Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 29
SVIÐSLJÓS 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 29 Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is Fermingargjöfin er íslensk hönnun LEIKA SAMKYNHNEIGÐA ELSKHUGA NÆSTUM DAUÐ ÚR TÍSKU Lady GaGa þurfti hjálp við að afklæðast í flugvél: Lady GaGa hefur svarið að hún muni aldrei aftur klæðast venjulegum fötum. Þessi eiður hennar gæti kostað hana heilsuna en söng- konan þurfti hjálp flug- þjóna í flugi frá London til Bandaríkjanna vegna þess að fatnaður hennar reyndist hættulegur. Frá þessu greinir The Sun en GaGa var klædd í fatnað sem Alexander McQueen heitinn hann- aði en hann stytti sér aldur í febrúar. GaGa var klædd í svarta og gula plastborða auk þess að vera í risastór- um bláum skóm. Fatn- aðurinn þrengdi svo að henni að hætta var á mikl- um æðaskaða eða blóð- tappa. Fatnaður söngkon- unnar var svo sérstakur og einkennilegur að hún gat ekki komist úr honum án hjálpar flugþjónanna um borð. GaGa var alls ekki vel við að þurfa skipta um fatnað og sérstak- lega ekki um skó þar sem hún klæddist þeim til að minnast Alexanders vin- ar síns. Lady GaGa Fatnaður hennar getur hreinlega verið hættulegur. Jessica Simpson opnar sig um John Mayer: „Kannski var hann að hrósa mér“ Ég held að hann hafi verið að reyna að gera eitthvert grín úr þessu. En þetta var ekkert grín. Ég átti ekki von á þessu og ég varð fyrir vonbrigðum,“ segir Jessica Simpson, um ummæli Johns May- er úr nýlegu viðtali, þegar hún kom fram á iheart radio-tónleikum sem fram fóru í New York á dögunum. John Mayer sagði í viðtalinu að Jessica væri slæm stelpa þegar kæmi að kynlífi. „Kannski var hann að reyna að hrósa mér eða það finnst mér. Sambandsslit eru erfið og mað- ur vill ekki valda aðdáendum sínum vonbrigðum ef ástamálin ganga illa. Ég verð bara að finna rétta manninn. Ef heimurinn er til í að vera með þá er það í lagi en ég þarf samt að halda áfram að lifa lífi mínu,“ segir söng- konan. Söngur um lífið? Jessica talaði um lífið og tilveruna og John Mayer þegar hún kom fram á iheart radio-tónleikum í New York á dögunum. FURÐULEG GLERAUGU Amber Rose, kærasta Kany-es West, er þekkt fyrir kyn-þokkafullan, efnislítinn og oft á tíðum undarlegan klæðnað. En það eru ekki bara föt henn- ar sem vekja athygli því í síðustu viku var hún með sólgleraugu sem þóttu nokkuð undarleg. Gleraugun voru ekki í lag- inu eins og venjuelg sólgleraugu heldur meira eins og augnhlíf eða gler á hjálmi. Þetta er aflaust það sem koma skal í gleraugnatísk- unni. Amber Rose Fer sínar eigin leiðir. Amber Rose:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.