Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2010, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 15. mars 2010 FRÉTTIR
Margeir Pétursson, aðaleigandi og
stjórnarformaður MP Banka, gæti
misst eignarhlut sinn í bankanum
vegna útistandandi skulda eignar-
haldsfélaga í hans eigu við spari-
sjóðinn Byr. Veðin fyrir lánunum
eru að hluta í í hlutabréfum félag-
anna í MP Banka.
Til tals hefur komið í stjórn Byrs
að leysa til sín hluta af hlutabréfum
Margeirs í MP Banka vegna þess að
hann hefur meðal annars átt í erfið-
leikum með að standa í skilum með
vaxtagreiðslur af lánum sínum. Auk
þess hefur verið deilt um verðmæti
hlutabréfanna í MP Banka og hversu
hátt eigi að verðmeta þau upp í
skuldina við sparisjóðinn. Stjórn-
in hefur átt í viðræðum við Margeir
út af skuldum félaganna. Þó mun
ekki standa til að leysa bréfin til sín
á næstunni en það mun vera einn af
þeim möguleikum sem rætt hefur
verið um í stjórninni.
Annað sem valdið hefur stjórn
Byrs áhyggjum út af málinu er að
möguleg skaðabótakrafa stofnfjár-
eigenda í Byr á hendur MP Banka
vegna Exeter-málsins gæti rýrt verð-
mæti MP Banka. Exeter-málið er til
rannsóknar hjá sérstökum saksókn-
ara efnahagshrunsins en það snýst
um lánveitingar frá Byr til háttsettra
stjórnenda sparisjóðsins sem þurftu
að standa í skilum við MP Banka út
af lánum sem veitt höfðu verið fyrir
kaupum á stofnfjárbréfum í Byr. Byr
lánaði stjórnendunum um millj-
arð króna sem síðan var notaður til
að greiða upp skuldir þeirra við MP
Banka.
Líkt og DV hefur greint frá voru
Exeter-viðskiptin ákveðin af stjórn-
endum MP Banka og meðlimum í
stjórn Byrs sem tekið höfðu lán til að
kaupa stofnfjárbréf í Byr. Með lán-
veitingunum frá Byr losnuðu stjórn-
armennirnir við lánin frá MP og
bankinn fékk skuldirnar greiddar.
Byr tapaði hins vegar milljarði króna
vegna viðskiptanna.
Gæti orðið stærsti
hluthafi MP Banka
Margeir á nærri 30 prósenta hlut í
MP Banka í gegnum eignarhalds-
félögin Margeir Pétursson ehf. og
Hraunbjarg ehf. Stærsti hlutur hans
er inni í Margeir Pétursson ehf.,
tæp 22 prósent, og kemur fram í
ársreikningi félagsins árið 2008 að
rúmur helmingur bréfa Margeirs sé
veðsettur hjá lánastofnunum út af
skuldum félagsins.
Byr er næststærsti hluthafi MP
Banka á eftir Margeiri með um 13
prósent eignarhluta og hefur spari-
sjóðurinn verið að reyna að selja
þennan hlut sinn í bankanum. Ef
sparisjóðurinn leysir til sín hlut
Margeirs eða hluta hans gæti hann
því orðið stærsti hluthafi bankans.
Samkvæmt heimildum DV setti
Byr hlutinn í sölumeðferð eftir að
áhugasamur aðili lýsti því yfir að
hann vildi kaupa bréfin.
Meira en 2 milljarða
króna skuldir
Heimildir DV herma að heildar-
skuldir Margeirs og félaga hans við
Byr nemi á milli 2 og 2,5 milljörðum
króna.
Í ársreikningi Margeirs Péturs-
sonar ehf. kemur fram að skuld-
ir félagsins við lánastofnanir nemi
um 1.200 milljónum króna og að
þær hafi verið á gjalddaga árið 2009.
Stærstur hluti þessara skulda, tæp-
ur milljarður króna, var í íslenskum
krónum með 19 til 22 prósenta vöxt-
um og kemur fram í ársreikningnum
að þessar skuldir hafi verið á gjald-
daga í fyrra, árið 2009.
Greiddi sér arð þrátt
fyrir erfiðleika
Heimildir DV herma að stjórn Byrs
hafi byrjað að ræða við Margeir
vegna skuldanna í fyrra eftir að fyr-
ir lá að sparisjóðurinn gæti hugsan-
lega tapað á lánveitingunni til félaga
Margeirs. Þrátt fyrir þetta greiddi fé-
lag Margeirs 46 milljónir króna í arð
til hans í fyrra vegna rekstrarársins
2008. Aðalfundur félagsins árið 2009
var haldinn í lok september í fyrra.
Samkvæmt ársreikningi skilaði fé-
lagið 194 milljóna króna hagnaði á
árinu 2008 og var eigið fé tæpir tveir
milljarðar króna í árslok 2008.
Margeir segist ekki
eiga í erfiðleikum
Margeir Pétursson segir aðspurð-
ur að hann eigi ekki í erfiðleikum
með að standa í skilum við Byr út af
lánunum frá sparisjóðnum. „Þetta
hefur bara verið í fullu samkomu-
lagi. Það hafa verið greiddir vextir
af þessu og ég hef staðið í skilum
þrátt fyrir að árferðið hafi verið erf-
itt,“ segir Margeir.
Hann segist því ekki hafa áhyggj-
ur af því að hann muni missa bréf-
in sín í MP Banka í veðkalli hjá Byr.
„Ég bara kannast ekki við þetta.
Það er þá mjög skrítið ef menn eru
að fara að standa í svoleiðis gagn-
vart félagi sem stendur mjög vel.
Ég hef átt mjög farsæl viðskipti við
Byr og staðið í skilum og ég mun
gera það áfram. Ég hélt ekki að þeir
hefðu sérstakar áhyggjur af þess-
um félögum,“ segir Margeir.
Aðspurður hvort hluti af vanda-
málinu geti ekki verið það að ef-
ast sé um raunverulegt verðmæti
bréfanna í MP Banka og þar með
verðmæti veðsins fyrir láninu seg-
ir Margeir. „Þetta eru bara mjög
verðmæt bréf,“ og bætir hann því
við að rekstur MP Banka gangi vel
og að hann sé að stækka.
Félög í eigu Margeirs Péturssonar í MP Banka
skulda sparisjóðnum Byr á þriðja milljarð
króna. Veðið fyrir lánunum er í hlutabréf-
um í MP Banka. Komið hefur til tals hjá
Byr að leysa til sín um 30 prósenta hlut
Margeirs í MP Banka. Margeir greiddi
sér tæpar 50 milljónir í arð í fyrra þrátt
fyrir erfiðleikana. Margeir segist allt-
af hafa staðið í skilum við Byr.
MARGEIR GÆTI
MISST MP-BRÉFIN
Skuldar Byr milljarða Margeir Péturs-
son, stærsti eigandi og stjórnarformaður
MB Banka, skuldar sparisjóðnum Byr
milljarða króna og hefur komið til tals hjá
Byr að leysa hlut hans í MP til sín.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Þetta hefur bara verið í fullu samkomulagi. Það hafa verið
greiddir vextir af þessu þrátt fyrir að
árferðið hafi verið erfitt.