Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Blaðsíða 46
föstudagur 10. október 200846 Á ferðinni
Á ferðinni
Helgarferð út á land
Margir Íslendingar hafa nú hætt við ferðalög til fjar-
lægra landa vegna augljósra ástæðna í þjóðfélag-
inu. fyrir ykkur sem hafið enn áhuga á að lyfta ykk-
ur upp og krydda tilveruna má ekki gleyma hversu
gaman getur verið að ferðast hér innanlands. Hin
ýmsu hótel bjóða upp á gistingu og ljúffengan mat
á góðu verði og gæti því verið góð hugmynd að
bjóða makanum í rómantíska helgarferð út á land.
uMsjón: Ásgeir jónsson asgeir@dv.is
Með briMbrettið
á toppnuM
Ólafur Pálsson er nýkominn til Íslands eftir þriggja ára dvöl í Ástralíu. Hann lagði stund á nám í tveimur
skólum og er nú kominn heim með mastersgráðu í fjármálaáhættustýringu. Á þessum þremur árum hefur
Ólafur kynnst miklu af fólki, ferðast víða og upplifað menningu Ástrala. Hann spjallaði um dvölina, ævin-
týrin og heimkomuna við Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur.
„Þeir vita ákveðna hluti um Ís-
land, eins og að Ísland sé grænt
og að Grænland sé hvítt, það er
þeim kennt í skólum. Mikið meira
vita þeir ekki,“ segir Ólafur Pálsson
sem er nýkominn heim úr þriggja
ára námi frá Ástralíu um þekkingu
Ástrala á Íslandi.
Það var fyrir rúmum þremur
árum þegar Óli Páls, eins og hann
er betur þekktur, stóð frammi fyrir
því að velja sér nám að skóli í borg-
inni Perth í Ástralíu vakti athygli
hans. Óli sótti um í skólanum og
komst inn. „Það var eiginlega ekki
fyrr en ég var kominn inn í skólann
og var að undirbúa för mína að ég
áttaði mig á því hvert ég væri í raun
að fara og hversu langt frá heima-
landinu ég yrði,“ segir Óli þegar
hann rifjar upp hvernig þetta allt
byrjaði.
Vel undirbúinn
Óli undirbjó för sína vel og var
búinn að útvega sér herbergi til
leigu áður en hann hélt út tveimur
mánuðum áður en skólinn átti að
hefjast. „Ég var búinn að tryggja
mér herbergi hjá ástralskri stúlku
sem bjó í íbúð við ströndina. Ég
sá alveg fyrir mér í huganum hvað
þetta yrði huggulegt.“ Þegar Óli
kom út varð raunin hins vegar
önnur. „Stúlkan ástralska var að-
eins átján ára, gerði lítið annað en
að djamma og gekk hræðilega um
íbúðina.“ Óli fékk sem betur fer til
sín góða vini og byrjaði hann því á
því að ferðast vítt og breitt um Ástr-
alíu í einn og hálfan mánuð áður
en hann settist á skólabekk. Hann
segir það hafa verið nauðsynlegt að
kynnast landi og þjóð örlítið áður
en alvaran tók við.
Þrjú hundruð sólardagar á ári
Óli var eini Íslendingurinn í
Edith Cowan University þar sem
hann lagði stund á nám sem ber
heitið Bachelors of Business and
Communications. Hann ber Ástr-
ölum söguna vel og leið strax vel í
heimalandi þeirra. Hann komst þó
fljótlega í kynni við Íslendinga af
öllum toga. „Á hippaárunum kom
mikið af Íslendingum til Ástralíu og
urðu margir þeirra eftir og búa þar
enn. Því má segja að önnur kynslóð
íslendinga sé nú að rísa þarna úti.“
Einnig var Óli fljótur að eignast vini
alls staðar að úr heiminum.
Í Ástralíu eru yfir þrjú hundr-
uð sólardagar á ári og segir Óli að
vissulega hafi tekið tíma að venjast
því að vera innandyra að læra við
þessar aðstæður. „Reyndar nýtur
maður blíðunnar á hverjum degi í
einhverju formi. Fundar undir ber-
um himni með samnemendum
sínum. Sest á kaffihús með vinun-
um eða skellir sér á brimbretti eftir
skóla.“
Hátíð vínekranna
Í þessum töluðu orðum fer fram
mikil og skemmtileg hátíð í Perth og
segir Óli að hugurinn reiki óneitan-
lega út eins og ástandið er á Íslandi
í dag. „Hátíðin heitir Spring in the
Valley og er uppskeruhátíð vín-
ekranna. Vinir koma saman, leigja
rútu og keyra á milli vínekranna.
Á hverri vínekru er eitthvað þema
sem og í rútunum. Það taka fleiri
þúsund manns þátt í þessari ár-
legu vínekruhátíð.“ Sjálfur tók Óli
þátt í hátíðinni oftar en einu sinni
með sínum vinum og segir hann
þau hafa staðið sig með eindæm-
um vel þegar kom að því að velja
þema rútunnar. Það er auðheyrt á
Óla að mikið hefur verið um sam-
verustundir góðra vina í Ástralíu.
Mikil grillmenning
Óli er mikill áhugamaður um
íþróttir og útiveru og fékk hann
góða útrás fyrir hvort tveggja í Ástr-
alíu. „Ég var í sterkum vinahópi
sem lagði stund á hin ýmsu áhuga-
mál. Við höfum stundað klettaklif-
ur, brimbretti, köfun og siglingar
svo fátt eitt sé nefnt. Einnig gerðum
við mikið af því að fara í útilegur.
Það tók smá tíma að venjast því að
tjalda úti í guðs grænni náttúrunni
þarna úti því hin ýmsu dýr áttu það
til að gera vart við sig. Allar tegund-
ir kóngulóa, lítil pokadýr, snákar
og fleira.“ Mikil grillmenning ríkir
í Ástralíu og segir Óli að grill séu í
öllum almenningsgörðum. „Það
er í raun lítið um ástralskar matar-
hefðir, þeir eru undir miklum áhrif-
um frá Bretunum þegar kemur að
mat. Þeir hafa kannski útfært hann
á sinn máta en ætli grillmenningin
sé ekki það sem stendur hvað helst
upp úr. Það er reyndar fínt þar sem
hægt er að fá eðalkjöt og gómsæta
sjávarrétti fyir lítinn pening.“
Talandi um aurinn segir Óli
að í upphafi dvalarinnar hafi ver-
ið mjög ódýrt að lifa í Ástralíu og
ódýrt fyrir vini og ættingja að kíkja
í heimsókn. „Það hefur því miður
breyst í dag.“
áframhaldandi nám
Óli lauk námi sínu í Perth árið
2007 en lét ekki þar við sitja. Hann
langaði í sérhæft nám og það gerði
hann. Hann flutti sig um set og hóf
því mastersnám í skólanum Mon-
ash University og er skólinn sá einn
af þrjátíu bestu skólum í heimin-
um. Þaðan útskrifaðist hann svo
fyrir stuttu með mastersgráðu í
fjármálaáhættustýringu.
„Þarna var mikið af fólki frá Ind-
landi, Japan og Kína. Það var mjög
algengt að þessir krakkar væru
sendir af fjölskyldum sínum og
fengju mikla umbun fyrir í formi
flottra íbúða og glæsibifreiða. Þeim
voru ætlaðir stórir hlutir. Strákur-
inn á druslunni með brimbrettið á
toppnum vakti því svolitla athygli,“
segir Óli og hlær.
Hákarlaævintýri
Spurður um eftirminnilegar
uppákomur í landinu fjarlæga rifj-
ar Óli upp atvik sem átti sér stað á
ströndinni einn góðan veðurdag.
„Þetta er vissulega ekki fyndin saga
en eftirminnileg er hún. Alla dvöl-
ina þarna úti var alltaf verið að
vara við hákörlum en aldrei gerð-
ist neitt. Það breyttist einn sólrík-
an vordag. Ströndin var full af ung-
um skólakrökkum þegar blásið var
í neyðarflautuna. Það var ótrúleg
sjón að sjá alla hlaupa upp úr sjón-
um og raða sér í beina röð eins og
stillt leikskólabörn. Þetta er bara
nokkuð sem allir vita og kunna.
Það sem var kannski örlítið spaugi-
legt við þetta var að tveir töffarar
stóðu fastir á súlum úti í sjó, þar
sem þeir höfðu eitthvað verið að
klifra á meðan hárkarlarnir svöml-
uðu um allt í kring. Þeir komust
sem betur fer heilu og höldnu á
land að lokum.“
Umhverfissinnaðir
Nú eru tveir mánuðir frá því að
Óli kom heim og eðlilega er hann
uggandi yfir ástandi þjóðarinnar.
„Kennararnir mínir hafa haft sam-
band við mig til þess eins að fá stað-
festingu á öllum þeim hræðilegu
fréttum sem berast af landinu.“ Að-
spurður hvort hann sjái eftir því að
hafa drifið sig heim segir hann svo
ekki vera. „Ég þurfti að koma heim
til að ljúka þessum kafla lífs míns,
ljúka námsdvölinni. Annars hefði
maður líklega sest þarna að og það
er ekki nokkuð sem ég vildi gera.“
Að lokum er Óli beðinn um að
nefna einn þátt í fari Ástralanna
sem Íslendingar gætu tekið sér til
fyrirmyndar. Óli er fljótur að svara.
„Umhverfisvitund, þeir eru einstak-
lega meðvitaðir um umhverfið. Þeir
nota allir taupoka þegar þeir kaupa
í matinn. Henda aldrei rusli úti á
götu og eru allir mjög samstiga í því
að hugsa vel um náttúruna. Það er
nokkuð sem við megum taka okkur
til fyrirmyndar,“ segir Ástralíufar-
inn hressi að lokum.
kolbrun@dv.i
á siglingU Hér er óli
á siglingu meðfram
suðurströnd Ástralíu.
Mikið fjör á Hátíð
Vínekrannaspring in
the Valley er árleg hátíð
vínekranna í Ástralíu.
klifrað Með gÓðUM
VinUM óli lagði stund á
hinar ýmsu íþróttir úti í
Ástralíu, þar á meðal
klettaklifur.