Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 38
föstudagur 10. október 200838 Helgarblað
„Það er langfarsælast að taka banka-
kreppuna hratt í gegnum íslenska
efnahagslífið, enda býður það upp á
hraðferð. Ef vel tekst til gæti það þýtt
að næsta vor verði íslenska þjóðin á
góðri siglingu og margvísleg tæki-
færi verði þá opin fyrir þá sem vilja
fjárfesta. Allar líkur eru á að lausa-
fjárkreppan herji enn um allt heims-
markaðskerfið þegar Íslendingar
verða búnir að ná tökum á mesta
vandanum og farnir að jafna sig.“
Þannig tekur Guðmundur Frankl-
ín Jónsson, 44 ára kaupsýslumaður í
Prag, til orða. Hann talar af reynsl-
unni. Sjálfur var hann fórnarlamb
netbólunnar um og fyrir aldamót-
in og síðar hremminganna í kjöl-
far 11. spetember árið 2001 þeg-
ar hryðjuverkin miklu voru framin
í New York. Hann bjó þá í Banda-
ríkjunum og var stjórnarformaður
fyrirtækis sem hann átti hlut í. Fyr-
irtækið komst í þrot vegna lausafjár-
skorts. Hann flutti með konu sinni
og þremur börnum til Prag í Tékk-
landi. Þar stundar hann viðskipti og
nemur stjórnmála- og hagfræði til
meistaragráðu við Karlovaháskól-
ann. „Lífið heldur áfram og í öllu
niðurbroti og hremmingum felast
tækifæri,“ segir Guðmundur. Hann
hefur alið manninn erlendis í aldar-
fjórðung, starfað þar af á Wall Street
í 13 ár.
Hann lítur til baka eitt andar-
tak og minnist námsára sinna. „Þá
vorum við félagarnir að vinna fyrir
náminu. Ég gerðist verktaki við að
mála bílastæði. Við vorum fjórtán
félagarnir, þeirra á meðal Björgólfur
Thor Björgólfsson. Nú eru tímarnir
breyttir og gengur á ýmsu.“
Rætur lausafjárkreppunnar
Talið berst að lausafjárkrepp-
unni, sem nú hefur leikið íslensku
þjóðina afar grátt. Því skellur hún af
þessum þunga á Íslandi?
„I.W. Burnham, minn ágæti
vinnuveitandi á Wall Street, var-
aði við þessu skrímsli fyrir 10 árum.
Þetta virkar þannig að sá sem lánar
fé getur keypt tryggingar fyrir því að
lánið verði endurgreitt. Þá er litið á
greiðslubyrðina og jafnvel ríkisins
og gefin einkunn. Í lánasamninga
eru sett ákvæði um að óviðráðan-
legar og ófyrirséðar aðstæður geti
leitt til gjaldfellingar. Lánatryggj-
endur sitja uppi með höfuðverkinn
ef á þetta reynir. Þetta verður eins og
vírus eða snjóbolti sem hleður utan
á sig. Þessar skuldatryggingar réðu
mestu um fall til dæmis Bear Sterns
og Lehman-bankans í Bandaríkj-
unum. Á endanum urðu stjórnvöld
í Bandaríkjunum að koma Freddie
Mac og Fanny Mae húsnæðislána-
bönkunum til hjálpar eins og allir
vita. Bankarnir lánuðu út á misjafn-
lega gott og jafnvel lélegt húsnæði
og seldu svo kröfurnar til húsnæð-
islánabankanna í einskonar skulda-
bréfavafningum eða búntum. Þetta
var ágætt í fyrstu, en síðar fóru alls-
kyns léleg hús og vond veð inn í
þessa vafninga. Spilaborgin byrjar
að falla ef fólk kemst í vanskil. Þús-
undir fasteigna fara í sölu, verð-
ið lækkar og veðin rýrna. Þetta eru
engar smá upphæðir sem um ræð-
ir eða 8.000 milljarðar dollara sem
lánaðir hafa verið til húsnæðis- og
skrifstofubygginga á undanförnum
sex árum í Bandaríkjunum. Þetta
verkar svo þegar fram í sækir einn-
ig á fyrsta flokks veðin og húsnæði
í þeim flokki verðfellur um 20 til 30
prósent. Þar með er skásti hluti hús-
næðismarkaðarins einnig að hluta
orðinn undirmáls. Þess vegna er
þetta kallað undirmálskreppa.“
Niðurbrot felur í sér tækifæri
Kreppan er jafnvel enn meiri á
Íslandi en alheimslausafjárkrepp-
an gefur tilefni til. Í raun er búið að
þurrka út alla eign þúsunda hluthafa
í þremur stærstu bönkum landsins.
„Já, þetta er eins og öfug áfalla-
eða sjokkmeðferð. Undanfarna daga
virðist lögmál Murphy‘s gilda einkar
vel: Allt sem getur farið úrskeiðis fer
úrskeiðis. Eftir hrun Sovétríkjanna
og fall Berlínarmúrsins voru um 800
ríkisfyrirtæki einkavædd í Tékklandi
á því verði sem fólk vildi borga. Þetta
var árið 1991 í stjórnartíð Vasclaws
Klaus. Nú snýst þetta við og lítur út
eins og kapítalisminn sé á brauðfót-
um eða fallinn. Ég er alls ekki sam-
mála því. Joseph Schumpeter var
bankamaður í Austurríki og gerðist
síðar þekktur prófessor í Bandaríkj-
unum. Kenningar hans eru um margt
merkilegar. Hann er upphafsmað-
ur hugtaksins „Creative destruct-
ion“ eða það sem kalla mætti skap-
andi niðurbrot. Eitthvað leysist eða
brotnar upp en í þeim jarðvegi þrí-
fast hugmyndir og skapandi kraftur.
Þegar bankakerfið hefur verið þjóð-
nýtt myndast alveg ótrúleg tækifæri
fyrir þá sem eiga einhverja aura eft-
ir. Og þeir þurfa líka að hafa kjarkinn
til að festa fé í nýjum hlutum, oft á
góðu verði.
En þetta er vitanlega dýrkeypt. Og
unga fólkið getur líka lært af þessu.
Þetta er ágæt lexía fyrir það og okkar
bankamenn. Mér kemur stundum
í hug spakmæli franska heimspek-
ingsins René Descartes, en hann
kvaðst sjaldan hitta menn sem teldu
sig skorta vit og gáfur. Við erum ein-
hvern veginn þannig að við teljum
okkur vita allt best. En menn kom-
ast að því í kreppunni nú að pening-
ar vaxa ekki á trjánum. Starfsmenn
íslensku bankanna eru reynslunni
ríkari og verða betri bankamenn í
framtíðinni.“
Skortur á regluverki
Hvað vill Guðmundur segja um
framvinduna á Íslandi síðustu daga
þar sem sett hafa verið neyðarlög
og ríkið hefur leyst til sín Kaupþing,
Landsbankann og Glitni?
„Hraðinn á upplýsingum er mik-
ill og fréttir berast með leifturhraða.
Fjármagnsflæðið milli landa fer fram
á örfáum sekúndum. Það er erfitt að
glíma við aðstæðurnar þegar all-
ir byrja á sama tíma að hugsa um
sjálfa sig. Ég held að alltaf sé best að
segja sannleikann. Íslendingar reka
bankakerfi sem er tólf sinnum stærra
en ríkið og það gengur ekki upp. Það
hefði hvergi gengið upp. Vera má að
utan um þetta skorti regluverk. En
það hefur ekki verið gert. Við sjá-
um hvað alþjóðleg samvinna er erfið
þegar á reynir. Líttu á Kyoto-samn-
inginn og gróðurhúsaáhrifin. Líttu
á Evrópusambandið þar sem hver
höndin er nú uppi á móti annarri
þegar á reynir. Allir eru að reyna að
bjarga sjálfum sér. Í þessum efnum
er hollt fyrir Íslendinga að hugleiða
að þeir skipta litlu sem engu máli í
þessu ölduróti.
Sólin snýst ekki um Ísland
Hvernig sér Guðmundur Franklín
fyrir sér þróun mála á Íslandi næstu
mánuði og misseri?
„Við eigum eftir að sjá mörg fyr-
irtæki og einstaklinga verða gjald-
þrota. Hlutirnir gerast fljótt og áhrif
bankakreppunnar eru fljót að seytla
í gegnum kerfið. Þetta er áfall en ég
trúi því að að botninum verði fljótt
náð. Því fyrr sem við náum botn-
inum, því betra. Nú ber að ganga
hratt og örugglega til verks. Enn er
hagvöxtur þrátt fyrir allt og menn
ættu fljótt að sjá út úr vandamálun-
um. Það eina sem unnt er að gera er
að halda áfram, við framleiðsluna í
landinu, sjávarútveginn og orkubú-
skapinn og Íslendingar eiga nóg að
bíta og brenna. Menn tapa en líf-
ið heldur áfram og sólin snýst ekki í
kringum Ísland. Því hraðar sem við
náum botninum, því hraðar förum
við upp.“
Sama hvaðan peningar koma
„Ég hef trú á því að á vordögum
verði þetta farið að setjast til. En á
sama tíma verður heimskreppan á
bullandi ferð. Ég trúi því að Ísland
sigli hratt í gegnum versta öldurótið.
Það verður enginn skortur á neinu,
hvorki á olíu né öðru. Það var ekkert
annað að gera en að þjóðnýta bank-
ana. Kaupþingsmönnum datt ekki í
hug að leita ásjár ríkisins. Þeir og aðr-
ir gerðu góða hluti. En var meðan var,
er meðan er, og verður þegar verður.
Ég tala af reynslu og hef misst eigur
mínar í fyrirtæki sem ég var stjórn-
arformaður í. Við missum eitthvað
og fáum annað í staðinn. Við ætt-
um kannski að draga í lengstu lög að
leita aðstoðar hjá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum. Þeir eru ekkert betri eða
verri en aðrir. Þeir setja sín skilyrði
og taka sín veð gegn aðstoð. Þetta er
allt sama liðið. Menn verða að passa
sig og ganga varlega um. Mín skoðun
er reyndar sú að peningar eru góðir
hvaðan sem þeir koma. Þannig er ég
harðánægður með að Ísland eigi kost
á lánsfé frá Rússlandi. Þegar ég vann
á Wall Street voru okkur kennd þrjú
boðorð sem nauðsynlegt er að hafa
í huga. Hið fyrsta er að þú verður að
þekkja viðskiptavin þinn. Í öðru lagi
er öllum svínum slátrað. Í þriðja lagi
eiga menn að selja ef þeir efast. Þetta
er svo rammað inn á markaði sem
ræðst af græðginni og hræðslunni,“
segir Guðmundur og stingur sér út í
sól og 20 stiga hita í Prag.
Guðmundur Franklín Jónsson vann í 13
ár á Wall Street og varð sjálfur fórnarlamb
netbólunnar um aldamótin og síðar
hremminga á hlutabréfamarkaði eftir
árásirnar á Tvíburaturnana í New York
11. september árið 2001. Hann stundar
viðskipti og nám í Prag og er þess fullviss
að leið Íslendinga upp úr kreppunni verði
jafngreið og fallið var mikið. Þjóðin verði
komin á góða siglingu þegar vorar og jafni
sig mun hraðar en nágrannaþjóðir sem
enn hafi ekki náð botninum.
Verðum
fljót upp úr
kreppunni
Notum tækifærið guðmundur segir að
fari menn hratt í gegnum bankakreppuna
komist Ísland fljótt í góð mál.
Skrímslið á markaðnum Lausafjárskortur
verður eins og veira, eða snjóbolti sem
hleður utan á sig, segir guðmundur franklín.