Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 20
föstudagur 10. október 200820 Helgarblað
gömul og góð ráð hafa reynst mörgum vel í gegnum tíðina. Hér á árum áður þekktist ekki að hlaupa út í búð og fjárfesta í
nýjum fatnaði, munaðarvöru eða dýru og fínu kjöti. Nokkuð sem Íslendingar hafa vanið sig á undanfarin ár. dV gefur lesend-
um nokkur gömul og skemmtileg húsráð úr eldhúsbókinni sem var eitt vinsælasta tímarit húsmóðurinnar hér á árum áður.
SteinSelja
gegn freknum
Bleiurnar eru rándýrar, púðarnir á heim-
ilinu eru orðnir ljótir og brauðið orðið gam-
alt. Hvað er til ráða? Fyrir nokkrum áratug-
um hefðu húsmæður ekki keypt bleiurnar
á kreditkorti, farið í Habitat og keypt nýtt
púðasett eða farið og keypt glænýtt brauð
hjá Jóa Fel og hent því gamla. Þær voru ald-
ar upp til að nýta hlutina. Annað en lands-
menn gera í dag.
DV lítur hér á nokkur gömul og góð ráð
úr Eldhúsbókinni en það tímarit lásu marg-
ar húsmæður Íslands á árunum 1960 og
fram yfir 1980. Þar er að finna mörg gömul
og góð ráð sem gott er að taka sér til fyrir-
myndar í kreppunni í dag.
Vantar ný handklæði?
Þegar nærskyrta mannsins er
orðin slitin að ofan er heillaráð
að klippa hana í sundur fyrir
neðan ermarnar. sívalninginn
sem fæst úr henni má hengja
yfir stöng og láta börnin þurrka
sér um hendurnar á honum.
slík sívalningshandklæði eru
ávallt mjög þægileg og slitna á
öllum flötum
Ónýtir hjólbarðar
ónýta hjólbarða er tilvalið að nota sem
sandkassa fyrir litlu börnin. engin horn til
að reka sig á og sandurinn er á sínum stað
.
Vel girtur svo hann þyrlast síður upp.
Hjólbarðinn getur líka orðið fyrirtaks róla,
ef tvö reipi eru dregin í gegnum hann.
Hugmyndaflug barnanna getur líka orðið
til þess að þau geti notað hjólbarðana til
ýmissa annarra leikja.
Ilmur í herbergið
það er algjör óþarfi að kaupa sér rándýran ilmúða til að fá góða lykt í íbúðina. til að fá góðan ilm er gott að nota gamlar
ilmvatnsflöskur. Það sem gera þarf er að binda tóma flösku með silkibandi á
herðatrén í kjólaskápnum. Þá ilmar
skápurinn jafnt sem herbergið.
Brauðið orðið gamalt?
Það er orðið dýrt að kaupa brauð í dag og
kostar nýtt brauð í bakaríinu yfir 400 krónur
.
reynið einhvern tímann að leggja nokkurra
daga gamalt franskbrauð í heita steikarpön
nu
með loki yfir. brauðið verður sem nýtt.
Naglastyrking
Það er óþarfi að eyða peningum í einhver rándýr naglalökk sem hafa hina ýmsu eiginleika svo sem að styrkja neglurnar, naglaböndin, mýkja, herða eða lengja. ef neglurnar eru linar er mjög styrkjandi fyrir þær að halda þeim við og við ofan í volgri ólífuolíu í um það bil 15 mínútur. Þá er líka auðveldara að ýta upp naglaböndunum.
Vantar nýja púða heima?
Þegar barnið er vaxið upp úr kerrupokanum má búa til gólfpúða úr honum. Látið hreinsa pokann, snúið honum við svo lambaskinnið snúi út, klippið bakstykkið frá og fyllið hann síðan með svamppjötlum. rennilásinn er svo tekinn burt og púðinn saumaður saman.
Málningarráð fyrir eiginmanninn
Næst þegar eiginmaðurinn ætlar að mála
eitthvert herbergisloftið skuluð þið benda
honum á að vissara sé að stinga svampi eð
a
pappírsblaði niður og yfir haldið á penslin
um. Þá
slettist málningin ekki niður á gólfið. til hv
ers að
fara út í byko og kaupa byggingarplast?
Þreyttir smábarnaskór
börn vantar stöðugt nýja skó. fyrst vantar til að halda hita, svo til að geta gengið á og að lokum skó sem börn geta verið í úti við leik. Þau slíta skónum einnig þegar þau eru nýfarin að ganga. Þegar sólarnir á smábarnaskónum eru orðnir hálir, er ráð að ýfa þá með sandpappír.
Hrukkukremin
konur eyða tugum þúsunda í hin ýmsu krem sem þykja hvert öðru betra. eldhúsbókin lumaði á einu ráði varðandi hrukkukrem. Þegar krem eða púður er borið á hrukkótt andlit er ráð að blása út kinnarnar. Þá fá hrukkurnar einnig sinn skammt af kreminu. að jafnaði er notað púður í ljósari lit en undirlagið.
Freknur óþolandi?
Mörgum finnst sínar eigin freknur óspenn
andi
og myndu gera hvað sem er til að losna við
þær.
aðrir eru sáttir. freknum má oft eyða með
því að
nudda andlitið með sítrónusafa eða með
steinselju. eða svo segir eldhúsbókin góða
.
Nýir vetrarhanskar!
Þið eigið eflaust gamla skinnhanska
sem þið eruð hætt að nota, af því
fóður er gatslitið, eða jafnvel dottið
úr og þar með ónothæfir í
vetrarkuldanum. Úr þessu er hægt
að bæta. takið gamla prjónahanska,
sem passa inn í gömlu skinnhansk-
ana. takið fóðrið sem eftir er úr
gömlu hönskunum, ef nokkuð er.
setjið það inn í prjónahanskana,
saumið það fast að ofan um
úlnliðinn og fremst í fingurgómana.
Þá eru skinnhanskarnir aftur hlýir.
Plastbleiur
til að spara kaup á
plastbuxum fyrir bleiubarn
má benda á hvernig nota má
plastpoka fyrir plastbuxur. en
þær sem ekki kunna við
plastbuxur geta notað
plastpokana fyrir plastbleiur.
fyrst er látin venjuleg bleia
(taubleia), síðan plastbleia
(plastpokinn) og síðan
venjulegar buxur.
Athugasemdir fyrir þá sem nota gleraugu!
Þegar farið er úr kulda inn í hita eða
öfugt fellur móða á glerið. er það
þreytandi fyrir þá sem þurfa að nota
gleraugu að staðaldri að þurfa ávallt
að vera að fægja þau. en ef þér fáið
yður glycerinsápu í lyfjaverslunum,
og berið hana á glerin báðum megin og fægið vel á eftir, eigið þér að
sleppa við að þurrka af þeim móðu í
heilan sólarhring á eftir.
LeIkFIMI VIð HeIMILIsstörFIN
að vísu hreyfir húsmóðirin sig mikið við
heimilisstörfin, en gallinn er þó sá að hún gerir
sömu hreyfingarnar daglega við sömu verkin,
en á aðra líkamshluta reynir svo ekkert.
Húsmóðirin getur gert ýmislegt nýtt við
heimilisstörfin.
1. fótakvillar eru fjölmargir og mismunandi .
Marga mætti koma í veg fyrir og jafnvel lækna,
ef fætur og tær væru æfð meir. Hellið úr
pappírskörfunni og tínið upp í hana allt
sem í henni var, með tánum.
2. Það þarf mikla æfingu til að
komast í fullt splitt, en það
gengur betur og öruggar ef þér
æfið yður með því að styðja
höndum á tvo stóla.
3. Þér takið máske ekki á móti
gestum yðar með því að opna
dyrnar með fætinum, en það
er mjög grennandi fyrir
mjaðmirnar.
4. Líkamsæfingar þurfa ekki
alltaf að vera erfiðsvinna. að
reyna að halda jafnvægi með
þurrkburstann á nefinu er góð
æfing fyrir vöðvana.
sAMtíNINgur
úr eLdHúsINu
kartöflurusl, laukur, sykur, salt,
tómatsósa, súputeningur og
hálfur bolli af svínafeiti. Hvað
haldið þið að hægt sé að gera úr
þessu? Varla nokkuð almennilegt
að borða segið þið ef til vill.
reynið að sjóða kartöflurnar með
lauknum, merja það og bæta í
uppleystum súputeningi, tóm-
atsósu, sykri og salti. og síðan á að
láta það allt á pönnu með svínafeitinni
og lofa því að krauma um stund. Þetta er
ágætisréttur, en ekki sakar þó að hafa
örlítið af beikonbitum með graslauk eða
hvítlauk fyrir þá sem hann vilja. borið fram með
franskbrauði eða flatbrauði.
Hin fullkomna húsmóðir gömul
og góð ráð deyja aldrei og nú sem
aldrei fyrr er gott að nýta sér þau.