir Ásdís.
Hún telur að til að draga úr fyrir-
tækjasköttum verði að draga úr
Viðbótar tekjuskattur
Viðbótar tryggingagjald
Sérstakir skattar á fjámálafyrirtæki*
Veiðigjald
annað
✿ Árlegur tekjuauki nýrra fyrirtækjaskatta
*án áhrifa þrotabúa
18
18
8
22
20
ríkisútgjöldum fyrst. Heildarskatt-
tekjur hins opinbera á Íslandi eru
næsthæstar meðal OECD-ríkja, en
svipaða sögu er að segja um útgjöld
hins opinbera. „Staðan er þannig
að afkoman er lítil sem engin. Það
sem mér finnst að eigi að vera for-
gangsmál hjá stjórnvöldum er að
byrja á því að hamla útgjaldavexti.
Ef stjórnvöld ætla sér alltaf að auka
útgjöld þegar tekjurnar aukast, þá
verður aldrei svigrúm til að draga
eitt né neitt til baka. Það þarf að
finna leiðir til að minnka umsvif
ríkisins. Forgangsraða betur í ríkis-
rekstri og þannig skapa svigrúm
til að draga til baka þessar skatta-
hækkanir,“ segir hún.
„Á sama tíma og hér ríkir góðæri
þá er ekki hægt að lækka skatta
nema til mótvægisaðgerða verði
gripið á útgjaldaliðnum. Forgangs-
mál er að lækka tryggingagjaldið,“
segir Ásdís Kristjánsdóttir.
saeunn@frettabladid.is
Reykjavíkurhöfn ber höfuð og herðar
yfir aðrar hafnir landsins þegar kemur
að lönduðum botnfiski. Á nýliðnu ári
var í Reykjavík landað 87.551 tonni.
Sú höfn sem kemur næst er Grinda-
víkurhöfn með 46.370 tonn.
Ef horft er til landsvæða þá jókst
landað magn á botnfiskafla mest
milli áranna 2014 og 2015 í höfnum á
Norðurlandi vestra eða um 15,7 pró-
sent.
Minnstum botnfiskafla var land-
að á síðasta ári í Vogum á Reykjanesi
og á Reyðarfirði. Á síðasta ári var
aðeins sex tonnum landað í Vogum
og á Reyðarfirði var 15 tonnum
landað.
Hlutfallsleg aukning er á flestum
landsvæðum á kostnað hafna á
Austurlandi en hlutur Austurlands
lækkar úr 11,4 prósentum í 10,1
prósent. – shá
Mestu landað í Reykjavík
reykjavík er áfram langstærsta löndunarhöfnin með bolfisk. Fréttablaðið/SteFÁn
Viðskipti
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r18 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
1
3
-0
1
-2
0
1
6
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
2
6
-4
0
6
0
1
8
2
6
-3
F
2
4
1
8
2
6
-3
D
E
8
1
8
2
6
-3
C
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K