Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Qupperneq 29
SVIÐSLJÓS 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 29
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Fermingargjöfin
er íslensk hönnun
LEIKA SAMKYNHNEIGÐA
ELSKHUGA
NÆSTUM DAUÐ
ÚR TÍSKU
Lady GaGa þurfti hjálp við að
afklæðast í flugvél:
Lady GaGa hefur svarið að hún muni aldrei aftur klæðast
venjulegum fötum. Þessi
eiður hennar gæti kostað
hana heilsuna en söng-
konan þurfti hjálp flug-
þjóna í flugi frá London
til Bandaríkjanna vegna
þess að fatnaður hennar
reyndist hættulegur.
Frá þessu greinir The
Sun en GaGa var klædd
í fatnað sem Alexander
McQueen heitinn hann-
aði en hann stytti sér aldur
í febrúar. GaGa var klædd
í svarta og gula plastborða
auk þess að vera í risastór-
um bláum skóm. Fatn-
aðurinn þrengdi svo að
henni að hætta var á mikl-
um æðaskaða eða blóð-
tappa. Fatnaður söngkon-
unnar var svo sérstakur og
einkennilegur að hún gat
ekki komist úr honum án
hjálpar flugþjónanna um
borð.
GaGa var alls ekki
vel við að þurfa skipta
um fatnað og sérstak-
lega ekki um skó þar sem
hún klæddist þeim til að
minnast Alexanders vin-
ar síns. Lady GaGa Fatnaður hennar
getur hreinlega verið hættulegur.
Jessica Simpson opnar sig um John Mayer:
„Kannski var hann
að hrósa mér“
Ég held að hann hafi verið að reyna að gera eitthvert grín úr þessu. En þetta var ekkert
grín. Ég átti ekki von á þessu og ég
varð fyrir vonbrigðum,“ segir Jessica
Simpson, um ummæli Johns May-
er úr nýlegu viðtali, þegar hún kom
fram á iheart radio-tónleikum sem
fram fóru í New York á dögunum.
John Mayer sagði í viðtalinu að
Jessica væri slæm stelpa þegar kæmi
að kynlífi. „Kannski var hann að
reyna að hrósa mér eða það finnst
mér. Sambandsslit eru erfið og mað-
ur vill ekki valda aðdáendum sínum
vonbrigðum ef ástamálin ganga illa.
Ég verð bara að finna rétta manninn.
Ef heimurinn er til í að vera með þá
er það í lagi en ég þarf samt að halda
áfram að lifa lífi mínu,“ segir söng-
konan.
Söngur um lífið? Jessica talaði um lífið og
tilveruna og John Mayer þegar hún kom fram á
iheart radio-tónleikum í New York á dögunum.
FURÐULEG
GLERAUGU
Amber Rose, kærasta Kany-es West, er þekkt fyrir kyn-þokkafullan, efnislítinn og
oft á tíðum undarlegan klæðnað.
En það eru ekki bara föt henn-
ar sem vekja athygli því í síðustu
viku var hún með sólgleraugu
sem þóttu nokkuð undarleg.
Gleraugun voru ekki í lag-
inu eins og venjuelg sólgleraugu
heldur meira eins og augnhlíf eða
gler á hjálmi. Þetta er aflaust það
sem koma skal í gleraugnatísk-
unni.
Amber Rose Fer
sínar eigin leiðir.
Amber Rose: