Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 40
föstudagur 10. október 200840 Sport Ísland mætir Hollandi Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leikur sinn erfiðasta leik í und- anriðli sínum í fyrsta heimsmeistaramótinu í suður-afríku á laugar- daginn. Ísland heimsækir þá Hollendinga en leikið er í rotterdam. Ísland gerði jafntefli í fyrsta leik sínum gegn Noregi en tapaði hér heima fyrir skotlandi í öðrum leiknum. Hollendingar hafa aðeins leikið einn leik í riðlinum en þeir lögðu Makedóna, 2–1, í Makedón- íu. Leikurinn hefst klukkan 18.45 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á stöð 2 sport. Heimavallarárangur Chelsea í ensku úrvalsdeildinni er nokkuð sem á sér enga hliðstæðu í fótbolta í dag. Lið- ið hefur ekki tapað í 86 úrvalsdeild- arleikjum í röð en sá síðasti í röðinni var afar sannfærandi sigur á Aston Villa, 2-0, á Brúnni, um síðustu helgi. Helgina áður hafði Chelsea haldið metinu áfram gangandi með jafntefli gegn Manchester United þegar Sal- omon Kalpu jafnaði metin í seinni hálfleik eftir að Englandsmeistararn- ir höfðu náð forystunni. Chelsea hefur frá því sigurgang- an hófst, 20. mars 2004, leikið þrett- án leiki gegn hinum þremur „stóru“ liðunum í deildinni, Manchester United, Arsenal og Liverpool. Ár- angurinn gegn þeim er magnaður. Níu sigrar, fjögur jafntefli og augljós- lega ekkert tap. Auk þess í þessum þrettán leikjum hefur Chelsea að- eins fengið á sig fjögur mörk. Þessi árangur hjálpaði liðinu til tveggja Englandsmeistaratitla undir stjórn Joses Mourinho sem í dag þjálfar Internazionale. Eiður og duff byrjuðu Eins og áður segir hefur Chelsea ekki tapað á Brúnni síðan 20. mars 2004. Chelsea lék þá gegn liði Ful- ham og sigraði fjendur sína frá Vest- ur-Lundúnum 2-1. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði fyrsta mark- ið í leiknum með fallegu skoti fram- hjá Edwin Van Der Sar sem þá stóð í marki Fulham. Hinn geðþekki nagli, Mark Pembridge, jafnaði metin að- eins tólf mínútum síðar en Damien Duff skoraði sigurmarkið á 30. mín- útu. Chelsea lék fjóra leiki til viðbót- ar á heimavelli það árið. Liðið gerði jafntefli við Middlesbrough og Ev- erton í næstu tveimur leikjum, valt- aði yfir Southampton, 4-0, í næstsíð- asta leiknum og lagði svo Leeds, 1-0, í lokaleik ársins 2004. Einir til að vinna arsenal Fyrir tímabilið 2003/2004 kom maðurinn sem breytti enskri knatt- spyrnu til Chelsea. Rússneski auðjöf- urinn Roman Abramovich. Hann gaf Ítalanum Claudio Ranieri, sem þá stýrði liðinu, fjárráð sem aldrei höfðu áður sést í enskri knattspyrnu. Rani- eri keypti til liðsins Damien Duff, Glen Johnson, Joe Cole og Claude Makelele svo eitthvað sé nefnt en alls eyddi hann um 100 milljónum punda sem er tilgangslaust að breyta í íslenska mynt í dag. Chelsea varð um leið líklegasta liðið til að vinna úrvalsdeildina en náði aðeins öðru sæti á eftir ótrúlegu Arsenal-liði sem vann í deildinni án þess að tapa leik. Í meistaradeildinni aftur á móti lagði Chelsea Arsenal þar sem okkar maður, Eiður Smári, lék lykilhlutverk. Með þeim sigri felldi Chelsea grýluna sem hafði leg- ið á því gegn Arsenal en fyrir leikinn í meistaradeildinni 2004 hafði Chels- ea ekki unnið Arsenal í átján leikjum í röð. mourinho, já, mourinho Það er hálfklisjukennt að tíunda þátt Abramovichs og Mourinhos í uppgangi Chelsea. En þegar farið er yfir þetta ótrúlega met verður ekki litið framhjá þætti þess ágæta manns sem kallar sig „Þann sérstaka“. Hann kom eins og stormsveip- ur inn í enska knattspyrnu með Evr- ópumeistaratitil á bakinu eftir tíma sinn hjá Porto. Roman Abramovich gaf það strax út að hann vildi sjá lið- ið vinna meistaradeildina og fyrst Mourinho gat gert það með Porto ætti ekki að vera mikið vandamál að endurtaka leikinn með endalaus fjárráð. Strax var hafist handa á leik- mannamarkaðinum. Paulo Ferreira og Ricardo Carvalho voru keyptir til þess að styrkja vörnina. Petr Cech í markið og Didier Drogba í fram- línuna til þess að nefna fáein nöfn. Næstu tvö ár komst ekkert lið með tærnar þar sem Chelsea hafði hælana í ensku úrvalsdeildinni og skilaði Mourinho fyrsta Englandsmeistara- titli Chelsea í 50 ár í hús. Annar jafn- öruggur fylgdi svo á eftir. djöflarnir vöknuðu Chelsea var á þessum tíma með það sem XXX Rottweiler myndu kalla: „Úrvalslið Reykjavíkur og ná- grennis.“ Félagið keypti þá sem það vildi, þegar það vildi og kristallaðist það með kaupunum á Andry Schev- chenko sem kom til félagsins fyrir það sem þá var metupphæð, 30 milljón- ir punda. Tímabilið 2006/07 varð þó „Með þeim sigri felldi Chelsea grýluna sem hafði legið á því gegn Arsenal en fyrir leikinn í meist- aradeildinni 2004 hafði Chelsea ekki unnið Ars- enal í átján leikjum í röð.“ tÓmas ÞÓr ÞÓrÐarson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Sport EKKI VERÐUR GENGIÐ YFIR ÞESSA BRÚ Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea státar af einstökum árangri á heimavelli sínum, Stamford Bridge. Á vellinum, sem betur er þekktur sem Brúin, hefur Chelsea ekki tapað í 86 deildarleikjum í röð. Met sem hófst í mars 2004 með marki Eiðs smára Guðjohnsen og stendur enn eftir sigur Chelsea á Aston Villa um síðustu helgi. Fjórir knattspyrnustjórar hafa staðið vörð um metið og nú er það undir Brassanun luis Felipe scolari komið að halda því gangandi. Arsenal Bolton Wanderers Chelsea Everton Aston Villa Blackburn Rovers Fulham Hull City Middlesbrough Newcastle United Sunderland Liverpool Manchester City Manchester United Portsmouth Stoke City Wigan AthleticWest Bromwich AlbionTottenham Hotspur West Ham United .... 85, 86
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.