Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 41
föstudagur 10. október 2008 41Sport
Austurblokkin hjá EnglAndi enska landsliðið mætir í landsleikjavik-
unni liðum kazakstans og Hvíta-rússlands. england mætir kazakstan á úti-
velli sama dag og Ísland mætir Hollandi, og svo tekur england á móti Hvíta-
rússlandi á Wembley næstkomandi miðvikudag. england fékk blússandi
start í riðlinum þegar það lagði andorra og króatíu úti í fyrstu tveimur leikjun-
um. andorra vann england ekki svo sannfærandi, 2–0, en allt annað var að sjá
liðið gegn króatíu þar sem england valtaði yfir gestgjafana, 4–1. enska liðið
mun njóta krafta Waynes rooney í leikjunum tveimur en talið var að hann
væri meiddur eftir að hann fór af velli haltrandi gegn aab í Álaborg. Hann lék
svo með Man. united í sömu viku og skoraði gegn blackburn.
ekki ár Chelsea í deildinni þótt það
ynni bikarinn. Manchester United
reis aftur upp á yfirborðið eftir fjög-
urra ára lægð og endurheimti úrvals-
deildartitilinn. Það ár fékk Chelsea
„aðeins“ fimm stig gegn stóru liðun-
um þremur á heimavelli en það hef-
ur verið vant því að ná í það minnsta
í sjö stig. Munurinn er ekki mikill en
telur í jafnri baráttu á toppnum.
getur ekki tapað
Það er ástæða fyrir því að Chelsea
tapar ekki leik í deildinni á heima-
velli. Augljós útskýring er auðvit-
að að það er frábært lið og frábær
lið tapa fáum leikjum á heimavelli.
Þar liggur samt hundurinn grafinn.
„Fáum.“ Manchester United hefur
státað af bestri stigasöfnun á heima-
velli síðustu tvö tímabil en hefur þó
ekki farið taplaust í gegnum þau. Un-
ited sigrar í langflestum leikjum sín-
um en tapar ávallt einum eða tveim-
ur.
Chelsea aftur á móti neitar að
tapa á heimavelli. Stór ástæða þess
er sjálfstraustið og hungrið sem lið-
ið hefur til þess að halda þessu meti
gangandi. Í 86 leikjum hefur Chelsea
lent í kröppum dansi á heimavelli og
jafnað undir lok leikjanna. Það sem
markverðast verður þó að teljast að
það gerist mjög sjaldan. Þegar leik-
menn Chelsea ganga út á Brúna taka
þeir yfirleitt öll völd í leiknum og eru
líklegri aðilinn frá upphafi til enda.
Chelsea sýnir meira að segja oft
styrkleikamerki með veikleikamerkj-
um. Síðustu tvö ár hefur Chelsea átt
nokkra leiki á tímabili þar sem það
lék afleitlega. Skýrt dæmi er leik-
irnir gegn Reading og Fulham 2006
sem kostuðu Chelsea toppsætið til
Manchester United sem það sleppti
ekki takinu af. Þar gerði Chelsea
tvö jafntefli í röð þrátt fyrir að það
léki það sem Alan Hansen og Mark
Lawrenson, sérfræðingar breska
ríkisútvarpsins, kölluðu: „Verstu
frammistöðu Chelsea undir stjórn
Mourinhos.“
liverpool næst á dagskrá
Ekkert lið hefur valdið Chelsea
jafnmiklum sárindum síðustu ár og
Liverpool undir stjórn Rafaels Ben-
itez. Þó Liverpool hafi ekki tekist að
vinna Chelsea í deildinni virt-
ist Benitez alltaf hafa svar gegn
Chelsea í meistaradeildinni og
var það Þrándur í Götu þeirra
bláu á leið sinni að aðaltak-
marki Romas Abramovich.
Chelsea komst yfir þá hindr-
un eftir magnaða undan-
úrslitaleiki í fyrra þar sem
framlengingu þurfti til
að útkljá leikinn.
Næstir á Brúna
verða Rómverjar
í meistaradeild-
inni en 26. októb-
er leggur Chels-
ea metið sitt að
veði í 86. skipt-
ið. Þá kemur ein-
mitt Liverpool í
heimsókn en þessi
tvö lið eru einu taplausu liðin í
ensku úrvalsdeildinni. Liverpool
hefur tapað öllum sínum viður-
eignum á Brúnni undir stjórn
Benitez í deildinni og ekki skor-
að mark. Er þetta ár Liverpool?
Það hefur sjaldan verið í betra
formi og endurkoma þess gegn
Manchester City um síðustu
helgi segir margt um liðið.
Liverpool mun þó leika á
Stamford Bridge, Brúnni. Gegn
Chelsea-liði með ekki bara met
að veði. Því að öllum metum
slepptum verða alltaf þrjú stig í
boði. Þrjú stig fyrir sigurvegar-
ann sem mun ná forystu í ensku
úrvalsdeildinni með sigri. En svo
má alltaf segja: „Þetta er stórleikur
á Brúnni. Ætli hann endi ekki með
jafntefli?“
EKKI VERÐUR
GENGIÐ YFIR
ÞESSA BRÚ
Óvinnandi vígi Leikmenn Chelsea
undir stjórn Claudios ranieri, Joses
Mourinho, avrams grant og Luis felipes
scolari hafa ekki tapað í 86 deildarleikj-
um í röð á stamford bridge, brúnni.
stórkostlegur leikur Chelsea
komst loks í úrslit meistaradeild-
arinnar þegar það lagði
Liverpool í undanúrslitum í maí.
Liverpool hafði verið liðinu
Þrándur í götu fram að því.
brúarvörðurinn
frank Lampard sér til
þess að brúin verði
áfram óvinnandi vígi.
heldur vörð um metið Það
er nú undir brasilíumanninum
Luis felipe scolari komið að
halda metinu gangandi.
Óskum eftir
duglegu starfsfólki
í eldhús og sal.
Upplýsingar í síma 551 8666
eða vidtjornina@simnet.is
STEYPUSÖGUN
KJARNABORUN
MÚRBROT
l
l
l