Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 17
Fáránlegur fréttaflutningur Deila Bobs Geldof og BBC varð að diplómatískri deilu á laugardaginn þegar Berhanu Kebede, sendiherra Eþíópíu í Bret- landi, krafðist þess að BBC- World Service bæðist afsökun- ar á fullyrðing- um þess eðlis að söfnunarfé handa fórnar- lömbum hung- ursneyðarinnar í Eþíópíu árið 1985 hefði runnið í vasa uppreisnar- manna. „Í hreinskilni er þetta fárán- legur fréttaflutningur,“ sagði Kebede um fréttina. Framkvæmdastjóri World Serv- ice, Peter Horrocks, sagði hann myndi standa við fréttina, en sam- kvæmt henni fóru 95 prósent söfn- unarfjár til vopnakaupa. Sjálfur hefur Bob Geldof, stofn- andi Live Aid, og fleiri góðgerðar- samtök krafist þess að BBC dragi fréttina til baka og að fréttamaður- inn Martin Plaut fái reisupassann. FRÉTTIR 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 17 töku Jamie Paulin-Ramirez og sex annarra á Írlandi í fyrri viku. Und- anfarna mánuði hefur fjöldi banda- rískra ríkisborgara verið handtekinn vegna gruns um áform um hryðju- verk og eru handtökur Jamie og sex- menninganna þær síðustu af þeim toga. Leiða má líkur að því að banda- rísk stjórnvöld þurfi ekki endilega að leita langt yfir skammt og að í Bandaríkjunum séu að skjóta rótum hryðjuverkamenn í bakgarðinum. Þar til nýlega var það skoð- un banda rískra yfirvalda að slíkt vandamál einskorðaðist einkum og sér í lagi við Bretland, en undan- farna átta mánuði hafa verið þrettán mál sem varða þrjátíu bandaríska ríkisborgara sem talið er að hafi haft í hyggju að standa að hryðjuverka- árásum eða hafa gengið í raðir sam- taka um heilagt stríð í Pakistan eða Sómalíu. Gaddavír og öxi Sjálfur er Lars Vilks við öllu búinn því hann ku hafa komið fyrir gadda- vír á neðri hæð heimilis síns, víggirt allar dyr og hefur öxi innan seiling- ar. Á vefsíðu The Times er haft eftir honum að hann muni nota öxina ef ástæða verður til.  „Ef einhver kemur get ég var- ist í hálftíma. Ég mun ekki hika við að nota öxina ef um verður að ræða baráttu um líf og dauða,“ sagði Vilks, en hann hefur einnig samið ljóð um Jihad Jane, sem hann segir vera kynferðislegt drama. Ljóðið hefst á orðunum „Jihad Jane kemur þegar húmar…“ LEIÐAR LJÓSHÆRÐAR HÚSMÆÐUR Herskáa hliðin Colleen snerist til herskás skilnings á íslam og undirbjó morðtilræði. Handtökur á Írlandi Írska lögreglan handtók fjóra einstaklinga sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um tilræði. Fleiri voru handteknir í Bandaríkjunum. MYNDIR AFP Blóðugur sólar- hringur í Mexíkó Tuttugu og fjórir féllu í valinn í röð fíkniefnatengdra árása í Mexíkó um helgina á einum sólarhring. Þrettán þeirra voru drepnir í Acapulco. Tveir hálshöggnir karlmenn fundust við götu sem er þéttskipuð næturklúbbum í Acapulco, sem er vinsæll ferðamannastaður, og einn maður fannst skotinn til bana við borgarjaðarinn. Byssumenn drápu fimm lög- reglumenn sem voru á eftirlitsferð í Tuncingo, rétt fyrir utan Acapulco, og á sama svæði fann lögreglan lík fimm manna sem höfðu verið skotn- ir til bana, auk þess sem tveir þeirra höfðu verið hálshöggnir. Þrátt fyrir að Acapulco njóti vinsælda hjá ferðamönnum hefur borgin ekki farið varhluta af styrjöld- inni sem ríkt hefur á milli fíkniefna- gengja. Páfinn „fórnar lamb samsæris“ Séra Federico Lombardi, talsmað- ur Benedikts XVI páfa, hefur blásið til harðrar gagnsóknar gegn fréttum sem bendla páfann við yfirhylmingu á kynferðislegu ofbeldi sem á að hafa átt sér stað í München frá 1977 til 1981, en á þeim tíma var páfi erki- biskup borgarinnar. Í viðtali við útvarpsstöð Páfagarðs gaf Lombardi í skyn að Benedikt páfi væri fórnarlamb samsæris og sagði að undanfarna daga hefði fólk leitað ákaft að einhverju sem tengdi páfa persónulega við ofbeldið. „Allir hlutlausir sjá að þessar tilraunir hafa mistekist,“ sagði Lombardi. Páfagarður hefur undanfarna daga verið í skugga ásakana um kynferðislegt ofbeldi af hálfu presta í Þýskalandi, Hollandi, Austurríki og Ítalíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.