Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 37
föstudagur 10. október 2008 37Helgarblað
Hildur Vala
söng sig inn í hjörtu landsmanna í gegnum íslenska Idolið.
einlægni hennar og silkimjúk röddin þótti heillandi. flestir
voru á því að þarna væri stjarna á ferð og Hildur gerði það
ágætlega gott með sinni fyrstu og einu plötu. síðan fann hún
ástina í örmum Jóns ólafssonar úr Nýdönsk. Þau eignuðust
barn saman og sagan segir að Hildur hafi ákveðið að draga
sig út úr sviðsljósinu. segja upp plötusamningnum og
einbeita sér að nýja hlutverkinu í lífi sínu. að vera mamma.
Tantra-fólkið
Nokkur pör urðu heimsfræg á Íslandi þegar þau tóku þátt í
hinum svokölluðu tantra-þáttum jógakennarans guðjóns
bergmann. tantra fjallaði á opinskáan hátt um samnefnda
kynlífsspeki og opnuðu pörin sig upp á gátt. Íslendingar vissu
ekki hvaðan á sig stóð veðrið og vöktu þættirnir mikla athygli.
Pörin gleymdust þó fljótt eftir að þeim lauk.
Rokklingarnir
allir krakkar á Íslandi vildu vera í rokklingunum á sínum
tíma. Nú þakka þessir sömu krakkar fyrir að hafa ekki verið
það. rokklingarnir sungu íslensk dægurlög og gerður var
fjöldinn allur af myndböndum með þeim. rokklingarnir voru
krakkar á öllum aldri sem þóttu töff og flottir. Nokkrum árum
seinna þóttu þeir alls ekki jafn töff og flottir. flestir sem tóku
þátt í verkefninu vildu helst gleyma því en geta eflaust
hlegið að þessu í dag.
Frægir
í 15 mínútur
Luxor
einar bárðason, umboðsmaður Íslands hitti naglann á
höfuðið með fyrstu íslensku stúlknasveitinni Nylon á
sínum tíma. Hann ákvað að gera slíkt hið sama með
strákabandi. strákasveitin Luxor átti sér stóra drauma.og
gaf út plötu síðustu jól með ábreiður af klassískum
lögum. Platan seldist ágætlega en hljómsveiting Luxor
lagði upp laupana snemma á þessu ári. Áður en sveitin
hætti náðu þó nokkrir meðlimirnar að næla sér í frægar
kærustur.
Helgi Þór Arason
Helgi sló í gegn í annarri seríu í Idolinu og þá ekki fyrir
sönghæfileika sína, heldur ástarsamband sitt við brynju
Valdimarsdóttur, keppanda þi Idolinu. almenningingur hafði
ótrúlegan áhuga á þessu daðri og náðust meðal annars
myndir af þeim að kyssast í keilu. Helgi Þór var í sjónarsvið-
inu um tíma. Hann stjórnaði stefnumótaþættinum djúpu
lauginni um stund og lék í bensínauglýsingu. Það hefur farið
afar lítið fyrir honum síðastliðin tvo ár.
Snorri Snorrason
snorri sló strax í gegn í þriðju Idol-seríunni sem stóð yfir
fyrir tveimur árum. Hann minnti óneitanlega mikið á stefán
Hilmarsson og söng eins og axl rose. dómararnir kölluðu
hann hvíta kónginn og hann hreif alla þjóðina með sér.
eiginkona snorra, Inga Þóra Jónsdóttir, og synir þeirra þrír
fengu þó mesta athyglina á meðan keppnin stóð yfir.
Myndavélinni var oft á tíðum beint á fjölskylduna er snorri
steig á svið. snorri gaf út plötu um leið og Idolinu lauk. Það
fór frekar lítið fyrir þeirri breiðskífu og sneri snorri sér að
allt öðruvísi tónlist. Hann vinnur mikið með gunna bjarna
úr Jet black Joe og hefur meðal annars spilað með þeim á
tónleikum.
Anna Katrín Guðbrandsdóttir
Hin sautján ára anna katrín söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar
í fyrstu Idol-stjörnuleitinni árið 2003. ekki bara söng hún sig
inn í hjörtu íslenskra sjónvarpsáhorfenda heldur bræddi
hún líka kónginn sjálfan, bubba Morthens, sem var einn af
dómurum keppninnar. bubbi kallaði önnu svo eftirminni-
lega sjarmatröll enda hæfileikarík ung stúlka hér á ferðinni
með mikla útgeislun. anna lenti í þriðja sæti í Idolinu og
hefur lítið heyrst til hennar síðan.
Aðrir sem áttu 15 mínútur
bjarni tryggvason - kanadíski geimfarinn
friðrik 2000
Charlie - Leyndardómar skýrslumálastofnunar
telma eurovisionfari
kio briggs
sigrún Þorsteinsdóttir - forsetaframbjóðandi
arnór diego - fyrsti Herra Ísland
bóas kristjánsson - pepsídrengurinn
Úlfar Linnet - fyndnasti maður Íslands
rósa guðmundsdóttir - spotlight
reynir Pétur
Páll banine
arne arhus
the boys
Þór Jósefsson - Herra Ísland ´96
Ingibjörg Stefánsdóttir
Ingibjörg stefáns var sú alheitasta í bænum í byrjun 10
áratugarins. Hún lék aðalhlutverkið í hinni stórmerkilegu
mynd Veggfóður – sem var ekkert annað en kynslóðamynd
síns tíma. Ingibjörg var einnig í sveitinni Pís of keik ásamt
kvikmyndagerðarmanninum Júlla kemp. Þau áttu nokkur lög
á meistaraverkinu Ice rave. Ingibjörg var tíður gestur á síðum
séð og heyrt, en hún snéri baki við leiklistinni og söngnum
og gerðist jógakennari. einnig hefur Ingibjörg komið að
skipulagningu V-dagsins á Íslandi ásamt fleiri góðum konum.