Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 17
föstudagur 10. október 2008 17Fréttir
GESTAHÚS 21 m²
45 mm bjálki
GARÐHÚS 4,7-9,7 m²
34 mm bjálki
VH ehf · Sími 864-2400
VINSÆLU
GESTA- OG
GARÐHÚSIN
ERU AÐ
SELJAST UPP
Því fer hver að verða
síðastur að eignast
hús frá okkur
á gamla genginu.
Næsta sending gæti
hækkað um 20%.
08
-0
14
3
H
en
na
r h
át
ig
n
Völundarhús.is hafa til
sölu glæsileg ný gesta- og
garðhús sem eru enn
sterkbyggðari en áður.
Nýju húsin eru bjálkahús frá
34 mm að þykkt og koma
með tvöfaldri vatnslæsingu.
Húsin eru tilvalin geymsla
fyrir grillið og
garðhúsgögnin.
GESTAHÚS 15 m²
45 mm bjálki
GESTAHÚS 25 m²
70 mm bjálki
Síðustu tölur benda til þess að heim-
urinn hafi færst nær því að dauða-
refsingar heyri sögunni til, en töl-
urnar voru birtar í tilefni Dags gegn
dauðarefsingu sem var í gær.
Fimm ríki báru ábyrgð á lang-
stærstum hluta allra dauðarefsinga
af hálfu ríkisstjórna á síðasta ári. 137
lönd hafa afnumið dauðarefsing-
ar í lögum og verki, en sextíu lönd
spyrna við fótum, aðallega í tilliti til
einstaklinga sem framið hafa morð.
Árið 2007 fóru fram 1.252 aftök-
ur í 24 löndum, sem vitað er um. 88
prósent þeirra fóru fram í Kína, Íran,
Sádi-Arabíu, Pakistan og Bandaríkj-
unum.
Í lok árs 2007 hafði 91 land af-
numið dauðarefsingu sem úrræði í
hvers kyns glæpum og síðan þá hafa,
samkvæmt samtökunum Reprie-
ve, þrjú lönd bæst í hópinn, Alban-
ía, Rúanda og Cook-eyjar. Reprieve-
samtökin eru fulltrúi allra þeirra
sem eru á dauðadeildum fangelsa
víða um heim.
Betur má ef duga skal
Forsvarsmenn Reprieve-sam-
takanna eru ánægðir með þann ár-
angur sem náðst hefur, en telja engu
að síður að betur megi ef duga skuli.
„Raunveruleikinn er sá að, þrátt fyr-
ir þann árangur sem náðst hefur síð-
astliðið eitt og hálft ár, eru þúsundir
manna teknar af lífi ár hvert í heim-
inum,“ sagði Clive Stafford Smith,
forstjóri Reprieve.
„Ég hef sjálfur orðið vitni að villi-
mennsku þessa dóms, því ég hef ver-
ið viðstaddur aftöku fjögurra skjól-
stæðinga minna og get fullyrt að
ein aftaka er einni of mikið. Við get-
um ekki unnt okkur hvíldar fyrr en
dauðarefsing verður lítið annað en
neyðarlegur kafli í sögu okkar,“ sagði
Smith.
Hvíta-Rússland er eina Evrópu-
landið sem enn heldur í dauðarefs-
ingu, og lönd sem gera það fá ekki
inngöngu í Evrópusambandið. Í
Ameríku eru Bandaríkin eina landið
sem beitt hefur dauðarefsingu síðan
2003. Árið 2006 áttu sér stað 53 af-
tökur í Bandaríkjunum, og var þar
um að ræða fæstu aftökurnar í ára-
tug. Dauðadómum í Bandaríkjun-
um hefur fækkað stöðugt frá því þeir
náðu hámarki um miðjan síðasta
áratug tuttugustu aldar.
Asía í fararbroddi
„Á heimsvísu hefur Asía verið í
fararbroddi hvað varðar fjölda af-
takna,“ sagði Kate Allen, forstjóri
mannréttindasamtakanna Amnesty
International í Bretlandi.
„Fjöldi aftakna sem áttu sér stað
í Kína á síðasta ári gerir þá að böðli
númer eitt í heiminum. Í ár höfum
við horft upp á umtalsverða fjölgun
aftakna í Japan. Aftökur þar í landi
hafa allajafna verið sveipaðar leynd.
Og í Pakistan eru um sjö þúsund
og fimm hundruð manns, þeirra á
meðal börn, á dauðadeild,“ sagði
Kate Allen og skoraði á leiðtoga as-
ískra landa að fresta aftökum sem lið
í að afnema um síðir dauðarefsingu.
Á nokkrum svæðum Asíu þar
sem löng hefð er fyrir aftökum, eins
og í Mið-Asíu, eru skýr teikn á lofti
um að dauðarefsing verði afnumin.
Fyrir skömmu afnámu stjórnvöld
í Kírgistan dauðarfefsingu vegna
venjulegra glæpa. Öllum aftökum
hefur verið frestað í Kasakstan síð-
an árið 2003 og í Tajkistan hefur slík
frestun verið í gildi síðan 2004.
Ástæður dauðarefsingar
Einungis sex Afríkuríki beittu
dauðarefsingu árið 2006. Á síðasta
ári úrskurðaði hæstiréttur Rúanda
að lögboðinn dauðadómur bryti
í bága við stjórnarskrá landsins,
og var dauðarefsingu varpað fyrir
róða. Búrundi, Gabon og Malí þok-
ast í átt til afnáms dauðarefsingar.
Í sjö löndum er dauðarefsingu
beitt í málum sem tengjast kyn-
ferðislegu athæfi á milli fullorðinna
af sama kyni. Þau lönd sem þar um
ræðir eru: Íran, Máritanía, Sádi-
Arabía, Súdan, Sameinuðu fursta-
dæmin, Jemen og einhver svæði í
Nígeríu.
Íran beitir aukinheldur dauða-
refsingu fyrir margs konar glæpi,
þeirra á meðal að „bölva spámann-
inum“, sum fíkniefnabrot, morð,
hórdóm, sifjaspell, nauðgun, áfeng-
isneyslu og sódómsku.
Á síðasta ári tóku írönsk stjórn-
völd 317 einstaklinga, að minnsta
kosti, þeirra á meðal átta sem voru
á unglingsaldri.
Sádi-Arabar eru einungis hálf-
drættingar miðað við Írana, en árið
2007 voru 147 einstaklingar teknir
af lífi, þeirra á meðal börn og þrjár
konur. Fjöldi aftakna í Sádi-Arabíu
það sem af er þessu ári er kominn
upp í fimmtíu og átta.
Í Pakistan er dauðarefsingu beitt
vegna 26 tegunda glæpa, þeirra á
meðal morð, guðlast, verslun með
vopn og eiturlyf, vopnuð rán, að
rífa föt utan af konu á almannafæri,
kynlíf utan hjónabands og nauðg-
un.
Líkt og í Pakistan eru í Jemen
ýmsir glæpir sem refsað er fyrir
með dauðadómi. Þar gætir ýmissa
grasa, til dæmis að stofna flutning-
um og samgöngum í voða, að af-
neita trú, fremja rán, vændi og hór-
dómur.
Skráðar aftökur 2007
kína: 470+
Íran: 317+
sádi-arabía: 143+
Pakistan: 135+
bandaríkin: 42
Írak: 33+
Víetnam: 25+
Jemen: 15+
afganistan: 15
Líbía: 9+
+ á eftir tölu merkir að aftökur
hafi jafnvel verið fleiri
Ýmislegt bendir til þess að dauða-
dómum fari fækkandi á heimsvísu.
Þeim löndum sem beita dauðarefs-
ingu fer fækkandi og vonast and-
stæðingar dauðarefsingar til þess
að þær heyri brátt sögunni til. En
betur má ef duga skal, segja for-
svarsmenn samtaka sem eru full-
trúi allra þeirra sem eru á dauða-
deildum víða um lönd.
Aftökur
á undAnhAldi
KolBeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Ég hef sjálfur orðið vitni að villimennsku
þessa dóms, því ég hef verið viðstaddur aftöku
fjögurra skjólstæðinga minna og get fullyrt að
ein aftaka er einni of mikið.“
Aftaka í Íran Íran er
eitt þeirra landa sem
beita aftökum í
miklum mæli.
Mótmæli gegn
dauðarefsingu Víða
er dauðarefsingu beitt
vegna annarra afbrota
en morða.