Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 25
Á tímum ótta og vanmáttar hljótum
við að leita til þeirra sem hafa reynslu
af þeirri erfiðu tvennu. Við verðum
raunar að leita til þeirra sem hafa eytt
öllum sínum líftíma til að hjálpa öðr-
um og við erum heppin að hafa tæki-
færi til að deila með þeim reynslu og
vitsmunum. Í þessum fáorða kjallara
verður ekkert uppi á teningnum nema
það sem er lífsnauðsynlegt hverjum
manni að hugleiða, hvort sem hann
hefur tapað miklum peningum eða
engum eða hvort sem hann átti mikl-
ar eignir eða engar.
„Það er best að gefa og gefa gleður,“
sagði móðir Teresa sem sannarlega
þekkti hina mestu mannlegu eymd
og hún sagði líka allt það sem hér fer á
eftir. Ég vona að okkur beri gæfa til að
hugsa um orð hennar um leið og við
hljótum líka að gleðjast vegna þess að
í hinu vaxtalausa en ríka tungumáli
okkar felast raunveruleg verðmæti.
Orð eru dýr og svona notar móðir
Teresa þau. Ég held að við ættum að
taka þau alvarlega og tileinka okkur
hugmyndir þeirra. Við þurfum á þeim
að halda og við þurfum líka á því að
halda að lifa samkvæmt þeim. Ger-
um það!
Fólk er oft sjálfselskt, óskiljanlegt
og ótryggt
– fyrirgefðu því samt.
Ef þú ert örlátur muntu ef til vill
verða ásakaður um sjálfselsku
– vertu samt örlátur.
Ef þér vegnar vel muntu eignast
falska vini og sanna óvini
– leitastu samt við að vegna vel.
Ef þú ert heiðarlegur og hrein-
skiptinn mun fólk ef til vill notfæra
sér þig
– vertu samt heiðarlegur og hrein-
skiptinn.
Það sem þú hefur eytt árum í að
byggja upp mun einhver ef til vill
eyðileggja á einni guðslifandi nóttu
– byggðu samt.
Ef þú finnur frið og hamingju verð-
ur einhver ef til vill öfundsjúkur
– vertu samt lukkulegur.
Það góða sem þú gerir í dag verður
ef til vill gleymt á morgun
– gerðu samt gott í dag.
Gefðu heiminum það besta sem
þú getur og það nær áreiðanlega ekki
langt
– gefðu samt það besta sem þú
getur.
Því þegar allt kemur til alls er þetta
milli þín og guðs, og hvað sem þú kýst
að kalla hann, móður eða föður eða
alheimsanda, skaltu samt skilja hjarta
þitt og orðin sem leita til þess
– það var aldrei milli þín og hinna.
FÖSTUDAGUR 10. okTóbeR 2008 25Umræða
Hver er konan? „Margrét Dórothea
Sigfúsdóttir.“
Hvað drífur þig áfram? „Lífsgleðin
og lífsviljinn. Það er gaman að lifa.“
Hvar ertu uppalin? „Á Selfossi.“
Hvað var í uppáhaldi á æskuár-
unum? „Mér fannst ofsalega gaman
í brennibolta. og í búleik. Maður átti
búkofa og allar græjur.“
Áttu þér uppáhaldshúsverk?
„elda, elda, elda. Mér finnst líka
gaman að taka til.“
Hvenær fara fræðslukvöldin
fram? „Þau voru tvö síðustu
þriðjudagskvöld. Það kemur annar
fyrirlesari og verður tvö næstu.“
Hversu mikið er hægt að skera
niður matvælakostnað? „Það er
alveg hægt að skera niður um 30 til
40 prósent.“
Hvað gerir þú til að hagræða í
kreppunni? „Ég kaupi bara akkúrat
í matinn. Ég kaupi ekki þetta dýra
sem mann langar kannski til að gera.
Það er ekkert humar og nautasteik
núna. Það borgar sig að kaupa svona
passlegt en gera ekki alltaf ráð fyrir
þeim sem koma kannski.“
Hvernig var tilfinninginn þegar
Sigfús og strákarnir unnu silfrið
á Ólympíuleikunum? „Hún var
eiginlega ólýsanleg. Það var mikil
gleði.“
Er Sigfús duglegur við húsverk-
in? „Já, þegar hann vill. Hann kann
þetta allt saman. Hann er góður í að
taka til og elda þegar hann vill.“
Mætir þú á leiki? Ég hef ekki mætt
á nema einn í vetur sem er ekki nógu
gott. Maður er búinn svo seint að
vinna að maður vill helst bara hvíla
sig.“
Einhver kreppuráð sem þú vilt
koma til stjórnmálamanna? „Ég
vona að þeir vinni þjóðina út úr
þessu. Það er það sem allir vona.“
Móðir Teresa vissi það
Fyrsti morgunninn Viðskiptavinir kaupþings voru margir hverjir uggandi um innistæður sínar eftir að Fjármálaeftirlitið tók bankann yfir. Í gærmorgun söfnuðust þeir því
saman í útibúi bankans við Hlemm og reyndu að fá úrlausn sinna mála. Mynd Sigtryggur Ari
Hvernig Hefur kreppan áHrif á þig?
„Ég vona það besta. Það eina sem ég
get gert er að bíða eftir að krónan
styrkist, þá get ég kannski farið aftur til
Póllands.“
BArtoSz KucHArSKi,
21 ÁRS bÍLAÞVoTTAMAðUR
„ekkert svakalega góð en ég nenni ekki
að leggjast í þunglyndi.“
SArA JÓnSdÓttir,
23 ÁRA innkAUPASTJóRi HJÁ n1
„Ég átti hlutabréf í Glitni, segir það ekki
það sem segja þarf?“
rEynir EinArSSon,
27 ÁRA STÖðVARSTJóRi bUDGeT
„Hún hefur engin gríðarleg áhrif á mig,
höfuðstóllinn hefur hækkað og ég þarf
að borga mikið meira.“
VigdíS HElgAdÓttir,
42 ÁRA AFGReiðSLUDAMA
Dómstóll götunnar
MArgrét dÓrotHEA
SigFúSdÓttir
hússtjórnarkennari hefur haldið
fyrirlestra í Laugarneskirkju
undanfarið þar sem hún kennir
Íslendingum kreppuráð. Að taka
slátur og læra að kaupa rétt í matinn.
Margrét segir Sigfús, son hennar og
handboltahetju, lunkinn við
húsverkin þegar hann vill.
Minnkaðu Matar-
kostnað uM 40%
„Hún hefur ekki nokkur einustu áhrif á
mig, ég er bara bjartsýn.“
guðrún MAríA runÓlFSdÓttir,
50 ÁRA VAkTSTJóRi
kjallari
mynDin maður Dagsins
VigdíS
gríMSdÓttir
rithöfundur skrifar
Það góða sem þú ger-
ir í dag verður ef til vill
gleymt á morgun
- gerðu samt gott í
dag.