Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 6
Hreiðar með í för Hreiðar Már
Sigurðsson var með Bakkavarar-
bræðrum á Annabels-klúbbnum
fyrr í mánuðinum.
6 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FRÉTTIR
Fer til að hjálpa
fólki á Haítí
Sigurjón Valmundsson, sjúkraflutn-
inga- og slökkviliðsmaður, fór til
Haítí á laugardag. Þar kemur hann
til með að starfa við tjaldsjúkrahús
norska Rauða krossins í Petit Goave,
sem er sjötíu kílómetra frá höfuð-
borginni Port-au-Prince.
Sigurjón sinnir tvíþættu hlut-
verki. Hann verður annars vegar
sjúkraflutningamaður og hins vegar
bráðatæknir við að veita sjúklingum
fyrstu aðhlynningu. Á myndinni sést
hann ganga frá farangri sínum fyrir
ferðina ásamt Kristínu Ólafsdóttur
sem er verkefnisstjóri sendifulltrúa
hjá Rauða krossi Íslands.
Hraðakstur við
grunnskóla
Rúmlega fjórði hver ökumaður
keyrði á ólöglegum hraða þegar
lögreglumenn mældu hraða bíla
gegn Setbergsskóla í Hafnarfirði.
Alls fóru 86 bílar um Hlíðarberg
á einni klukkustund og af þeim
mædust 26 á of miklum hraða.
Þetta þýðir að einhver mældist
brotlegur á um það bil tveggja
mínútna fresti.
Hámarkshraði er 30 kílómetr-
ar á klukkustund en meðalhraði
hinna brotlegu var 42 kílómetrar á
klukkustund, sá sem ók hraðast fór
þarna um á 51 kílómetra hraða.
Ánægðir með
ESB-ferlið
Ungir framsóknarmenn fagna
því að aðildarumsókn Íslands að
Evrópusambandinu sé í eðlileg-
um farvegi. Þetta kemur fram í
yfirlýsingu frá stjórn Sambands
ungra framsóknarmanna. Þar er
því fagnað að ferlið haldi áfram
þrátt fyrir deiluna um Icesave og
tekið fram að mikilvægt sé „að Ís-
land mæti til viðræðna með reisn
og gefi aldrei eftir í Icesave-mál-
inu vegna umsóknarinnar. Um er
að ræða þróun Evrópusamstarfs
til framtíðar og ber að vanda til
verka“.
Ungir framsóknarmenn segja
að ef til aðildarviðræðna kemur
reyni á íslensku samninganefnd-
ina að verja íslenska hagsmuni í
samræmi við ályktun flokksþings
Framsóknarflokksins í fyrra.
„Búinn að ákveða
þetta sjálfur“
„Ég var eiginlega ákveðinn í því, að
draga mig í hlé næst þegar haldinn
yrði landsfundur,“ segir Guðjón Arnar
Kristjánsson sem hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér áfram sem formað-
ur Frjálslynda flokksins. Guðjón Arn-
ar stígur þar með niður eftir að hafa
gegnt formennsku í flokknum undan-
farin sjö ár. Nýr formaður verður kos-
inn á landsfundi um næstu helgi.
Frjálslyndi flokkurinn fékk engan
mann kjörinn í alþingiskosningun-
um í fyrra en aðspurður segist Guðjón
Arnar ekki hafa verið beittur þrýst-
ingi um að stíga til hliðar í ljósi þeirrar
niðurstöðu. „Nei, ég var ekki beittur
þrýstingi. Ég var búinn að ákveða
þetta sjálfur og sagði fólkinu mínu í
miðstjórn frá því fyrir nokkru.“
Ekkert þokast áfram í kjarabaráttu
starfsmanna Norðuráls, sem hafa
frá því í október á síðasta ári fund-
að með yfirmönnum félagsins um
að jafna launakjör þeirra við þau
kjör sem bjóðast í öðrum álverum.
Norðurál vill hins vegar ekki bjóða
neina launahækkun nema 4,5 pró-
sent í bónusgreiðslur til fimm ára.
Samkvæmt heimildum DV innan
Norðuráls er mikil reiði meðal starfs-
manna vegna málsins. Yfirtrúnað-
armaður starfsmanna var settur af
í miðri kjarabaráttu, þar sem hann
fór fram á fjölmiðlabann eftir frétta-
flutning DV af málefnum Norðuráls.
Það vakti óánægju meðal annarra
trúnaðarmanna sem settu hann af.
Starfsmaður Norðuráls, sem
DV ræddi við, segir langlundargeð
starfsfólksins senn á þrotum. Gróði
fyrirtækisins sé mikill og það hafi
bitnað mikið á móralnum að ekki
hafi verið hægt að hækka launin.
Starfsmenn Norðuráls séu að með-
altali með um 17 prósent lægri laun
en gengur og gerist í öðrum álverum.
Starfsfólk Norðuráls skoði nú hvort
það hafi verkfallsrétt. Aldrei áður hafi
lætin innan fyrirtækisins verið meiri.
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness, seg-
ir í samtali við DV að kröfur starfs-
manna Norðuráls séu sanngjarnar.
„Við erum búnir að funda hjá rík-
issáttasemjara frá því í október og
erum aðeins að fara fram á að launa-
kjör starfsmanna Norðuráls verði
þau sömu og hjá hinum. Fram til
þessa hefur félagið sýnt afskaplega
lítinn samningsvilja að okkar mati.
Það er frekar dökkt yfir,“ segir hann.
Hann segir að munur á launum
starfsmanna Norðuráls og annarra
álvera nemi tugum þúsunda króna
á mánuði. Næsti fundur í samninga-
viðræðunum er á mánudag.
valgeir@dv.is
Veruleg óánægja meðal starfsmanna Norðuráls vegna kjarabaráttu:
Starfsmenn Norðuráls íhuga verkfall
Norðurál Starfsmaður félagsins lýsir því að
verulegrar óánægju gæti vegna kjarabaráttunnar.
Lýður og Ágúst Guðmundssynir, sem
gjarnan eru kenndir við matvæla-
fyrirtækið Bakkavör, fögnuðu því
fyrr í mánuðinum á einkaklúbbn-
um Annabels í Mayfair í London að
nauðasamningar Bakkavarar hefðu
verið samþykktir. Bræðurnir eru
báðir búsettir í Bretlandi. Með þeim
í för var Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings og
núverandi íbúi í Lúxemborg, ásamt
fleiri Íslendingum sem ekki hafa ver-
ið nafngreindir.
Bræðurnir höfðu góða ástæðu til
að fagna en með nauðasamningun-
um, sem samþykktir voru á kröfu-
hafafundi Bakkavarar 4. mars, munu
þeir eiga möguleika á að eignast
fjórðungshlut í félaginu aftur. Þeir
bræður stofnuðu félagið á sínum
tíma og eru kenndir við það. Hvort
af þessu verður veltur hins vegar á
því hvernig Bakkavör mun ganga að
greiða niður himinháar skuldir sín-
ar. Kröfuhafar Bakkavarar hafa eign-
ast það að fullu en bræðurnir munu
stjórna því áfram.
Ef nauðasamningarnir hefðu ekki
verið samþykktir hefði Bakkavör
verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þá
hefði þetta flaggskip þeirra bræðra
heyrt sögunni til en í staðinn fá þeir
að stjórna því áfram og geta eignast
hlut í því aftur. Bræðurnir stofnuðu
Bakkavör á níunda áratugnum ásamt
föður sínum.
Annar hópur Íslendinga
„Þeir voru á þessum stað þetta kvöld.
Þeir einstaklingar sem ég veit að voru
þarna eru bræðurnir tveir og Hreið-
ar Már,“ segir heimildarmaður DV
sem þekkir til málsins. Hann segir að
þeir hafi verið á Annabels að fagna
nauðasamningnum Bakkavarar auk
fleiri Íslendinga og einhverra útlend-
inga.
Fleiri Íslendingar voru þó á
staðnum þetta kvöld og báru ein-
hverjir þeirra kennsl á Íslending-
ana þekktu. „Það vildi þannig
til að það kom annar hópur
Íslendinga þarna inn,“ segir
heimildarmaður DV.
Frægasti einkaklúbbur
í London
Annabels-klúbburinn er fræg-
asti einkaklúbbur Lundúnaborg-
ar að sögn heimildarmanns DV og
er oft fjallað
um hann í
slúður-
pressunni
bresku
þegar
einhverj-
ir þekkt-
ir ein-
staklingar láta sjá sig þar. Má þar
nefna fígúrur eins og Paris Hilton,
Gerri Halliwell, Kate Moss og fleiri
slíkar stjörnur.
Heimildir DV herma að það kosti
um 75 þúsund pund, um 15 mlljón-
ir króna, á ári að vera meðlimur í
klúbbnum. „Þetta er bara eins og
annað í Mayfair. Þú hreyfir þig ekki
þar fyrir minna en ég veit ekki
hvað. Þú færð ekki hótelherbergi
fyrir minna en 300 pund á nóttu,“
segir heimildarmaðurinn en menn
þurfa að vera meðlimir í klúbbn-
um til að komast þangað inn eða
þá að vera með einhverjum sem
er meðlimur.
„Þarna hittast
menn og fá sér
að borða. Þarna
er næturklúbb-
ur og þarna er
hægt að leigja
herbergi og
gista og allt.
Þetta er með
því dýrasta
og flottasta
sem gerist
í London og klúbburinn er frægur,“
segir heimildarmaðurinn en upphaf-
lega er Annabels breskur karlaklúbb-
ur af gamla skólanum en hlutverk
hans hefur breyst í seinni tíð.
Bakkabræður og Hreiðar Már Sigurðsson fögnuðu nauðasamningum Bakkavarar á
frægasta einkaklúbbi Lundúna fyrr í mánuðinum. Með þeim í för var Hreiðar Már
Sigurðsson auk fleiri Íslendinga. Annabels er frægasti einkaklúbburinn í London og
kostar um 15 milljónir króna að vera meðlimur í honum.
BAKKABRÆÐURNIR
FÖGNUÐU Í LONDON
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Fögnuðu nauðasamn-
ingum Lýður og Ágúst
Guðmundssynir fögnuðu
nauðasamningum Bakkavar-
ar á Annabels-klúbbnum í
London fyrr í mánuðinum.
Vinsæll hjá stjörnunum Annab-
els-klúbburinn í London er vinsæll hjá
þotuliði heimsins. Paris Hilton er ein
þeirra sem greint hefur verið frá að
hafi sótt staðinn en hún vakti athygli
blaðaljósmyndara þar sem hún stóð fyrir
utan staðinn í október 2008.
Þeir voru á þessum stað þetta kvöld.