Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1929, Page 11
Inngangur
lntroduction.
A. Mannfjöldinn.
État de la population.
1. Mannfjöldinn í heild sinni.
Populaíion totale.
Mannfjöldaskýrslurnar eru teknar eftir skýrslum þeim, sem prest-
arnir gera um hver áramót eftir að þeir hafa húsvitjað — allsstaðar
nema í Reykjavík. Þar framkvæmir lögreglustjóri manntalið í lok nóvem-
bermánaðar ár hvert. Manntalið í Reykjavík er tekið með nöfnum eins
og aðalmanntalið, en í manntalsskýrslunum frá prestunum er aðeins fólks-
talan á hverjum bæ eða húsi. Samkvæmt skýrslum þessum var mann-
fjöldinn á öllu landinu:
í árslok 1916 . ... 89 819 í árslok 1921 ... 95 180
- — 1917 . . . . 91 368 - — 1922 ... 96 386
- — 1918 . .. . 91 897 - — 1923 ... 97 704
- — 1919 . . . . 92 855 - — 1924 ... 98 483
- — 1920 . ... 94 436 - — 1925 ... 100 117
Að líkindum eru tölur þessar öll árin heldur lægri heldur en
mannfjöldinn hefur verið í raun og veru, því að æfinlega mun eitthvað
af fólkinu falla undan við ársmanntölin, einkum í kaupstöðum og kaup-
túnum. Við manntalið 1. des. 1920 reyndist mannfjöldinn 94 690, en við
ársmanntalið um sama leyti (prestamanntalið) 94 436 eða 254 lægri. Er
það ekki mikill munur, en búast má við, að ársmanntalið hafi þá haft
nokkurn stuðning af aðalmanntalinu, sem fór fram um líkt leyti, svo að
það hafi orðið nokkru hærra en ella.
2. Mannfjölgun.
Accroissement de la population.
Samkvæmt ársmanntölunum hefur mannfjölgunin verið svo sem
hjer segir:
1916 ......... 760 manns eða 8.5 %o (af þús.)
1917 ......... 1 549 — — 17.2 — —