Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Qupperneq 13
FRÉTTIR 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 13 Tómlæti Seðlabanka Íslands árið 2008 getur bent til þess að stýra hafi átt falli íslensku bankanna og láta erlenda lánardrottna taka skellinn. Það tókst ekki og yfirtaka Glitnis fór úr böndunum, olli keðju- verkun og hámarkstjóni. Sérfræðingur Merril Lynch-fjárfestingarbankans sagði nánast fyrir um fall bankanna í skýrslu 24. júní 2008 en uppskar mikla gagnrýni íslenskra stjórnvalda á þeim tíma. Richard Thomas, sérfræðingur hjá greiningardeild fjárfestingarbank- ans Merrill Lynch, sagði fyrir um gjaldþrot íslensku bankanna og þjóðnýtingu þeirra liðlega tveimur mánuðum fyrir bankahrunið. Ummæli hans og skýrsla seint í júlí 2008 vöktu hörð viðbrögð. Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir, þá starfandi forsætisráðherra, sagði til að mynda í sjónvarpsviðtali í kjöl- farið að ummæli Thomas væru marklaus. „Mér finnst þetta maka- laus ummæli hjá svona virtum fjár- festingarbanka og það hvarflaði að mér um tíma hvaða annarlegu sjónarmið búa þarna að baki því þetta á ekki við nein rök að styðjast. Ég spyr líka sem menntamálaráð- herra hvort þessi maður þurfi ekki á endurmenntun að halda,“ sagði Þorgerður í fréttum Sjónvarpsins þennan dag. Hagnaður fram á síðasta dag Yfirtakan á Glitni og bankahrunið bendir hins vegar til þess að eng- in annarleg sjónarmið hafi búið að baki heldur hafi mat Richards Thomas verið raunsætt. Hann spáði nánast fyrir um atburðarás- ina og gat sér þess til að stjórn- völd fylgdu ákveðinni áætlun um gjaldþrot og þjóðnýtingu. Starfs- hópur um fjármálalegan stöðug- leika hafði á þessum tíma upplýs- ingar undir höndum um alvarlega stöðu bankanna og hótanir breskra eftirlitsaðila vegna Icesave reikn- inganna þar í landi. Þegar réttað var yfir Baldri Guðlaugssyni, fyrr- verandi ráðuneytisstjóra fjármála- ráðuneytisins, 15. desember síð- astliðinn kom fram að fært hefði verið til bókar eftir honum að ef þær upplýsingar sem starfshópur- inn fjallaði um yrðu á almanna vit- orði yrði það banabiti bankanna. Í frásögn Styrmis Gunnarsson- ar í bókinni Umsátrið höfðu eftir- farandi boð komið frá breska fjár- málaeftirlitinu þegar í lok júlí 2008: „Efnahagsástandið á Íslandi er að okkar mati verra en þið viljið halda fram og í því felst að áhættan fyrir breska innstæðueigendur í Lands- bankanum er meiri. Við teljum ekki að Seðlabanki Íslands geti ver- ið lánveitandi til þrautavara eða að hann geti fjármagnað innstæðu- kerfið íslenzka.“ Eignamat bankanna til rannsóknar Lítið hefur verið fjallað um þátt stjórnvalda og eftirlitstofnana í því að halda alvarlegum innherjaupp- lýsingum um bankana leyndum fyrir tugþúsundum hluthafa í þeim. Karl Axelsson hæstaréttarlög- maður hafði þó bent á þetta at- riði í málflutningi sínum til varnar Baldri Guðlaugssyni. Hann vísaði til laga um verðbréfaviðskipti, en þar eru ákvæði um innherjavið- skipti og upplýsingaskyldu. Hann vakti athygli á lögboðinni upplýs- ingaskyldu og sagði að í þeim laga- ákvæðum fælist að innherjaupp- lýsingar um félög, sem skráð eru á verðbréfamarkaði, væru „ ...upp- lýsingar sem skylt er að gera opin- berar fyrir almenningi. Teljast upp- lýsingarnar til innherjaupplýsinga þangað til þær hafa verið birtar“. Rík skylda er með öðrum orðum til þess að birta upplýsingar opin- berlega og tímanlega þannig að al- menningur hafi virkan og jafnan aðgang að þeim. Samkvæmt upplýsingum emb- ættis sérstaks saksóknara eru enn til rannsóknar hjá erlendum að- ilum gögn sem hald var lagt á hjá endurskoðunarfyrirtækjunum, PWC og KPMG í byrjun októb- er í fyrra. Vildi sérstakur saksókn- ari skoða sérstaklega hvers vegna bankar, sem hrundu skyndilega, sýndu góða eignastöðu og hagnað fram á síðasta dag. Þær upplýsing- ar voru reglulega birtar á markaði þótt leynd hafi augljóslega hvílt yfir yfirvofandi lausafjárþröng bank- anna sem gat fellt þá rétt eins og mikil eignarýrnun. Hvað sagði Thomas? Greinargerð Richards Thomas hjá Merrill Lynch snerist um að mark- aðurinn teldi áhættuna á Íslandi orðna verulega og að staðan benti til þess að gjaldþrot bankanna væri framundan. Hafa mætti í huga þá þumal- fingurreglu að ef skuldatrygging- arálag fjármálafyrirtækis hærra en 1000 punktar vænti markaður- inn gjaldþrota. Í skýrslu sinni mat Thomas það svo að helmingslíkur væru á gjaldþroti Glitnis og Kaup- þings en nokkru lægri hjá Lands- bankanum. Thomas benti á að Englands- banki og Seðlabanki Bandaríkj- anna hefðu gripið til aðgerða til að bjarga sínum bönkum. Hvers vegna ætti staðan að vera öðruvísi hjá íslensku bönkunum? Thomas taldi nauðsynlegt að íslensk stjórn- völd skilgreindu og gerðu grein fyr- ir mögulegum aðgerðum sínum. En vel væri einnig hugsanlegt að stjórnvöld hefðu hreinlega hugsað sér að keyra einn banka eða fleiri í gjaldþrot og þjóðnýta þá aftur svo skömmu eftir einkavæðingu. Ljóst er að markaðurinn, þar á meðal Merrill Lynch, tók eftir að- gerðaleysi Seðlabanka Íslands sem gat bent til þess að þegar á þessum tíma hafi verið uppi viðbragðsáætl- un sem fól í sér gjaldþrot og / eða þjóðnýtingu eins eða fleiri banka. Thomas benti meira að segja á að sú aðgerð hefði einnig kosti þar sem gjaldþrot flytti mesta skellinn frá íslenskum skattgreiðendum fyr- ir til erlendra lánardrottna. Á það var bent í bók Ólafs Arn- arsonar að stjórnendur Glitn- is hefðu neyðst til að leita á náðir Seðlabankans vegna þess að Seðla- bankinn hafði sjálfur þurrkað upp lánalínu Glitnis hjá þýskum banka. Augljóst mátti vera haustið 2008 að byðist banka að skipta við seðla- banka í stað Glitnis yrði stokkið á slíkt. Enda eru heimildir fyrir því að þýski bankinn hafi vísað viðskipta- vini sínum á Seðlabanka Íslands eftir að hann sölsaði undir sig lán- alínuna. Úthugsuð aðgerð Vitað er nú að stjórnvöld áttu í fórum sínum nánast frágengið frumvarp að neyðarlögum sem áðurgreindur samstarfshópur um fjármálastöðugleika hafði komið að ásamt viðskiptaráðu- neytinu . Því bendir allt til þess að Glitnishelgina í lok septemb- er 2008 hafi Davíð Oddsson, þá- verandi seðlabankastjóri, unnið samkvæmt áætlun um stýrða yf- irtöku ríkisins á Glitni eða gjald- þrot. Leiða má líkum að því að ráðagerðir hafi verið uppi um að stýra falli Glitnis þannig að unnt yrði að forða hinum bönkunum tveimur frá falli, Kaupþingi og Landsbankanum. Þetta tókst ekki meðal annars vegna harðra viðbragða og aðgerða af hálfu Breta, sem frystu eignir ís- lensku bankanna í Bretlandi til að tryggja eigin hagsmuni. Davíð Oddsson útskýrði að- gerðirnar síðar í frægu Kastljós- viðtali 7. október. Erlendar skuldir óreiðumanna yrðu ekki greiddar, skuldatryggingaálag myndi lækka og aðstæður batna hratt. Lítið sem ekkert af þessu gekk eftir þar sem fallið fór úr böndun- um og tjónið náði hámarki með falli allra þriggja bankanna. Afdrifarík þótti í þessu sam- bandi sú ráðstöfun Davíðs að lækka verð Glitnis um 88 prósent í einu lagi um leið og ríkið yfirtók 75 prósent bankans. Þetta olli keðju- verkun og dómínóáhrifum á öllum markaðnum. STÝRÐI DAVÍÐ FALLI BANKANNA? Að stefna bönk-unum í gjald- þrot og endurskipu- leggja þá síðar hefur einnig þann kost að sársaukinn flyst frá íslenskum skattgreið- endum yfir til erlenda lánsfjármarkaðarins. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Aðdragandi hrunsins „Ég spyr líka sem menntamálaráðherra hvort þessi maður þurfi ekki á endurmenntun að halda,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þá starfandi forsætisráðherra. Með henni á myndinni er Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. n „Mundi Ísland vilja eyðileggja lánshæfi sitt og láta allar áhyggjur af orðspori sínu sem vind um eyru þjóta? Við erum ekki viss um það og við erum vitanlega ekki að mæla með því að þetta verði gert. En þegar svo gríðarlegar skuldir skapa slíka sjálfheldu verður því ekki trúað að stjórnvöld hafi ekki gaumgæft allar aðstæður sem upp gætu komið, einnig gjaldþrot og endurskipulagningu bankanna, jafnvel þótt þau hefðu samstundis varpað slíkum kosti frá sér. Að stefna bönkunum í gjaldþrot og endurskipuleggja þá síðar hefur einnig þann kost að sársaukinn flyst frá íslenskum skattgreiðendum yfir til erlenda lánsfjár- markaðarins. Með hliðsjón af því, að íslensk stjórnvöld þurfa dag hvern að lifa með skattgreiðendum en hafa aðeins endrum og sinnum litið inn á alþjóðamark- aðina á síðari árum, má vera augljóst, að frá bæjardyrum íslenskra stjórnvalda og innanríkisstefnunnar er mun fýsilegra að flytja þennan sársauka yfir á erlenda lánardrottna (alþjóðamarkaði).“ Úr skýrslu Roberts Thomas hjá Merrill Lynch um mögulegt gjaldþrot og greiðslustöðv- un íslenskra banka 24. júlí 2008. Flytja sársaukann út Ritstjóri Morgunblaðsins Davíð Oddsson, þáverandi seðlabanka- stjóri, réð því sem hann vildi við fall bankanna. Ekki er loku fyrir það skotið að ríkisstjórn Geirs H. Haarde hafi staðið frammi fyrir gerðum hlut þegar Glitnismálið komst í hendur hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.