Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Side 10
10 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FRÉTTIR
„Mér finnst þetta orðið alveg ferlegt
mál. Að mínu viti þarf Hulda sólar-
hringsþjónustu og það er líka mat
læknis. Samt breytist ekkert og það
finnst mér ákaflega skrítið,“ segir
Kristín Þorsteinsdóttir, nágranni og
vinkona Huldu Magnúsdóttur sem
bundin er hjólastól vegna fötlunar.
Hulda hefur undanfarna mánuði
barist fyrir því að fá þá þjónustu sem
hún segir sig nauðsynlega þurfa en
í september síðastliðnum hafi hún
verið færð af sólarhringsvakt yfir á
svokallaðar stubbavaktir. Þær vaktir
segir Hulda innifela þrjár heimsókn-
ir á dag en þess utan geti hún hringt
eftir aðstoð, sem hún stundum fái og
stundum ekki. Hulda er háð aðstoð
til að komast á fætur á morgnana og
til að komast á salernið og segir hún
þjónustuna því miður oft hafa brugð-
ist þannig að hún komist ekki fram úr
rúminu.
Kvíði og niðurlæging
„Það var síðast um helgina sem ég
komst ekki fram úr rúminu því það
kom enginn til að aðstoða mig. Ég
komst því ekki á fætur og þurfti á
endanum að hringja í móður mína
til að koma mér til aðstoðar. Ég get
ekki treyst á þessa litlu þjónustu sem
ég á að fá. Það gerist ekkert í mínum
málum, sama hversu mikið er bent á
þetta. Það virðist ekki vera hægt að
ræða við fulltrúa svæðisskrifstofunn-
ar,“ segir Hulda vonsvikin.
Hulda er undir verndarvæng
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra
á Reykjanesi og bendir á að skrifstof-
unni hafi verið sent læknisálit á and-
legri heilsu hennar eftir að þjónustu-
stiginu var breytt í haust. Í því áliti
læknisins megi lesa að þunglyndi
Huldu hafi aukist mjög eftir að þjón-
usta við hana var skert og hún sett á
stubbavaktirnar svokölluðu. Það sé
ekki aðeins þunglyndi sem aukist
heldur einnig kvíði og niðurlæging.
Versnar stöðugt
Aðspurð segist Kristín ítrekað hafa
þurft að koma Huldu til aðstoðar
þar sem þjónustuaðili hafi ekki mætt
þegar til stóð. Hún segir mjög erf-
itt að horfa upp á vinkonu sína þjást
undanfarið. „Þjónustan klikkar oft og
mér finnst þetta ekki ganga lengur.
Ég hef sjálf nokkrum sinnum hjálpað
henni á fætur á morgnana. Ef ég geri
það ekki þarf móðir hennar að keyra
ofan úr Árbænum til þess. Sem vin-
kona og nágranni finn ég að Huldu
hrakar jafnt og þétt. Óöryggi hennar
versnar og henni hrakar andlega því
skert þjónusta er farin að hafa veru-
leg áhrif á hana. Það verður bara að
gera eitthvað í þessu,“ segir Kristín.
Kristín á sjálf átján ára fatlaða
dóttur og hefur áhyggjur af því þeg-
ar hún fer að heiman. „Nú kem-
ur að því að hún fari að heiman og
ég veit ekkert hvort maður geti það
vitandi hvernig þjónustan er. Ef ég
á það hvort sem er á hættu að þurfa
sjálf að hlaupa oft til aðstoðar er
þá ekki best að hafa hana hjá sér
heima?“
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Það verður bara að gera eitthvað
í þessu.
STUBBAVAKTIR AUKA
ÞUNGLYNDI HULDU
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi barst fyrir áramót mat læknis á andlegri líðan Huldu
Magnúsdóttur, sem bundin er við hjólastól, eftir að sólarhringsþjónusta við hana var skert. Nágranni henn-
ar, Kristín Þorsteinsdóttir, hefur áhyggjur af vinkonu sinni þar sem heilsu hennar hraki stöðugt.
Fær ekki aðstoð
Hulda segist ekki fá þá
aðstoð sem hún þarfnist
og þannig komist hún
stundum ekki fram úr
rúminu á morgnana.
Það hafi síðast gerst um
síðustu helgi.
Ekki búið að
boða fundi
Ágreiningur um grundvöll frekari
viðræðna milli Íslendinga annars
vegar og Breta og Hollendinga hins
vegar hefur orðið til þess að engir
fundir hafa verið boðaðir. Fyrir síð-
ustu helgi lagði íslenska samninga-
nefndin fram plagg sem átti að vera
upplegg fyrir framhald viðræðna um
lausn Icesave-deilunnar.
Að því er fram kom í kvöldfrétt-
um RÚV á sunnudag voru hins veg-
ar fjölmargar athugasemdir gerðar
og frekari viðræðum á grundvelli
þess var hafnað. Þrátt fyrir þetta hafa
óformleg samskipti verið síðustu
daga við Breta og Hollendinga um
lausn deilunnar þótt engir fundir
hafi verið formlega boðaðir.
Í fréttum RÚV var haft eftir Stein-
grími J. Sigfússyni fjármálaráðherra
að unnið sé að því að koma á fund-
um með Bretum og Hollendingum í
þessari viku en ekkert sé fast í hendi.
Bæjarráð Kópavogsbæjar vill sam-
eina skóla í bænum, nánar tiltekið
Digranesskóla og Hjallaskóla, og hef-
ur sent skólayfirvöldum og foreldr-
um nemenda erindi þess efnis. Fyr-
irhugað var að sameiningin gengi í
gegn fyrir næsta skólavetur en mót-
mæli foreldra urðu til þess að bæjar-
ráð samþykkti í vikunni að fresta sam-
einingunni.
Til stóð að sameina skólana næsta
haust. Gert er ráð fyrir að annar skól-
inn haldi annaðhvort utan um ungl-
ingabekkina eða alfarið yngsta stigið.
Fulltrúar foreldrafélaganna urðu var-
ir við nokkra óánægju, einkum með
hversu hratt þessi hugmynd hefur
verið unnin. Í kjölfarið var bæjarráði
send ályktun þar sem farið var fram
á frestun til að hægt væri að skoða
sameiningartillöguna nánar. Það er
nú í höndum fræðsluskrifstofu bæj-
arins að gera ítarlega greinargerð um
mögulega sameiningu.
Auður Gunnarsdóttir, formaður
Foreldrafélags Digranesskóla, viður-
kennir að meðal foreldra séu skiptar
skoðanir um ágæti sameiningarinnar
en bendir á að flestir þeirra séu á því
að meiri tíma þurfi til að vega og meta
kosti og galla. Hún er ánægð með að
bæjarráð hafi hlustað á raddir for-
eldra. „Varðandi sameininguna sem
slíka eru ekki allir ósáttir við hana en
fólk vill fá meiri tíma til að skoða þetta.
Það eru skiptar skoðanir innan for-
eldrahópsins, ég sjálf vil þessa sam-
einingu en þá tala ég bara fyrir mitt
leyti,“ segir Auður.
Árni Þór Ingólfsson, fræðslustjóri
Kópavogsbæjar, segir ekki útilok-
að að til sameiningar komi í haust.
Hann telur ekki lengur hægt að bíða
með hagræðingaraðgerðir í skólun-
um tveimur. „Auðvitað sjáum við fleiri
kosti við þessa sameiningu heldur en
galla og því leggjum við þessa tillögu
fram. Áhyggjur foreldra snúa einkum
að því að verið sé að setja saman of
stórar stærðir en í því eru líka sóknar-
færi. Nemendum hefur verið að fækka
undanfarin ár og það er ljóst að í ein-
hverjar aðgerðir verðum við að ráðast.
Það er því alls ekki útilokað að við ráð-
umst í þetta í haust,“ segir Árni Þór.
trausti@dv.is
DV17720180208_Nemendur, skóli, bekkur,
krakkar, unglingar, menntaskóli, barna-
skóli_1.jpg
Kópavogsbær vill sameina skóla en foreldrar krefjast meiri tíma til að meta málið:
Bökkuðu eftir foreldramótmæli
Skoðað betur Foreldrar kröfð-
ust þess að sameiningartillaga
skóla í Kópavogi sé skoðuð
betur og á það féllst bæjarráð.