Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FRÉTTIR „Ég er búin að missa allt. Allt. Ég er búin að tapa húsinu mínu, bílunum mínum og manninum mínum. Ég er sjálf á leið að verða gjaldþrota og bíð bara eftir hamrinum. Það er bara al- veg ömurlegt,“ segir Berglind Ásgeirs- dóttir, stofnandi ZikZak tískuveldisins. Rekstrarfélag ZikZak tískuhúss er gjaldþrota og nemur gjaldþrotið hátt í þrjú hundruð milljónir króna. Þrátt fyrir þrot heldur Berglind Ásgeirsdótt- ir, eigandi tískuverslananna, og fjöl- skylda hennar rekstrinum áfram því hann er nú undir félagi í eigu ungrar dóttur hennar, Sigríðar Ómarsdóttur. Hjónin Berglind og Ómar Andr- és Gunnarsson stofnuðu Zikzak tísk- húsin fyrir um átta árum. Þau opnuðu fyrst verslunina í Brekkuhúsum í Graf- arvogi og slík var velgengni hennar að þau opnuðu verslanir í Reykjanes- bæ, á Selfossi, á Akureyri, í Mörkinni, á Laugavegi, í Kópavogi, í Hafnarfirði og Kringlunni. Sú síðastnefnda stóð ein eftir þegar þrotaferlið fór í gang en verslunin í Kringlunni fór undir hið nýja félag dótturinnar. Síðar opnuðu mæðgurnar aðra verslun í Smáralind- inni. Áfram með umboðin Félagið sem um ræðir heitir 747 ehf. og var það stofnað árið 1998 í tengsl- um við rekstur ZikZak tískuhúsanna. Þar var Berglind við stjórnvölinn en á því varð breyting í apríl í fyrra. Þá færð- ist reksturinn yfir á nýtt félag, 6870 ehf., þar sem Sigríður, ríflega tvítug dóttir Berglindar, fer fyrir stjórninni, er skráð framkvæmdastjóri og fyrir prókúru fyrirtækisins. Kröfur í þrota- bú gamla félagsins námu tæpum 270 milljónum en af þeim voru rúmar 30 milljónir metnar í forgang. Upp í for- gangskröfur fengust hins vegar rúmar 2 milljónir. Ekkert fékkst því greitt upp í almennar kröfur sem ekki nutu for- gangs og aðeins 8 prósent af forgangs- kröfum fengust greiddar. ZikZak tískuhús rekur nú verslan- ir í Kringlunni og Smáralindinni. Þrátt fyrir gjaldþrotið heldur reksturinn áfram undir nýja félagi dótturinnar og eftir því sem DV kemst næst halda eig- endurnir eftirsóttum fatamerkjaum- boðum verslananna. Efasemdir vöknuðu Auður Björg Jónsdóttir, skiptastjóri þrotabúsins, segir að vissulega hafi vaknað efasemdir við skiptingu bús- ins um hvort eigendurnir hafi kom- ið eignum undan búinu en segir rök- in ekki hafa nægt til riftunaraðgerða. Hún bendir á að milli félaganna hafi verið að finna greiðslur fyrir lager tískuhússins. „Það voru efasemdir og þetta var skoðað. Eigendurnir keyptu lager áður en fyrirtækið fór í þrot og fyrir því eru samningar á milli félag- anna. Það er svo dóttirin sem er skráð fyrir nýja félaginu. Að sjálfsögðu skoð- uðum við samningana milli félaganna því slíkt vekur athygli skiptastjóra. Það liggur ekkert fyrir og ekki nægur rök- studdur grunur um til að krefjast rift- unar,“ segir Auður Björg. Berglind staðfestir að rekstur versl- ananna sé nú í félagi dóttur sinnar og segist hún hafa lagt henni til fé til kaupanna. Hún ítrekar að með því sé hún ekki að koma neinum fjármun- um undan því sjálf sé Berglind á leið í gjaldþrot. „Ég starfa í versluninni hjá dóttur minni. Hún ákvað að reyna að halda áfram og ég studdi hana í því með peningum sem ég fékk út úr stóru bílslysi. Á einhverju verðum við að lifa og við höfum rétt á að skapa okkur at- vinnu. Sjálf skapaði ég vörumerkið og vörumerkið á ég þó að fyrirtækið hafi farið í þrot,“ segir Berglind. Allt farið og enginn gróði Berglind bendir á að hennar fyrirtæki sé ekki það fyrsta og ekki það síðasta til að fara í gjaldþrot. Sjálf segist hún hafa haldið vel utan um reksturinn og hafnar því alfarið að hún sé að koma fjármunum undan gjaldþrotinu. „Sjálf stóð ég mig mjög vel í rekstrinum, borgaði alla hluti á réttum tíma og starfsfólkið var ánægt hjá mér. Síðan fór bankinn minn á hausinn, allar vör- urnar hækkuðu, minna varð að gera og lánin ruku upp. Það er ekki eins og ég hafi verið neitt að leika mér að því að fara með þetta í þrot. Á endanum fékk maðurinn minn nóg af þessum vandræðum og við ákváðum að skilja,“ segir Berglind. „Ég er búin að tapa öllu. Fólk má ekki halda að ég sé að græða eitthvað því ég er búin að stórtapa á öllu sam- an. Það er alls ekki svo að ég gangi um með fulla vasa fjár þegar ég á stund- um varla fyrir mat. Ég hef ekki verið að stinga neinu undan því ég á ekkert í dag. Það er enginn öfundsverður af því að verða gjaldþrota. Ég missti allt mitt.“ Berglind Ásgeirsdóttir, stofnandi ZikZak tískuhúsa, hefur farið frá því að reka hátt í tug vinsælla tískuvöruverslana yfir í að horfa fram á eigið gjaldþrot. Fyrirtæki henn- ar fór nýverið á hausinn og nam gjaldþrotið nærri 300 milljónum króna. Ekkert fékkst greitt upp í almennar kröfur og aðeins 8 prósent af forgangskröfum fengust greidd. „ÉG ER BÚIN AÐ MISSA ALLT“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Fólk má ekki halda að ég sé að græða eitthvað því ég er búin að stórtapa á öllu saman. Það er alls ekki svo að ég gangi um með fulla vasa fjár þegar ég á stundum varla fyrir mat. Enginn gróði Berglind biður fólk um að halda ekki að hún sé að koma eignum undan því hún sé alls ekki með fulla vasa fjár heldur horfi fram á gjaldþrot. Allt farið Það er ekki aðeins fyrirtækið sem er farið hjá Berglindi heldur er hún líka búin að missa húsið, bílana og eiginmanninn. Eyþór efstur Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðis- manna í Árborg, varð í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á laugardag. Elfa Dögg Þórðardóttir hreppti annað sætið og Ari Björn Thorarensen það þriðja. Í fjórða sæti varð Sandra Dís Hafþórs- dóttir og fimmti varð Gunnar Egils- son. Sjötta sætið hlaut svo Kjartan Björnsson. Alls kusu 948 manns í prófkjörinu af þeim 1.512 sem voru á kjörskrá. Kjörsókn er því 63 prósent. Jón Björn leiðir í Fjarðabyggð Jón Björn Hákonarson hlaut 368 af af alls 593 atkvæðum í fyrsta sætið á lista framsóknar- manna fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar í Fjarðabyggð. Jón Hákon varð þar með efstur í prófkjöri sem Framsóknarfé- lag Fjarðabyggðar hélt á laug- ardag. Næstur kom Guðmund- ur Þorgrímsson og í þriðja sæti varð Eiður Ragnarsson. Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir endaði í fjórða sæti og Jósef Auðunn Frið- riksson varð í því fimmta. Þrjár leiðir færar út úr vandanum „Menn hafa sagt að það væru þrjár leiðir út úr vandanum, Icelandair, Iceland Express og Norræna,“ sagði Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Sam- iðnaðar, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudagsmorg- un. Þar var fjallað um bága stöðu fyrirtækja í mannvirkjagerð og mikið atvinnuleysi meðal þeirra sem unnið hafa í geiranum. Fram kom að um fimmtungur manna í byggingariðnaði sé nú atvinnu- laus. Þar að auki hafa margir leit- að sér að vinnu í útlöndum. Haft var eftir Jóni Steindóri Valdimarssyni, framkvæmda- stjóra Samtaka iðnaðarins, í þættinum að svo virtist sem lítið myndi gerast í mannvirkjagerð á næstunni, alla vega hefðu menn ekki fengið nein jákvæð skilaboð á útboðsþingi fyrir helgi. Kæruleysi í lánveitingum Eignalánafyrirtæki lánuðu fólki fyrir bifreiðum án þess að kanna greiðslugetu þess að sögn Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra. Hann sagðist í hádegisfréttum Ríkis- útvarpsins á sunnudag vilja að bíla- lán yrðu aðlöguð að verðmæti bif- reiða og sagðist ekki óttast lögsókn vegna breytinganna. Lánin yrðu þá færð niður að 110 prósent af verðmæti bifreiðanna. Eignaleigufélög óttast að miklar afskriftir geri fyrirtækin gjaldþrota en Árni Páll sagði að ekki yrði farið í slíkar aðgerðr án þess að hafa traust- an grunn til þess.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.