Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 52
Það eru víst ófáir einstakl-
ingar í þessari veröld sem eftir
stífa drykkju í lok vinnuvikunnar
stunda það að senda tölvupóst á
fyrrverandi maka eða yfirmann
sem fer í taugarnar á þeim. Síðan
þegar vaknað er næsta morgun
rennur upp fyrir mönnum, þeg-
ar þeir lesa póstinn sem send-
ur hefur verið, að kannski hefði
þetta betur mátt kyrrt liggja.
Hugmyndaríkur forritari hjá
Google-fyrirtækinu hefur þróað
kerfi sem getur kom í veg fyrir
svona illa ígrundaðar póstsend-
ingar eða allavegana fengið við-
komandi til að endurskoða at-
hafnir sem hann sér líklega eftir
næsta dag.
Kerfið, sem kallast Mail Gogg-
les, er hægt að stilla þannig að
það virki eingöngu síðla nætur
og um helgar þegar mesta hætt-
an er fyrir hendi.
Þegar viðkomandi reynir síðan
að senda póst á þessum tíma er
lagt fyrir hann stutt stærðfræði-
próf sem hann þarf að leysa inn-
an ákveðins tímaramma. Ef hon-
um tekst það ekki kemur Goggles
í veg fyrir að pósturinn sé send-
ur og þá verður viðkomandi ein-
faldlega að sofa úr sér vímuna
áður en lengra er haldið.
Jan Perlow, höfundur Goggl-
es, viðurkennir að hugmyndin að
forritinu byggist á persónulegri
reynslu. Goggles sé beint að þeim
sem séu orðnir aðeins of þreyttir
og tilfinningasamir til að sjá fyrir
afleiðingar gerða sinna.
„Ég sendi stundum skilaboð
sem aldrei hefðu átt að sjá dags-
ins ljós,” segir Perlow. „Eins og
þegar ég sendi fyrrverandi kær-
ustunni tölvupóst seint um nótt
um að ættum að byrja saman aft-
ur.”
Kannski er Goggles tilvalið
fyrir marga Íslendinga sem þurfa
mikið að tjá sig eftir að heim er
komið af barnum.
palli@dv.is
Google býður nú
uppá þjónustu fyrir
þá sem eiga erfitt
með að hemja sig að
senda ekki tölvu-
póst eftir að hafa
fengið sér of mikið
neðan í því í lok
vinnuvikunnar
Engin færsla
punkta
Nintendo hefur gefið út að þótt
nafni hinna svokölluðu „Wii
Points“ hafi verið breytt í
„Nintendo Points“ verði ekki
hægt að flytja þá á milli véla. Sem
sagt þú getur ekki notað
Nintendo Points af Wii á DS og
öfugt. Sem sagt ef þú kaupir þér
Nintendo-punkta og notar þá til
þess að kaupa þér DSWare þarftu
að nota afganginn af punktunum
til þess að kaupa DSWare.
Leikjaframleiðandinn Namco Bandai
hóf þátttöku sína á leikjaráðstefnunni í
Tókýó sem nú stendur yfir með því að
tilkynna um útgáfu Tekken 6. Mikið
hefur verið beðið eftir sjöttu útgáfunni
af þessum klassíska og einum
vinsælasta bardagaleik allra tíma. Það
sem vekur þó einna helst athygli er að
leikurinn kemur bæði út á Xbox 360 og
PS3.
Hingað til hefur Tekken einungis verið á
PlayStation og því um stórt skref fyrir
Microsoft og Xbox að ræða. Það verður
æ algengara að leikir sem hafa einungis
verið á PS séu líka að koma út á Xbox.
Devil May Cry er dæmi um PS-leiki sem
færðu sig yfir. Það er hins vegar minna
um að dæmið sé öfugt. Eða að Xbox-
leikir komi út á PS3.
Leikurinn verður kominn í hillur
verslana næsta haust.
Katsuhiro Harada, yfirumsjónarmaður
Tekken, segir að það hafi verið erfitt
verkefni að yfirfæra leikinn fyrir Xbox
360 þar sem hann var hannaður á PS3.
„Þar ertu bæði með Blu-Ray og mun
stærri harðan disk. Þannig að það væri
lygi að segja að þetta hafi ekki verið
verðugt verkefni.“
asgeir@dv.is
Tekken 6 kemur
næsTa hausT
föSTuDaguR 10. oKTóBER 200852 Helgarblað DV
Tækni
uMSjóN: PÁLL SVaNSSoN palli@dv.is
SoNy Skýtur á NiNteNDo
john Koller, einn af markaðsstjórum Sony, hefur
skotið föstum skotum að Nintendo varðandi nýju
Nintendo DSi-vélina. Nintendo tilkynnti að þriðja
kynslóð DS kæmi út í japan í nóvember og að
hlutverk hennar væri að ná til enn fleiri en gamla
vélin með því að bæta inn myndavél, tónlistarspil-
un og alls kyns aukabúnaði. Koller segir hins vegar
að vélin höfði einungis til barna og hefur ekki trú á
því að hún nái til krakka eldri en 12 ára.
asus mEð
nýja fistölvu
Asus kynnti nýja eee Pc-tölvu í
vikunni, S101. tölvan er mun
þynnri og léttari en fyrri útgáfur
og töluvert meira lagt upp úr
útliti vélarinnar. Hún er líka
dýrari, kostar um 700 bandaríkja-
dali en á móti er engu fórnað á
kostnað smæðar eða þyngdar.
Vélin skartar þremur uSB-
inntökum, innbyggðum
kortalesara, rJ-45 ethernet tengi,
þráðlausu netkorti og Blátönn.
Skjárinn er 10,2 tommur og nær
mest 1024 x 768 upplausn.
itunEs hEldur
áfram vEstra
Apple-fyrirtækið hótaði því fyrir
stuttu að itunes-tónlistarþjón-
ustan yrði lögð niður ef skerfur
lagahöfunda af sölu hvers
einstaks lags yrði aukinn úr níu
sentum. Forsvarsmenn höfundar-
réttarhafa höfðu farið fram á
hækkun í fimmtán sent en
tónlistarútgefendur á lækkun
niður í fimm sent. á endanum var
skipuð sérstök þriggja manna
dómaranefnd af bandarískum
stjórnvöldum sem nú hefur
úrskurðað að hækkun verði í 9,1
sent fyrir lagahöfunda. Úrskurð-
urinn gildir eingöngu fyrir tónlist
sem sótt er gegnum bandarísku
itunes-verslunina.
GoGGles
fyrir ölvaða oG
tilfinninGasama