Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.01.2016, Blaðsíða 26
Hvað gerði Gylfi? Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrra mark Swansea úr vítaspyrnu í 4-2 tapi á móti Sunderland en Swansea fékk á sig þrjú mörk eftir að liðið missti Kyle Naughton af velli með rautt spjald á 37. mínútu. Liverpool og Arsenal gerðu 3-3 jafntefli í frábærum leik á Anfield þar sem Liverpool komst tvisvar yfir í fyrri hálfleik og jafnaði síðan metin á lokamínútu leiksins. Þetta voru góð úrslit fyrir Leicester sem vann 1-0 útisigur á Tottenham á sama tíma. Nýjast Chelsea 2 – 2 West Brom Man. City 0 – 0 Everton Southampton 2 – 0 Watford Stoke City 3 – 1 Norwich Swansea 2 – 4 Sunderland Liverpool 3 – 3 Arsenal Tottenham 0 – 1 Leicester Efst Arsenal 43 Leicester 43 Man. City 40 Tottenham 36 West Ham 35 Man. United 34 Neðst Norwich 23 Bournem. 21 Swansea 19 Sunderland 18 Newcastle 18 Aston Villa 11 Enska úrvalsdeildin EM 2000 Króatíu 11. sæti HM 2001 Frakklandi 11. sæti EM 2002 Svíþjóð 4. sæti HM 2003 Portúgal 7. sæti EM 2004 Slóveníu 13. sæti ÓL 2004 Aþenu 9. sæti HM 2005 Túnis 15. sæti EM 2006 Sviss 7. sæti HM 2007 Þýskalandi 8. sæti EM 2008 Noregi 11. sæti ÓL 2008 Peking 2. sæti EM 2010 Austurríki 3. sæti HM 2011 Svíþjóð 6. sæti EM 2012 Serbíu 10. sæti ÓL 2012 London 5. sæti HM 2013 Spáni 12. sæti EM 2014 Danmörku 5. sæti HM 2015 Katar 11. sæti Gengi íslenska landsliðsins á stórmótum Guðjóns Handbolti Strákarnir okkar eru á leiðinni á enn eitt stórmótið og að sjálfsögðu lætur einn maður sig ekki vanta. Íslenska landsliðið hefur verið fastagestur á stórmótum handboltans undanfarin fimmtán ár og íslenski járnmaðurinn hefur alltaf verið með. Guðjón Valur Sigurðsson er nú að undirbúa sig fyrir sinn fyrsta leik á sínu nítjánda stórmóti. Leikjahæsti og markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins á Heimsmeistara- mótum, Evrópumeistaramótum og Ólympíuleikum hefur fyrir löngu tryggt sér sér kafla í sögu íslenska handboltalandsliðsins. Guðjón Valur hefur þegar náð því að spila 119 leiki fyrir íslenska landsliðið á stórmóti og mörkin eru orðin 628 talsins. Þessi frábæri leikmaður hefur ekki aðeins spilað á öllum þessum stórmótum og alla þessi leiki heldur hefur hann skorað 5,3 mörk að meðaltali í leik sem er hæsta meðalskor íslensks landsliðs- manns á stórmótum. Þorbjörn Jensson gaf Guðjóni Val fyrsta tækifærið með íslenska lands- liðinu og tók hann með á fyrsta stór- mótið á EM í Króatíu. Það var jafn- framt fyrsta Evrópumeistaramót íslenska liðsins. Guðjón Valur var utan hóps í fyrstu tveimur leikjun- um en eftir að hann kom inn í liðið í þriðja leik hefur hann ekki misst úr leik á EM. Þrisvar í úrvalsliði stórmóts Guðjón Valur hefur auk þess spilað langstærsta hluta þess- ara vel rúmlega hundrað leikja fyrir íslenska liðið á stórmótum. Guðjón Valur hefur þrisvar verið valinn í úrvalsliðið á stórmóti, þar á meðal á tveimur síðustu Evrópu- mótum, í Serbíu 2012 og í Dan- mörku 2014. Hann hefur níu sinnum verið á topp tíu yfir markahæstu leikmenn, fjórum sinnum á topp þrjú og varð síðan markakóngur heimsmeistara- mótsins í Þýskalandi 2007. Næsta heimsmeistaramót fer fram í Frakklandi eftir eitt ár en það var einmitt í Frakklandi sem Guðjón Valur tók þátt í sínu fyrsta heimsmeistaramóti fyrir fimm- tán árum. Það á eftir að koma í ljós hvort Guðjón Valur, þá á 38. aldurs- ári, eða íslenska landsliðið verður með í Frakklandi eftir ár en það setur vissulega afrek Guðjóns Vals í samhengi að hann næði þá að taka þátt í tveimur heimsmeistara- keppnum í sama landinu. Tuttugasta mótið á ÓL í Ríó? Guðjón Valur gæti hins vegar náð því að spila tuttugasta stórmótið sitt á árinu 2016 en það stendur og fell- ur með frammistöðu íslenska liðsins á Evrópukeppninni í Póllandi næstu vikurnar sem og framgöngu liðsins í forkeppni Ólympíuleikanna í apríl komist liðið þangað.  Fyrsti leikurinn er á móti Noregi á föstudagskvöldið og þar þurfa Guðjón Valur og félagar að ná góðum úrslitum ef þetta á að bætast í hóp skemmtilegra stórmóta Guð- jóns Vals en eins og sjá má hér til hliðar er nóg af þeim. ooj@frettabladid.is 119 leikja maður á stórmótum Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson er á leiðinni á sitt nítjánda stórmót á sextán árum. Guðjón Valur hefur verið með á öllum mótum frá því að hann steig sín fyrstu stórmótaspor í Króatíu í janúar 2000. Í dag 18.30 Höttur - Grindav. Egilsstaðir 19.15 ÍR - FSu Seljaskóli 19.15 Njarðvík - Snæfell Njarðvík domino’s-deild kvenna Haukar - Stjarnan 96-54 Stigahæstar: iHelena Sverrisdóttir 24/9 frák./9 stoðs./8 stolnir, Chelsie Alexa Schweers 21, Sólrún Inga Gísladóttir 16, Pálína Gunnlaugsdóttir 8/8 frák./9 stoðs.- Bryndís Hanna Hreinsdóttir 21, Ragna Mar- grét Brynjarsdóttir 14. Keflavík - Valur 52-74 Stigahæstar: Guðlaug Björt Júlíusdóttir 10, Sandra Lind Þrastardóttir 10/11 frák. - Karisma Chapman 15/14 frák., Bergþóra Holton Tómasdóttir 14/6 stoðs., Hallveig Jónsdóttir 13, Ragnheiður Benónísdóttir 12/13 frák. Snæfell - Hamar 88-36 Stigahæstar: Haiden Denise Palmer 17/6 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 16, Gunn- hildur Gunnarsdóttir 15/5 stolnir, María Björnsdóttir 11 - Alexandra Ford 15, Jenný Harðardóttir 8. Efst Haukar 24 Snæfell 22 Keflavík 12 Grindavík 12 Neðst Valur 12 Stjarnan 6 Hamar 2 ArNÓr INGVI KLárAðI FINNA Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Svíþjóðarmeistara IFK Norrköp- ing, opnaði markareikning sinn með íslenska landsliðinu þegar hann skoraði eina mark Íslands og tryggði því sigur á Finnlandi í vináttuleik í fótbolta sem fram fór í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Sigurmarkið skoraði Arnór Ingvi á 16. mínútu leiksins eftir glæsi- legan undirbúning Hjartar Loga Valgarðssonar, en Keflvíkingurinn stakk sér inn á teiginn og afgreiddi flotta sendingu Hafnfirðingsins í netið. Eiður Smári Guðjohnsen var fyrirliði íslenska liðsins í leiknum og sýndi fína takta á miðjunni. 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F i M M t U d a G U r26 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð ✿ 19 stórmót Guðjóns Vals Sigurðssonar á 16 árum sport Skoraði 14 mörk í leik á móti Ástralíu Skoraði 15 mörk í leik á móti Ástralíu Skoraði 13 mörk í leik á móti Egyptalandi Marka- hæsti leikmaður mótsins Kosinn í úrvalslið mótsins Þriðji markahæsti leikmaður mótsins Þriðji markahæsti leikmaður mótsins Kosinn í úrvalslið mótsins Annar markahæsti leikmaður mótsins EM 2000 Króatíu 7 mörk 4 leikir EM 2004 Slóveníu 15 mörk 3 leikir ól 2004 Aþenu 32 mörk 6 leikir HM 2005 Túnis 31 mark 5 leikir EM 2002 Svíþjóð 21 mark 8 leikir HM 2001 Frakklandi 15 mörk 6 leikir HM 2003 Portúgal 39 mörk 9 leikir EM 2006 Sviss 38 mörk 6 leikir EM 2010 Austurríki 39 mörk 8 leikir HM 2011 Svíþjóð 47 mörk 6 leikir EM 2012 Serbíu 41 mörk 6 leikir EM 2016 Póllandi ?? mörk ?? leikir ól 2012 London 44 mörk 6 leikir HM 2013 Spáni 41 mark 6 leikir EM 2014 Danmörku 44 mörk 7 leikir HM 2007 Þýskalandi 66 mörk 10 leikir EM 2008 Noregi 34 mörk 6 leikir ól 2008 Peking 43 mörk 8 leikir HM 2015 Katar 31 mark 6 leikir Kosinn í úrvalslið mótsins 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 2 6 -7 6 B 0 1 8 2 6 -7 5 7 4 1 8 2 6 -7 4 3 8 1 8 2 6 -7 2 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.