Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Qupperneq 11
FRÉTTIR 15. mars 2010 MÁNUDAGUR 11
Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrota-
bús Fons hf., og Guðjón Ólafur Jóns-
son, aðstoðarmaður hans, reyndu
að losna við tiltekna kröfuhafa úr
þrotabúi Fons hf. með því að greiða
þeim kröfur þeirra að fullu á kostnað
annarra almennra kröfuhafa.
Málavextir eru þeir að Sigurð-
ur G. Guðjónsson lögfræðingur á
liðlega 200 þúsund króna kröfu í
þrotabú Fons. Krafan var áður eign
Skeljungs hf. Með því að Sigurð-
ur er kröfuhafi hefur hann aðgang
eins og aðrir kröfuhafar að skipta-
fundi og fundum kröfuhafa í þrota-
bú Fons hf. sem Pálmi Haraldsson
átti og stýrði.
Óþægilegur kröfuhafi
Nærvera Sigurðar á fundi kröfuhafa
föstudaginn 5. mars síðastliðinn virt-
ist koma óþægilega við Óskar skipta-
stjóra og Guðjón Ólaf, aðstoðar-
mann hans, sem ráða má af því sem
síðar gerðist. Á umræddum fundi var
rædd tillaga Óskars skiptastjóra um
kyrrsetningu eigna sem hann taldi
að unnt væri að ná til með riftun
samninga á grundvelli gjaldþrota-
laga. Sigurður vinnur fyrir Jón Ásgeir
Jóhannesson í riftunarmálinu.
Þriðjudaginn 9. mars, í síðustu
viku, birtust lögfræðingarnir Guð-
jón Ólafur og Daði Ólafsson á skrif-
stofu Sigurðar G. Guðjónssonar með
203.143 krónur í umslagi. Upphæð-
in var í seðlum og smámynt. Með
því vildu þeir greiða að fullu kröfu
Sigurðar gegn skriflegri yfirlýsingu
hans um að hann hefði ekki frekari
afskipti af þrotabúi Fons hf.
Sigurður neitaði að taka við
greiðslunni og skrifaði ekki undir
neitt að því er fram kemur í tölvu-
póstum sem DV hefur undir hönd-
um. Kvöddu þá Guðjón Ólafur og
Daði með þeim orðum að upphæð-
in yrði greidd á geymslureikning og
þar með yrði Sigurður útilokaður frá
því að mæta frekar á skiptafundi hjá
Fons hf.
Sigurði þótti aðferðirnar vafa-
samar og ritaði Óskari skiptastjóra
tölvupóst og lýsti þar meðal annars
heimsókn og yfirlýsingum Guðjóns
Ólafs og Daða, sem kváðust hafa
komið í nafni skiptastjórans.
Óheimilt að mismuna
kröfuhöfum
Sigurður segir í tölvupósti sínum
til Óskars að gjaldþrotaskipti miði
að því að tryggja jöfnuð meðal allra
kröfuhafa, sem eigi kröfur í sama
flokki. „Hvergi í lögum um gjald-
þrotaskipti er heimild skiptastjóra
til handa að víkja frá þessari reglu
og greiða einstökum kröfuhöfum til-
tekins flokks kröfur þeirra að fullu en
öðrum ekki – skiptir í því sambandi
ekki máli þótt hún sé lágrar fjárhæð-
ar.“
Fram kemur einnig í bréfi Sig-
urðar til skiptastjóra Fons að gjald-
þrotalögin heimili ekki að tiltekinn
fjöldi kröfuhafa ákveði utan skipta-
fundar að greiða skuli einum, tveim-
ur eða þremur almennum kröfuhöf-
um kröfur þeirra að fullu en öðrum
ekki. „Mál um greiðslu tiltekinna al-
mennra krafna að fullu er mál sem á
undir skiptafundi og þarf samþykkt-
ir eðli máls samkvæmt samþykki
allra kröfuhafa sem eiga það á hættu
að fá ekki fullar efndir krafna sinna.“
Loks gefur Sigurður til kynna að
hann muni bréflega gera Héraðs-
dómi Reykjavíkur grein fyrir vinnu-
lagi Óskars skiptastjóra, sem hann
telur ólöglegt. Bendir Sigurður á að
sé ásetningur skiptastjóra að greiða
sér og tveimur öðrum kröfuhöfum
að fullu út kröfurnar eigi aðrir kröfu-
hafar tilkall til þess sama og það gæti
skipt hundruðum milljóna króna
samkvæmt kröfuskrám þrotabúsins.
Hótar Sigurður jafnframt að gera
öðrum almennum kröfuhöfum
grein fyrir athæfi Óskars skiptastjó-
ra, Guðjóns Ólafs og Daða. Geti búið
ekki gert öðrum almennum kröfu-
höfum jafnhátt undir höfði og ætl-
unin var að gera Sigurði og tveimur
öðrum kröfuhöfum geti það leitt til
skaðabótaskyldu skiptastjóra.
Mætir áfram á skiptafundi
Síðar sama dag og Sigurður hafn-
aði að taka við 100 prósenta greiðslu
kröfu sinnar, liðlega 200 þúsund
krónum í seðlum, úr hendi Guðjóns
Ólafs og Daða, sendi skiptastjóri Sig-
urði skeyti. Þar vísar Óskar til þess
að Sigurður hafi neitað að taka við
greiðslunni. „Þér neituðuð hins veg-
ar að veita greiðslunni viðtöku þrátt
fyrir áskoranir þar um. Þar sem um
fullnaðargreiðslu á kröfu yðar er að
ræða, auk þess sem lausnardagur
hennar er kominn, er um óheimilan
viðtökudrátt að ræða af yðar hálfu,“
segir í skeytinu. Skiptastjóri get-
ur um geymslugreiðslu sömu upp-
hæðar og að hann líti svo á að Sig-
urður eigi ekki lengur kröfu í búið og
teljist ekki til kröfuhafa.
Sigurður svaraði skeyti Óskars
skiptastjóra strax morguninn eft-
ir, 10. mars, og ítrekaði þau rök sín
að Óskar hefði ekki aflað heimildar
allra kröfuhafa til að greiða nokkr-
ar kröfur að fullu á kostnað annarra
almennra kröfuhafa. „Meðan ekki
liggur fyrir formlegt samþykki allra
kröfuhafa sem eiga samþykktar al-
mennar kröfur verður fé ekki bor-
ið á einstaka kröfuhafa í umslögum
eins og aðstoðarmenn þínir reyndu
í gær. Þegar þú hefur lagt mál þetta
formlega fyrir á skiptafundi og feng-
ið samþykki allra almennra kröfu-
hafa til greiðslu á kröfu minni mun
ekki standa á mér að taka við henni.
Meðan ekki er hins vegar gætt réttra
reglna í þessu máli mun ég mæta á
skiptafundi, enda með öllu óbund-
inn af geymslugreiðslu þinni,“ segir í
tölvubréfi Sigurðar. Sigurður skipta-
stjóri sagði í samtali við DV að búið
væri að fá samþykki allra kröfuhafa,
annarra en Sigurðar, hafi verið aflað,
þó ekki á formlegum skiptafundi.
30 milljónir á korteri?
Fons hf. varð gjaldþrota í byrjun
maí í fyrra og var Óskar Sigurðsson
lögfræðingur skipaður skiptastjóri.
Honum til aðstoðar er Guðjón Ól-
afur Jónsson samstarfsmaður hans
á lögmannsstofunni JP lögmenn.
DV greindi frá því í byrjun septem-
ber í fyrra að Óskar og Guðjón Ól-
afur hefðu tekið sér 25 til 30 millj-
óna króna þóknun fyrir að selja 30
prósenta hlut Fons í sænsku ferða-
skrifstofunni Ticket fyrir á sjöunda
hundrað milljónir króna. Hlutur-
inn var veðsettur Landsbankanum
- NBI. Starfsmenn NBI fordæmdu
vinnubrögð skiptastjóra í samtali við
blaðamann DV og báru að skipta-
stjórinn og samstarfsmenn hans
hefðu nánast stillt bankanum upp
við vegg.
Þess má geta að þóknunin sem
skiptastjóri og samstarfsmenn tóku
sér nemur nærri 5 prósentum af
söluandvirði hlutar Fons í Ticket, en
það er svipað hlutfall og sýslumenn
mega að hámarki taka vegna upp-
boðshalds. Óskar sagði í samtali við
DV um sölu Ticket-ferðaskrifstof-
unnar að söluþóknunin hefði verið
samkomulagsatriði við NBI.
Alls nema kröfur í þrotabú Fons
um 35 milljörðum króna. Almenn-
ar kröfur í þrotabúið nema liðlega
29 milljörðum króna. Langstærsti
kröfuhafinn er skilanefnd Glitn-
is sem lýst hefur nærri 24 milljarða
króna kröfu í þrotabúið. Kröfur
vegna Plastprents og Securitas eru
hjá skilanefnd Glitnis. Skiptastjóri
hefur auglýst Securitas til sölu en
ekkert hefur verið upplýst um tilboð
eða önnur atriði varðandi söluferlið.
Næststærsti kröfuhafinn er
Landsbankinn, NBI, með tæpa
5 milljarða króna. Stærstu kröfur
skilanefndar Kaupþings í þrotabú
Fons eru vegna kaupa félagsins á 35
prósenta hlut í Hamleys.
Guðjón Ólafur var varaþing-
maður Framsóknarflokksins frá ár-
inu 2003 og þingmaður flokksins frá
2006 fram að þingkosningum 2007.
Fræg urðu ummæli hans í Silfri Eg-
ils í Sjónvarpinu í janúar 2008 þeg-
ar hann gerði upp við Björn Inga
Hrafnsson, fyrrverandi borgarfull-
trúa flokksins. Kvaðst Guðjón Ól-
afur hafa hnífasett í bakinu eftir
vinnubrögð borgarfulltrúans í að-
draganda kosninganna 2003 og
2007.
Meðan ekki ligg-ur fyrir form-
legt samþykki allra
kröfuhafa sem eiga
samþykktar almennar
kröfur verður fé ekki
borið á einstaka kröfu-
hafa í umslögum eins
og aðstoðarmenn þínir
reyndu í gær.
Sigurður G. Guðjónsson lögfræðingur sakar Óskar Sigurðsson skiptastjóra um að mismuna almennum
kröfuhöfum í þrotabú Fons hf. Óskar sendi menn sína á fund Sigurðar og vildi greiða honum kröfu hans
í þrotabúið að fullu í seðlum. Sigurður neitaði að taka við peningunum og segir að fé verði ekki borið á
einstaka kröfuhafa í umslögum eins og aðstoðarmenn hans hafi reynt.
Neitaði að taka við greiðslu Sig-
urður G. Guðjónsson telur ólögmætt
að mismuna almennum kröfuhöfum
og vill að almennir kröfuhafar í Fons
verði upplýstir um athæfi skiptastjóra.
Kaupsýslumaður í vanda Fons
hf. í eigu Pálma Haraldssonar varð
gjaldþrota fyrir tæpu ári. Kröfur í
félagið nema alls um 35 milljörðum
króna.
Í STRÍÐ VIÐ
SKIPTASTJÓRA
FONS
200 þúsund krónur
í hvítu umslagi
Guðjón Ólafur Jónsson
mætti á skrifstofu
Sigurðar G. við annan
mann og vildi greiða
kröfu hans í þrotabú
Fons upp í topp og
losna við nærveru hans
á skiptafundum.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is