Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2008, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 10. okTóbeR 2008 27Fókus Hvað er að GERAST? Söngleikurinn Fólkið í blokk- inni verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld, föstudag. Söngleiknum er lýst sem hjartnæmri sögu af skraut- legu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söng- leik þar sem efniviðurinn er það sjálft. Hárfinnur hárfíni er í for- svari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum á meðan Robbi húsvörður reynir ólmur að koma í veg fyrir að söngleikurinn komist á koppinn. Sjarmörinn Hannes reynir allt hvað hann get- ur að ganga í augun á Söru. Tekst þeim að frumsýna söngleikinn? Ná Sara og Hannes saman? Og hver á skjaldbökuna í baðkarinu? Höfundur er Ólafur Haukur Símonarson, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir og leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðs- dóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jó- hann Sigurðarson, Jóhanna Vig- dís Arnardóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Magnús Guð- mundsson, Margrét Helga Jó- hannsdóttir og Sara Marti Guð- mundsdóttir. Tónlistarstjóri er Jón Ólafs- son en tónlist verksins er flutt af hljómsveitinni Geirfuglunum. Danshöfundur er Lára Stefáns- dóttir, leikmyndahönnuður er Vytautas Narbutas og búninga- hönnuður er Filippía I. Elísdóttir. Hjartnæm saga af litríkum Reykvíkingum á fjalirnar: blokkARFólkið á Svið föstudagur n DJ Stef á Hverfisbarnum Plötusnúðurinn með krullurnar, DJ Stef, sér um að halda uppi fjörinu á Hverfis- barnum í kvöld. Hann er annálaður partípinni sem svíkur engan svo ef þú vilt vera þar sem stuðið er þá mætirðu á Hvebbann í kvöld. n DJ Tweak á Tunglinu Annar helmingur plötusnúðateymisins sívinsæla Plugg’d, sjálfur DJ Tweak, mætir á Tunglið í kvöld og sér til þess að tunglið verði fullt í alla nótt. Aðgangs- eyrir er þúsund krónur og fer miðasala fram við dyr. n Kristján í Óperunni Cavalleria Rusticana og Pagliacci eru tvær einþátt- ungsóperur þar sem daglegt líf fólks, harmur þess og gleði eru í forgrunni. Þessi glæsilega uppfærsla er skipuð nokkrum af fremstu söngvurum þjóðarinnar, þar á meðal sjálfum kristjáni Jóhannssyni sem hefur slegið rækilega í gegn. n Frumsýning á Fólkinu í blokkinni. Söngleikurinn Fólkið í blokkinni eftir ólaf Hauk Símonarson er frumsýndur í kvöld í borgarleikhúsinu. Margir ungir og efnilegir leikarar fara með hlutverk í þessum skemmtilega söngleik. n Retro Stefson á Prikinu Fjörið byrjar snemma á Prikinu í kvöld. Hljómsveitin Retro Stefson heldur tónleika á neðri hæð staðarins og hefjast þeir klukkan 22. á miðnætti tekur síðan Dj Danni Deluxxx við og spilar hippídíhopp langt fram eftir nóttu. ekkert kostar inn á tónleikana. laugardagur n James Holden og Nathan Fake Techno.is stendur fyrir komu kappanna til landsins og munu þeir trylla lýðinn á NASA. James Holden mun þeyta skífum en Nathan Fake mun heilla gesti með lifandi tónum eins og honum er einum lagið. Húsið opnað á miðnætti og er miðaverð í forsölu 2000 krónur en miðasala fer fram í All Saints í kringlunni. n Funky Fleivur á 22 Það verður fönk og stuð á skemmti- staðnum 22 í kvöld. Mættu snemma, fáðu þér pitsu og byrjaðu svo að dansa við netta tóna plötusnúðsins Funky Fleivur. Funky spilar bara svala tónlist og kann að skemmta dansþyrstum einstaklingum. n Dj Shaft á Q-bar Skafti kallinn er eins og heimilisköttur á Q-bar og er heldur klókur í skífuþeyting- unum. DJ Shaft spilar dansvæna gleðitónlist og ætti ekki að valda neinum vonbrigðum á þessum heitasta gay-bar landsins. n Minningartónleikar Vilhjálms Vilhjálmssonar Sannkallaðir stórtónleikar til minningar um tónlistarmanninn vilhjálm vilhjálms- son fara fram í laugardalshöllinni tíunda og ellefta október. enn eru nokkrir miðar til á aukatónleika sem fram fara í dag klukkan 16.00. Margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar koma fram á tónleikunum. Nánari upplýsingar og miðasala á midi.is n Rikki og Áki á Sólon Partísession með Rikka G á neðri hæðinni er uppskrift að góðu kvöldi á Sólon. á efri hæðinni ætlar DJ áki Pain svo að þeyta skífum fram á morgun. Stemninginn byrjar að venju snemma á Sólon og henni lýkur seint. LiTLa STúLKaN og SígaReTTaN Hressandi lesning í öllu því fári vondra bóka sem nú ríður yfir veröldina. m æ li r m eð ... HeaVy MeTaL iN BagHDaD Íraskir þunga- rokkarar rokka í gegnum stríðið. ReyKJaVíK- RoTTeRDaM ávísun upp á úrvalsskemmt- un. m æ li r eK Ki m eð ... JaNiS 27 Góður söngur og vel heppnuð sviðsmynd en verkið ekki leiksviðstækt. MacBeTH Macbeth er ekki hér. skrifað bókina af mikilli innri þörf en hann sé þó alls ekki að kynna til sögunnar nýja lausn í stað 12 spor- anna og hann ætli sér alls ekki að verða gúrú í alkafræðunum með fjöldahreyfingu í kringum þessa lausn sína. Hann hafi engan áhuga á að verða nýr Bill heldur hafi hann viljað benda fólki á að AA-lausnin sé alls ekki sú eina og hver og einn geti fundið sína eigin leið úr öngstræt- um alkóhólismans. Þar sem hann hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að leysa vanda sinn í AA komi sam- tökin vissulega mikið við sögu og hann er ófeiminn við að gagnrýna hugmyndir Bills og Bobs sem hann hefur litla trú á. Í bók sinni, Alkasamfélagið, seg- ist hann einungis vera að greina frá sinni persónulegu lausn. Lausn sem hann fann fyrir sig og þurfi alls ekki að gagnast örðum þótt hann geti eflaust stappað stálinu í aðrar ráðvilltar fylli- byttur. Þessi hugmynd Orra um prívat og persónulega lausn gengur þvert á boðskap AA en þar er lagt mikið upp úr því að berja þá „ranghugmynd“ úr hausnum á forföllnum drykkju- sjúklingum að þeim standi einhverj- ar sérleiðir til boða. Það segir sig því vitaskuld sjálft að Orri á ekki samleið með AA eins og bókin sjálf ber glöggt vitni um. Þreyttur á aa-söngnum „Ég fór fyrst í meðferð 1994 en það var ekki fyrr en í maí í fyrra sem ég sá leið út úr þessum ógöngum,“ seg- ir Orri en AA-lausnin var þungamiðj- an í þeim meðferðum sem hann hef- ur gengið í gegnum. „Þetta var oftast mikið ströggl og ég náði aldrei löng- um edrútíma í AA eftir þessar með- ferðir mínar hjá SÁÁ. Það var ekki fyrr en ég fór í víkingameðferð á Vogi og Staðarfelli árið 2007 að ég komst á rétt ról og allt hefur gengið eins og í sögu síðan.“ Andi AA svífur yfir vötnum á Staðarfelli en Orri fann engu að síður taktinn í víkingaprógramminu. „Þetta er meiri, stífari og ítarlegri meðferð þar sem koma við sögu alls konar atriði sem eru ekkert endi- lega úr AA-fræðunum. En AA var þó illu heilli enn í öndvegi. Ég var orð- inn langþreyttur á .þessum svarthvíta hugsunarhætti sem er í gangi í AA- fræðunum og hjá ýmsum sem hafa tileinkað sér þau. Ég var þreyttastur á þesum söng að það sé bara til ein lausn og hún sé svona fyrirfram upp- skrifuð leið og ef þú ferð hana ekki bíður þín bara geðveiki eða dauði. Ég hef séð menn taka þetta of bókstaf- lega og ef þeim mistekst bara drekka þeir sig í hel,“ segir Orri um menn sem misstu alla von þegar þeir gerðu sér grein fyrir að hin eina lausn væri ekki ætluð þeim. Tvíeggjaður vanmáttur „Þetta er einhvern veginn bara díllinn og það er náttúrlega alið á tali um vanmátt sem menn trúa sterkt. Maður sér það raunar alveg jafnmikið í edrú alkasamfélaginu og hjá þeim sem detta mikið í það og út úr prógramminu. Þeir sem hafa fengið þessa skólun trúa því fram í rauðan dauðann að enginn mann- legur máttur geti stöðvað þetta og ganga þá bara mjög rösklega til helj- ar. Þannig að þessi áhersla á van- máttinn er tvíeggjuð.“ Þungamiðjan í AA er að alkinn viðurkenni van- mátt sinn, að hann hafi ekki stjórn á eigin lífi og sé tilbúinn til þess að gefa sig og líf sitt æðri mætti á vald. „Fyrir þann sem er guðleysingi eins og ég finnst mér það í raun ekkert vera í boði að finna einhvern æðri mátt.“ Lausn AA á vanda trúleysingjanna er sú að þeir geti fundið sinn æðri mátt í guði eins og þeir sjálfir skilja hann. Ekki endilega þeim sem er tilbeðinn í kirkjum. Orri kaupir þetta þó ekki. „ Ef þú lest AA-fræðin vel er alls staðar tal- að um himnaföðurinn og skaparann. Einhverja alheimsvitund. Þetta geng- ur ekki upp. Þessi klásúla með „sam- kvæmt skilningi þínum á honum“ var bara sett inn til að lokka fleiri í sam- tökin. Bill var alltaf með skýrar hug- myndir um Guð og sagði að hitt væri bara nóg til að byrja með. Það má ekki gleyma að lesa smáa letrið og það er alltaf ætlast til þess að þú komist í beint vitundarsamband við einhverja súpernatúral veru. Jesús og krossinn eru uppi um alla veggi hjá AA í Banda- ríkjunum þannig að þar fer ekkert á milli mála um hvaða æðri mátt er átt við. AA kemur beint úr kristilegu költi, Oxford -hreyfingunni og ástæðan fyrir því að hver og einn fékk að finna guð samkvæmt eigin skilningi var að þeir voru byrjaðir að þurrka upp kaþólikka og fleiri sem vildu ekki vera í einhverri lúterskri reglu. Prógrammið og sporin eru endurskrifuð upp úr prógrammi Oxford-hreyfingarinnar.“ Mannfyrirlitning og hroki Orri segist einfaldlega hafa fund- ið sínar leiðir út úr ógöngunum og að með bókinni sé hann bara að leggja áherslu á að það séu til fleiri leiðir og lausnir. „Allir geta fundið sinn farveg og þurfa ekki einhverja eina tegund af samtökum til að halda sér edrú. Ég er að stappa stálinu í fólk og benda um leið á hvað AA sé í grunninn og það eigi að vera óhrætt við að fara sínar eigin leiðir. Fólk á bara að standa með sjálfu sér og byggja á sjálfsþekkingu. Samkvæmt AA-bókinni er alveg úti- lokað að ná bata með sjálfsþekkingu. Ég er bara, eins og svo margir aðr- ir, gangandi dæmi um hið gagnstæða. Það er svo mikið um kreddur í þessu og það er sagt um menn eins og mig, sem geta verið edrú án AA, að við séum á hnefanum og séum enn veik- ir og að ég sé hrokafullur að telja mig geta verið edrú án AA. Þetta lýsir raun- ar mannfyrirlitningu og einmitt hroka. Fjölmörg dæmi eru um fólk sem hætt- ir bara að drekka eins og ekkert sé án þess að vera í AA. Þá er ómögulegt að gangast við þeirri edrúmennsku þótt allt virðist ganga vel og vera til fyrir- myndar í alla staði. Þá er því einfald- lega slengt fram að viðkomandi hafi alls ekki verið alkóhólisti í fyrsta lagi. Þeir sem eru í AA ríghalda í þetta sem Bill var að skrifa 1938 og taka því sem einhverri heilagri ritningu. Þetta er bara vitleysa engin gremja á ferð Hrokinn er einmitt talinn einn helsti veikleiki alkóhólistans og að í honum sé fallið falið, auk þess sem gremja er samkvæmt AA öllum alkó- hólistum stórhættuleg. Orri þvertek- ur fyrir að hann sé að fá útrás fyrir gremju í garð AA-samtakanna með því að skrifa bókina. „Það er hið besta mál að AA sé til og samtökin eru fín fyrir þá sem finna sig þar. Mér finnst bara grátlegt að SÁÁ skuli ekki stilla upp fleiri úrræðum. Í Bandaríkjunum er til hellingur af litteratúr um aðrar leið- ir og fræði. Þessir menn vita af þessu og þeir vita líka að allar rannsóknir á árangri AA sýna sláandi lélegan ár- angur. Það er litið á alkóhólisma sem sjúkdóm en ætli það myndi ekki heyr- ast eitthvað ef við værum enn að nota sömu krabbameisnlyf og 1938. Það er sértrúarfnykur af þessu vegna þess að þetta er allt á þessum nótum og það er ekki eðlilegt. Það fer kjánahrollur um mann þar sem þetta snýst allt um prógrammið sem hefur alltaf rétt fyrir sér og efasemd- ir eru afgreiddar sem sjúkdómsein- kenni. Þetta minnir mjög á sértrú- arsöfnuði og auðvitað er gagnrýnin hugsun bönnuð vegna þess að þeir vita að þetta þolir ekki nokkra skoð- un ef maður fer ofan í þetta. Það er að minnsta kosti mín niðurstaða.“ Orri segist hafa skrifað bókina í einum rykk þegar hann var búinn að vera edrú í um það bil ár. „Þá mundi ég eftir því að mér hafði virkilega þótt vanta svona bók og ákvað að drífa í að skrifa hana. Ég ákvað að hafa textann stuttan og snarpan frekar en að leggj- ast í miklar stúdíur og skrifa langa fræðilega bók. Ég var búinn að safna svo lengi í sarpinn að þetta flæddi út úr mér. Ég var lengi að lifa bókina en fljótur að skrifa hana.“ toti@dv.is Blússandi blokkarstuð Hinn þaulvani söngleikjahöfundur ólafur Haukur Símonarson er höfundur verksins. orri Harðarson hefur tekið nokkrar dramatískar snerrur við Bakkus í gegnum tíðina og hefur eins og flesta alkóhólista sem leita lausnar rekið á fjörur AA-samtakana. Sú lausn sem þar er í boði hentaði ekki trúleysingjanum Orra sem ekki gat fundið sinn æðri mátt. Hann hefur verið edrú frá árinu 2007 og byggir edrúmennskuna á sinni eig- in persónulegu lausn en slíkt er talið útilokað samkvæmt AA-fræðunum. Hann hefur sent frá sér bókina Alkasamfélagið þar sem hann beinir spjótum sínum að AA og vill nota eigin reynslu til þess að stappa stálinu í þá alkóhólista sem enn þjást og geta ekki samsamað sig AA-samtökunum og þeirri endanlegu lausn sem þar er predikuð. alkasamfélagið er ekki ætlað að vera sérstakt andsvar við AA-bókinni og með henni ætlar orri sér ekki að frelsa alka í öllum löndum. Heldur aðeins að miðla af reynslu sinni í þeirri von að hún hleypi öðrum kappi í kinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.