Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FRÉTTIR Arion banki hefur stefnt Stefáni Hilmari Hilmarssyni, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs og núverandi fjármálastjóra hjá 365, vegna van- greiddra skulda upp á tugi millj- óna. Fyrirtaka var í málinu í hér- aðsdómi á mánudag í síðustu viku, en því hefur verið frestað. Annað lánið sem bankinn stefnir Stefáni fyrir er erlendur lánssamningur. Að sögn Karls Georgs Sigur- björnssonar, verjanda Stefáns Hilmars, tengjast lánveitingarnar ekki Baugi. Hann segir enn fremur í samtali við DV að þær séu minni- háttar. Málið kann að frestast þar til Hæstiréttur úrskurðar um lög- mæti erlendra lána sem bankar og fjármögnunarfyrirtæki buðu, en dómstólar í landinu hafa frestað mörgum skuldamálum þangað til niðurstaða Hæstaréttar verður ljós. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu í janúar að myntkörfu- laun Lýsingar hefðu verið ólögleg á sínum tíma. Skuldir einstaklings „Það er lína sem dómstólar eru að taka, það eru svo mörg mál sem ganga út á þessi erlendu lán að menn vilja bara bíða eftir niður- stöðu Hæstaréttar. Það eru tvö mál á leið inn í Hæstarétt út af skuld- bindingargildi þessara erlendu lána, hvort heimilt hafi verið að binda þau við daggengi erlendra gjaldmiðla,“ segir Karl Georg. Karl Georg segir að mál Stefáns Hilmars og Arion banka snúist um tvö lán. „Annað þeirra var erlend- ur lánssamningur. Þetta eru skuld- ir einstaklings og tengjast ekki Baugi, þótt hann hafi verið í for- svari þar á sínum tíma. Þetta eru einhver verðbréfaviðskipti en ekki af neinni stærðargráðu. Samning- urinn er á milli 20 og 40 milljónir.“ Stefnir Baugi Stefán Hilmar Hilmarsson kem- ur við sögu í öðru máli sem rek- ið er fyrir dómstólum um þessar mundir. Hann hefur gert tuttugu og fimm milljóna króna launa- kröfu í þrotabú Baugs Group. Kraf- an samanstendur af launum vegna sex mánaða uppsagnarfrests, bíla- hlunnindum og uppsöfnuðu or- lofi. Stefán Hilmar sagði í samtali við DV í desember að hann væri einfaldlega að sækja vangreidd laun sem hann hefði rétt á. „Mér finnst leiðinlegt að þurfa að fara dómstólaleiðina en ég hef fulla trú á því að krafa mín nái í gegn. Fyr- ir mig skiptir það auðvitað miklu máli því það var erfitt að missa launatekjur fyrirvaralaust og þessa fjárhæð tínir maður ekki upp úr götunni. Það hljóta eflaust flest- ir að skilja. Það var mjög slæmt að missa vinnuna og allt áfallið í kringum það. Við fall fyrirtækisins missti ég bæði vinnuna og vinnu- félaga, starfsumhverfið og launin. Áfallið var talsvert fyrir mig.“ Ekki náðist í Stefán Hilmar Hilmarsson við vinnslu fréttarinn- ar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Arion banki stefnir Stefáni Hilmari Hilmarssyni, fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, vegna skuldar sem nemur tugum milljóna króna. Skuldin er tilkomin vegna vangreiddra lána sem tekin voru í erlendri mynt. Verjandi Stefáns segir skuldirnar ekki tengjast Baugi. Líklegt er að málinu verði frestað þar til Hæstiréttur kveður upp úrskurð um lögmæti erlendra lána. STEFNT VEGNA TUGA MILLJÓNA HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Það eru svo mörg mál sem ganga út á þessi erlendu lán að menn vilja bara bíða eftir niðurstöðu Hæsta- réttar. Stefnir í einu og stefnt í hinu Skuldamál Stefáns Hilmars og Arion banka frestast. Dómstólar bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti erlendra lána. Vopnaleit hjá skíðafólki Á sunnudag yfirgaf Ísland tæplega hundrað manna hópur færeyskra skíðamanna sem undanfarna daga hafði notið tilverunnar í Hlíðarfjalli við skíðaiðkun. Þeir komu hingað í beinu flugi og við brottförina fór fram vopnaleit hjá skíðafólkinu. Það var lögreglan á Akureyri sem sá um vopnaleitina en samkvæmt upplýs- ingum þaðan var um reglubund- ið eftirlit að ræða í tengslum við millilandaflug og því ekki leitað að vopnunum vegna grunsemda að þar kynnu að leynast vopn af nokkru tagi. Sigurður Ingi Lúðvíksson, sem býr í borginni Pattaya í Taílandi, lenti í alvarlegu mótorhjólaslysi í síðustu viku. Hann liggur slasaður á Bang- kok Pattaya Hospital en er nú talinn úr lífshættu. Sigurður Ingi var ásamt tveimur félögum sínum á mótorhjólarúnti á þjóðvegi skammt utan borgarinnar þegar hann ákvað að beygja af veg- inum inn á hliðarveg. Hann var á lít- illi ferð og beið eftir bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Þegar bílinn var far- inn framhjá ákvað Sigurður Ingi að halda af stað en þá birtist pallbíll úr gagnstæðri átt sem leynst hafði fyr- ir aftan hinn bílinn. Hann náði að sveigja frá en pallhorn bílsins skall á honum með miklum þunga. Hornið gerði gat á brjóstvegg með þeim af- leiðingum að sex rifbein brotnuðu og lungun féllu saman. Bílstjóri pallbíllsins og vinir Sig- urðar Inga tóku þá ákvörðun að bíða ekki eftir aðstoð, líkt og oft er boðað, heldur koma honum þegar í stað á spítala. Þannig var ekið með hann á pallinum og þegar á spítal- ann var komið var þeim tjáð að Sig- urður Ingi hefði líklega ekki lifað í tíu mínútur til viðbótar hefði hann ekki komist strax undir læknishend- ur. Það varð honum til lífs að vinir Sigurðar Inga ákváðu að fara með hann strax því annars hefði hann líklega ekki lifað slysið af. Hann liggur nú á spítala og er á batavegi. „Það munaði litlu að ég hefði farið yfir móðuna miklu en sem betur fer fóru þeir með mig á spítalann tím- anlega. Læknirinn segir að ég hefði ekki mátt koma 10 mínútum síðar því þá hefði farið verr. Ég er núna að ná mér en auðvitað er þetta erfið lífsreynsla,“ segir Sigurður Ingi. trausti@dv.is Íslendingur alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys í Taílandi: Mátti engu muna að verr færi Úr hættu Samkvæmt heimildum DV er Sigurður Ingi nú á batavegi eftir alvarlegt mótorhjólaslys en engu mátti muna að færi verr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.