Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 9
FRÉTTIR 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 9
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verkir í hásin?
Vandaðar stuðningshlífar
til meðferðar á hásinabólgu
Fjölbreytt úrval
VERÐ
KR.
9.900
VERÐ
KR.
13.900 Handklæða-ofnar
Hitastýrð sturtusett
með öllu
Sturtusettin
komin aftur
VERÐ
KR.
.
VERÐ
KR.
. l -
f r
it t r t rt tt
ll
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Sigurður G. Guðjónsson hæstarétt-
arlögmaður segir að milljarðurinn
sem eignarhaldsfélag Pálma Har-
aldssonar, Fons, lagði inn á per-
sónulegan tékkareikning Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar sumarið 2008
hafi ekki verið gjöf til Jóns Ásgeirs.
„Þetta var nú ekki gjöf til Jóns Ás-
geirs. Enda held ég að engum hefði
dottið í hug að gefa Jóni Ásgeiri
einn milljarð,“ segir Sigurður G.
Þrotabú Fons hefur stefnt Jóni Ás-
geiri á þeim forsendum að millj-
arðurinn frá Fons til Jóns Ásgeirs
hafi verið gjafagerningur og vill
skiptastjórinn, Óskar Sigurðsson,
rifta greiðslunni.
Sigurður G. er lögmaður Jóns
Ásgeirs í málinu en stefnan í því
var þingfest þann 25. febrúar síð-
astliðinn. Stefnan er ein af 10 stefn-
um þrotabús Fons sem þingfest var
í Héraðsdómi Reykjavíkur þennan
dag.
Auglýsingasamningur
við Williams-liðið
Sigurður G. segir að milljarður-
inn hafi verið hluti Fons af sam-
eiginlegri fjárfestingu félagsins og
eignarhaldsfélags í eigu Jóns Ás-
geirs, Þú Blásól ehf., í formúlulið-
inu Williams. Pálmi Haraldsson
og Jón Ásgeir voru viðskiptafélagar
á árunum fyrir hrunið og fjárfestu
meðal annars í ýmsum verslunum
í Bretlandi, til dæmis í Hamleys-
leikfangabúðakeðjunni og Iceland-
keðjunni.
Sigurður segir aðspurður að
milljarðurinn frá Fons hafi verið
notaður til að greiða fyrir auglýs-
ingasamning Hamleys við Willi-
ams-liðið, Jón Ásgeir hafi svo lagt
til sinn hluta af fjárfestingunni í
gegnum Þú Blásól. „Þessir pen-
ingar fóru til Williams-liðsins þar
sem Hamleys auglýsti á formúlu-
bílunum þeirra og flutningatækj-
um. Þessum peningum var því
bara ráðstafað í verkefni sem félög
á þeirra vegum höfðu staðið í, og
stóðu í allt til loka árs 2008,“ segir
Sigurður G. sem einnig gætir hags-
muna Pálma í einhverjum af þeim
málum sem þrotabú Fons hefur
höfðað gegn honum persónulega.
Ekki bankareikn-
ingur hjá Glitni
Aðspurður segir Sigurður, varðandi
það af hverju milljarðurinn hafi
verið lagður inn á persónulegan
bankareikning Jóns Ásgeirs en ekki
inn á reikning félagsins Þú Blá-
sól, að þetta hafi verið vegna þess
að félag hans hafi ekki haft banka-
reikning hjá Glitni á þessum tíma.
„Það er nú bara vegna þess að Þú
Blásól hafði á þessum tíma ekki
bankareikning í Glitni-banka. Svo
var þetta bara millifært frá Jóni til
Þú Blásólar til að standa við þær
skuldbindingar sem þeir þurftu að
standa við út af þessari Williams-
fjárfestingu,“ segir Sigurður G.
Fons gjaldfært, segir Sigurður
Sigurður segir að lagarökin sem
hann muni halda fram í málinu
séu meðal annars þau að Fons hafi
verið gjaldfært félag á þeim tíma
sem millifærslan átti sér stað og því
sé erfitt að sanna að um gjafagern-
ing hafi verið að ræða. „Þeir eru að
reyna að rifta þessu sem gjafagern-
ingi... Ef svo ólíklega fer að þeir nái
að sanna að þetta hafi verið gjöf til
Jóns þá er nú gjöfum ekki rift nema
hægt sé að sýna fram á að aðilinn
hafi orðið ógjaldfær vegna gjafar-
innar eða hafi verið ógjaldfær fyr-
ir. Hvorugt á við um Fons sem fékk
um 12 til 13 milljarða frá Iceland-
keðjunni inn á reikninginn sinn
og var með sterka stöðu á þessum
tíma... Í mínum huga er þetta ekki
mál sem ætti að ná fram riftun á út
frá gjaldþrotalögum,“ segir Sigurð-
ur.
Næstu skref í málinu eru þau
að Sigurður á að skila greinargerð í
málinu fyrir hönd Jóns Ásgeirs 25.
mars næstkomandi.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar segir að milljarður-
inn sem Fons lagði inn á reikning Jóns Ásgeirs hafi ekki verið
gjöf til hans. Hann segir milljarðinn hafa verið vegna auglýs-
ingasamnings við Williams-formúluliðið. Jóni Ásgeiri hefur
verið stefnt til að greiða þrotabúi Fons milljarðinn til baka.
„ÞETTA VAR EKKI
GJÖF TIL JÓNS“
Enda held ég að engum hefði
dottið í hug að gefa Jóni
Ásgeiri einn milljarð.
Auglýsingasamningur við
Williams Milljarðurinn var
vegna auglýsingasamnings
Fons og Þú Blásól við Willi-
ams-formúluliðið. Sigurður
segir að milljarðurinn hafi
farið beint til Jóns Ásgeirs því
Þú Blásól hafi ekki verið með
bankareikning í Glitni.