Fréttablaðið - 14.01.2016, Page 50

Fréttablaðið - 14.01.2016, Page 50
Mikil stemning fyrir að heiðra minningu Bowies Allt stefnir í að aðsóknarmet verði slegið í Bíói Paradís, en á sunnudaginn munu Svartir sunnudagar beina sjónum sínum að leikar- anum David Bowie, sem fjölmargir hafa áhuga á að sameinast yfir á hvíta tjaldinu. Ása Baldursdóttir fyrir framan vegginn þar sem veggspjöldin hanga, en þau eru til sýnis í Bíói Paradís. FréttaBlaðið/anton Brink Stilla úr kvikmyndinni the Man Who Fell to Earth, þar sem Bowie leikur geimveru í leit að vatni fyrir plánetuna sína. Frumsýningar The Big ShorT Dramamynd Aðalhlutverk: Christian Bale, Steve Carell, Ryan Gosling, Brad Pitt, Marisa Tomei, Karen Gillan, Melissa Leo, Hamish Linklater og Selena Gomez Frumsýnd 15. janúar IMDb 8,1/10 Rotten Tomatoes 87% DroTTningin af MonTreuil Gamanmynd Aðalhlutverk: Florence Loiret Caille, Didda Jónsdóttir, Úlfur Ægisson Frumsýnd 15. janúar IMDb 6,4/10 Rotten Tomatoes norM of The norTh Teiknimynd Aðalhlutverk: Heather Graham, Bill Nighy, Rob Schneider, James Corden Frumsýnd 15. janúar Svartir sunnudagar hafa fest sig í sessi í Bíói Para-d í s á s u n n u d ö g u m . Segir Ása Baldursdóttir vin-sældirnar vaxa býsna hratt, og ef fer sem horfir verður janúar- mánuður stærsti mánuður kvik- myndahússins til þessa. „Ef okkur tekst að fylla á Bowie, eins og gerðist með nýársmyndina okkar, Space Odyssey, þar sem við fylltum sal eitt, sem tekur tvö hundruð og fimm manns, og sal tvö sem tekur hundrað þrjátíu og fimm manns, þá erum við á ansi góðri leið.“ Líkt og alþjóð veit, lést tónlistarmaðurinn, leikar- inn og listræna kamelljónið Bowie í byrjun vikunnar eftir stutta baráttu við krabbamein. leikarinn Bowie Ása segist ekki eiga von á öðru en að aðsókn að myndinni The Man Who Fell to Earth, þar sem David Bowie fer með aðal- hlutverk, standist væntingar, en upp- haflega hafi staðið til að sýna myndina Pulp Fiction. „Bowie lést, svo við urðum að bregðast við því og munum þess vegna skipta Pulp Fiction út. Ég finn fyrir rosalega mikilli stemningu fyrir að heiðra minningu Bowies, sem var ekki síður góður í kvikmynd- um. Hans arfleifð er mjög mikil, sér- staklega miðað við að menn muna ekki eftir honum þannig, heldur aðal- lega sem tónlistarmanni,“ útskýrir Ása og bendir á að myndin sé án nokkurs vafa stórmerkileg. „Hann er í aðalhlutverki í myndinni, sem er vísindaskáldskapur og fjallar um þegar karakter Bowies, sem er geim- vera, kemur til jarðarinnar í leit að vatni með það fyrir augum að bjarga plánetunni sinni. Þessi mynd fellur vel að því sem við erum að gera í Bíó Paradís, þar sem þessi mynd er sannar lega menningarleg varða, svona „cult classic“ mynd með breiða skírskotun í listrænt gildi og list- rænar áherslur í kvik- myndalist.“ „Cult Class“ æði Ása segir hópinn sem sér um þessa „cult class“ dagskrá einu sinni í viku, saman- standa af einhverjum svakalegustu kvik- myndaspekúlöntum landsins, þeim Sig- urjóni Kjartanssyni, Hugleiki Dagssyni og Sjón. „Þeir hafa mikinn metnað fyrir að hlusta á nærsamfélagið, svo prógrammið okkar er alltaf svo skemmtilegt og það laðar að.“ Sé sú skemmtilega hefð komin á að fenginn sé nýr lista- maður í hvert skipti til að endurgera veggspjöld hverrar myndar sem sýnd er. „Við fáum þessa listamenn til að gera spjöldin undir leiðsögn Hug- leiks Dagssonar, og svo eru þessi spjöld seld við vægu verði, og aðeins eru gerð þrjú svo um safngripi er að ræða. Af hverju þrjú? Vegna þess að við viljum ekki hafa þau fjölda- framleidd, og svona hafa þau líka ákveðið listrænt gildi fyrir innlent l i s t a l í f í R e yk j av í k . “ S e m d æ m i u m l i s t a m e n n s e m tekið hafa sér verkfæri í hönd má nefna Lóu Hjálmtýsdóttur, Bobby Breiðholt, Sunnu Ben og Pál Óskar. Aðspurð um hvort einhvers konar „cult classic“ æði sé að renna á landann, segir hún að sér sýnist það miðað við aðsóknina undan- farið. „Þetta er að verða trend, og það er vegna þess að fólk nýtur þess að koma saman og upplifa kvik- myndalistina, í sama rýminu. Við erum með bestu mynd- og hljóðgæði á landinu, þar sem við erum nýbúin að digital-væða bíóið. Það að koma saman og upplifa kvikmyndir sem fólk man eftir, eða hefur upplifað fyrir löngu, sem falla undir „cult“, sumsé ekki nýjar og hafa þegar sett mark sitt á kvikmyndasöguna, er framtíð bíósins að okkar mati.“ Guðrún Ansnes gudrun@frettabladid.is Hann er í aðalHlut- verki í myndinni, sem er vísindaskáldskapur og fjallar um það þegar karakter Bowies, sem er geimvera, kemur til jarðar- innar í leit að vatni með það fyrir augum að Bjarga plánetunni sinni. 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð bíó 1 3 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 2 6 -3 6 8 0 1 8 2 6 -3 5 4 4 1 8 2 6 -3 4 0 8 1 8 2 6 -3 2 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.